Fréttablaðið - 03.02.2010, Page 23
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
FERÐAFÉLAG ÍSAFJARÐAR verður að öllum
líkindum endurreist að nýju en boðað hefur verið til
aðalfundar þess. Félagið var stofnað 1949, starfaði til
1957, var endurvakið 1979 en lagðist af eftir nokkur ár.
www.fi.is
„Eftirminnilegasta ferðalagið er
jafnframt það óvæntasta, en það
er ferð á Hróarskelduhátíðina
2005,“ segir Björn Teitsson, meist-
aranemi í alþjóðasamskiptum við
Háskóla Íslands.
Aðdragandinn að ferðinni var
sá að á þessum tíma stóð tíma-
ritið Orðlaus fyrir ritgerðarsam-
keppninni „Af hverju átt þú skil-
ið að fara á Hróarskeldu?“ Björn
hripaði niður nokkrar línur um
erfitt líf sitt sem rauðhærður
einstaklingur og náði að sann-
færa ritstýrur tímaritsins um að
það minnsta sem hann ætti skilið
eftir allt mótlætið sem rauða hár-
inu fylgir væri ferð á Hróarskeldu
við annan mann.
„Ferðin var bara ansi skemmti-
leg,“ segir Björn. „Hefðbundið úti-
hátíðardrullumall var víðs fjarri
vegna hitamets og úrkomuleys-
is, sem hlýtur að teljast jákvætt.
Lúxusinn stoppaði heldur ekki þar
því Orðlaus útvegaði „takmarkaða
pressupassa“ sem þýddi í stuttu
máli aðgang að alvöru klósetti, en
reyndir Hróarskeldufarar geta
vottað um að slíkur munaður er
algerlega gulls ígildi.“
Björn segir listamennina á
Hróars keldu ekki hafa verið neitt
slor, en hann sá meðal annars tón-
leika með Mugison, Devendra
Banhart og malíska gítarleikar-
ann Ali Farka Touré, en hann lést
tæplega ári síðar. „Þá var ég hæst-
ánægður að sjá þýsku indí-sveit-
ina Tocotronic á meðal flytjenda,
en þeir voru í sérstöku uppáhaldi
um þessar mundir,“ segir Björn.
Skemmtilegasta atvik ferðar-
innar segir Björn þó hafa átt sér
stað í plötubúðinni Sound Station
á Gamle Kongevej í Kaupmanna-
höfn, sem hann segir þá bestu á
Norðurlöndunum, en þar leit hann
inn fyrir hátíðina. „Ég var í smá
spjalli við afgreiðsluborðið og var
spurður hvort förinni væri ekki
heitið á Hróarskeldu og hvað ætti
svo að sjá. Ég sagðist spenntastur
fyrir Sonic Youth og gaurinn við
afgreiðsluborðið sagði þá: „Já, þú
veist að þau eru hérna.“ Ég spurði
hvað hann ætti við með þessu, en
í þann mund kom Jim O’Rourke,
nýjasti meðlimur sveitarinnar, að
borðinu og ætlaði að fá að hlusta á
Cyndi Lauper-plötu!“
Birni varð þá litið inn í hliðar-
herbergi þar sem ég hann sá Thur-
ston Moore og Lee Ranaldo, stofn-
meðlimi sveitarinnar, á spjalli við
búðareigandann. „Með stjörnubirt-
una í augunum spurði ég O’Rourke
hvort þeir væru til í viðtal fyrir
Orðlaus. Hann sagðist vart geta
talað fyrir hljómsveitina, enda
nýliði. Hins vegar gæti ég beðið
eftir að Thurston myndi ljúka
spjalli sínu við búðareigandann, en
það mætti ekki trufla hann strax
„because he gets real passionate
when he’s talking about music …“
Þessum orðum var vart sleppt
þegar ég sá hinn tveggja metra
Thurston stökkva upp á borð í hlið-
arherberginu og baða út höndum,
greinilega mikið í mun að búðar-
eigandinn tæki undir með honum.
Þetta fannst mér mikið rokk,“
segir Björn. kjartan@frettabladid.is
Alvöru klósett gulls ígildi
Björn Teitsson vann sér inn miða á Hróarskelduhátíðina í ritgerðarsamkeppni árið 2005 og skemmti sér
vel. Í plötubúð í Kaupmannahöfn rakst hann óvænt á nokkra af sínum eftirlætis tónlistarmönnum.
Ritgerð um erfiðleikana sem fylgja því að vera rauðhærður tryggði Birni miða á Hróarskelduhátíðina árið 2005. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Hefur flú starfa› í greininni í fimm ár e›a lengur
og getur sta›fest fla› me› opinberum gögnum?
Ef flú vilt ljúka námi í pípulögnum, húsasmí›i e›a málarai›n flá gæti
raunfærnimat veri› fyrir flig.
Raunfærnimat er tilraunaverkefni sem mi›ar a› flví a› meta færni sem
vi›komandi b‡r yfir inn í skólakerfi›. A› loknu raunfærnimati fara flátt-
takendur í skóla og ljúka flví námi sem eftir stendur til a› útskrifast.
Áhugasömum er bent á a› hafa samband vi› I‹UNA fræ›slusetur í síma
590-6400, jafnframt er hægt a› sko›a www.idan.is e›a senda tölvupóst
á netfangi› radgjof@idan.is.
Kynningarfundur ver›ur haldinn um verkefni› fimmtudaginn 4. febrúar,
kl.17:00 í Skúlatúni 2, 1. hæ› (gengi› inn vestan megin).
Hófst flú nám í pípulögnum,
húsasmí›i e›a málarai›n
en laukst flví ekki?
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
4
26
.0
18