Fréttablaðið - 03.02.2010, Page 20
MARKAÐURINN 3. FEBRÚAR 2010 MIÐVIKUDAGUR4
F R É T T I R
Kynjuð hagstjórn snýst um að skoða fjárlögin og skoða hvert fjármunirnir fara.
Þannig er reynt að sjá út hver
áhrifin eru á konur og á karla,
hvað konur og karlar leggja af
mörkum, og hvaða áhrif fjár-
lögin hafa á kynjatengsl,“ segir
Elisabeth Klatzer dokor í hag-
fræði. Hún er ráðgjafi í kynjaðri
hagstjórn og starfar meðal ann-
ars fyrir austurríska ríkið. Hún
segir kynjatengsl jafnframt vera
valdatengsl sem eigi sér djúpar
rætur í samfélögum.
„Kynjuð hagstjórn snýst ekki
um að helmingur fjárlaganna
fari til kvenna og helmingur til
karla. Þetta snýst um að greina
þarfir og aðstæður hverju
sinni og líta á það hvað
er verið að eyða í og
hver nýtur góðs af
því.“
Elisabeth telur
það ga m a ld a gs
hugsun sem ekki
eigi við rök að styðj-
ast að aðeins þeir
sem fái borgað fyrir
vinnu sína leggi til hag-
kerfisins. „Í kynjaðri hag-
stjórn gerum við ráð
fyrir að stoðir hag-
kerfisins séu líka í
ólaunaðri vinnu. Það
er mikilvægur þáttur í að búa
til velferð þjóðar. Ólaun-
uð vinna hefur áhrif á
launaða vinnu, hún
kemur þeim sem
vinna úti til góða
líka.“
Elisabeth
nefnir einnig
ge g n s æi s em
kost við kynjaða
hagstjórn og fjár-
lagagerð. Hún segir
að vegna þess hversu
mikilla upplýsinga er
þarfnast geti
fjárlagagerð-
in orðið gegn-
særri en ella.
Þá skipti máli
að víðtækari
umræða skap-
ist um fjárlög í sam-
félaginu. „Kynin eiga
rétt á jafnari hlut-
um af kökunni. Það
græða allir á því.
Samfélagið á rétt á
því að njóta þeirra
kosta sem kynjajafn-
rétti hefur í för með
sér.“ thorunn@frettabladid.is
Snýst ekki um
helmingaskipti
milli kynja
Í kynjaðri hagstjórn er skoðað hver áhrif fjárlaga
eru á konur og karla. Slík hagstjórn er mikilvæg
á krepputímum að mati Elisabeth Klatzer.
Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri
grænna hefur lýst því yfir að tekin verði
upp kynjuð hagstjórn hér á landi. Í mars
síðastliðnum kynnti fjármálaráðherra
að skipuð yrði verkefnisstjórn vegna
málsins og myndi hún skila tillögum
innan árs.
Samkvæmt heimasíðu UNIFEM er
ekki markmið kynjaðrar hagstjórn-
ar ekki að meira fé verði varið til
jafnréttisverkefna eða verkefna sem
lúta að konum eða körlum sérstak-
lega, heldur að skoða möguleg áhrif
almannafjár á kynin.
Efnahags- og framfarastofnunin
(OECD), Alþjóðabankinn, Þróunaráætlun
Sameinuðu þjóðanna, Evrópusambandið
og norræna ráðherranefndin eru
á meðal þeirra sem tekið hafa upp
kynjaða hagstjórn.
MIKILVÆGT Á KREPPUTÍMUM
ELISABETH KLATZER
Segir að vegna mikillar
upplýsingasöfnunar geti
kynjuð hagstjórn gert fjárlaga-
gerðina gegnsærri en ella.
Auglýsingaherferð Vodafone þar sem „essasú“-
froskurinn var í aðalhlutverki er með þeim íslensku
auglýsingaherferðum sem hvað mesta athygli hafa
vakið.
Samkvæmt upplýsingum frá Vodafone kviknaði
hugmyndin að herferðinni út frá miklum viðbrögð-
um sem lítil tilboðsauglýsing vakti. Eftir stendur ein-
hver vinsælasti auglýsingafrasi síðari tíma, „essa-
sú?“, 196 þúsund áhorf á auglýsingar með froskin-
um á myndbandavefnum Youtube.com og 21 þúsund
aðdáendur á síðu sem stofnuð var til heiðurs essasú-
frosknum á Facebook.
Til samanburðar má nefna að aðdáendasíða Fanga-
vaktarinnar á Facebook er með um 15 þúsund aðdá-
endur. Þá létu um 5.000 manns taka af sér myndir
með froskinum fyrir jólin þrátt fyrir langar biðraðir.
- óká
Froskur sem sló í gegn
Rúmlega 130 gestir úr ýmsum
áttum komu á kynningu sérfræð-
inga á nýjustu lausnum Marel í
framleiðslusal fyrirtækisins um
miðjan mánuðinn. Flestir gest-
anna voru fulltrúar helstu kjöt-
og kjúklingavinnsla landsins auk
fulltrúa fiskiðnaðarins. Á meðal
helstu nýjunganna var nýjasta
gerðin af verðmerkivog til að
verðmerkja neytendapakkaðar af-
urðir og vél undir vörumerkinu
Townsend, sem himnudregur kjöt
og kjúkling eða roðdregur fisk.
Vörumerkið varð hluti af Marel
með kaupunum á hollensku iðn-
samsteypunni Stork fyrir tveim-
ur árum. Vélar sem þessar hafa
aldrei verið sýndar hér áður. - jab
Margmenni hjá Marel
Í HEIMSÓKN Essasú-froskur Vodafone hefur gert víðreist, meðal
annars kíkti hann í heimsókn á Barnaspítala Hringsins skömmu
fyrir jól. MARKAÐURINN/VILHELM
NÝJASTA TÆKNIN SKOÐUÐ
Matvælavinnsluvél undir merkjum
Townsend var sýnd á kynningu Marels
á dögunum. Vélar undir þessum merkj-
um hafa aldrei áður verið sýndar hér.
MARKAÐURINN/STEFÁN
Frönsk stjórnvöld vilja leggja lóð
sitt á vogarskálarnar og styðja
Ísland upp úr kreppunni, að sögn
Emmanuel Jacques, formanns
stjórnar Fransk-íslenska við-
skiptaráðsins og viðskiptasendi-
fulltrúa Frakka hér.
Jacques segir í samtali við
Fréttablaðið frönsk stjórnvöld
hafa lengi stutt við bakið á smá-
ríkjum sem hafi átt um sárt að
binda af ýmsum ástæðum. Nicolas
Sarkozy, forseti Frakklands, hafi
lýst yfir samúð með þeim sem hafa
orðið illa úti í kreppunni og sagt
á ársþingi Alþjóðaefnahagsráðs-
ins í Alpabænum Davos í Sviss
um síðustu helgi að ríkisstjórnir
sterkustu ríkja heims ættu að taka
höndum saman og styðja þau lönd
sem sitji föst í foraðinu. Á þing-
inu var jafnframt lögð áhersla
á mikilvægi milliríkjaviðskipta
fyrir efnahagsbatann.
„Þið munuð ekki eiga mikinn
stuðning í Bretlandi og í Hol-
landi næstu árin, og óvíst er með
Bandaríkin,“ segir Jacques. „Við
í Frakklandi þekkjum íslensk
fyrirtæki á borð við Actavis, Al-
fesca og Össur aðeins af góðu
og gerum allt til að efla og liðka
fyrir viðskiptasamböndum. Svo
skemmir ekki fyrir að landið er
í hjarta Evrópu og Evrópusam-
bandsins,“ segir hann. - jab
Frakkar vilja hjálpa
til við endurreisnina
EMMANUEL JACQUES Formaður Fransk-
íslenska viðskiptaráðsins segir mikilvægt
að leita nýrra markaða og efla viðskipta-
sambönd í kreppunni. Frakkar vilji styðja
við íslensk fyrirtæki. MARKAÐURINN/STEFÁN
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Fyrirtæki leita bæði til skipa-
félaga og flugfélaga til að
senda vörur til og frá landinu.
Til að senda peninga,
þá tala þau við okkur.
Kjartan Geirsson – Erlend viðskipti
Það er minna mál að skipta
um banka en þú heldur.
Hafðu samband
í síma 540 3200.
Borgartúni 26 · www.mp.is
Varfærni, einfalt þjónustuframboð og
örugg vinnubrögð skipta öllu máli fyrir
fólk og fyrirtæki.
Þannig á banki að vera.
Gjaldeyrisreikningar
Erlend viðskipti
Innheimtuþjónusta
Fyrirtækjaráðgjöf
Netbanki & þjónustuver
Kreditkort
Ávöxtun innlána
Veltureikningur
Fjármögnun
Ábyrgðir