Fréttablaðið - 03.02.2010, Síða 25

Fréttablaðið - 03.02.2010, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 3. febrúar 2010 3 Kristján M. Baldursson, fram- kvæmdastjóri Trex, segir Færeyj- ar koma fólki sífellt á óvart, bæði hvað landslag, menningu og fólkið sjálft snerti. „Færeyjar eru vinalegar og fólk er oft hissa á því sérstak- lega afslappaða andrúmslofti sem þar er að finna,“ segir Kristján. „Náttúrufegurðin og þá hversu fjölbreytt landslag Færeyjar búa yfir, þykir mörgum sérstakt með tilliti til þess að eyjarnar eru ekki stórar.“ Flogið er til Færeyja 28. maí og komið til baka föstudaginn 4. janúar en gamlar þjóðleiðir eru gengnar á fjórum af átján eyjum Færeyja. Einnig er gengið á nokk- ur fjöll. Gist er í uppbúnum rúmum á farfugla- og gistiheimilum en kvöldverður fylgir í fimm skipti sem og sex nestispakkar. „Við höfum farið í þessa ferð á sama tíma og alltaf með sama far- arstjóra, Sigrúnu Valbergsdóttur, þannig að við erum orðin gjör- kunnug aðstæðum og dagskráin er þægileg og aðgengileg. Gangan er farin á besta tíma í Færeyjum, þegar hvað þurrast er, en í Færeyj- um vorar fyrr þannig að sumarið er yfirleitt komið á þessum tíma.“ Ásamt göngunni fær fólk sögu- legan fróðleik í bland og kíkt er á gamlar byggðir og vinaleg þorp. Meðal skemmtilegra staða sem heimsóttir verða má nefna Myki- nes, ægifagra klettaey með lít- illi byggð, og gömlu póstleiðina á eynni Vágar yfir Gásadal. Einnig er stefnt að því að ganga á hæsta fjall eyjanna, Slættartind, sem er 882 metrar en í lok ferðar er dvalið í Þórshöfn þar sem margt verður skoðað. „Færeyingar eru ótrúlega góðir heim að sækja og þeir eru sérstak- lega vinalegir gagnvart Íslending- um svo það er ekki síður upplifun að hitta fólkið sjálft.“ julia@frettabladid.is Færeyingar góð- ir heim að sækja Ferðaskrifstofan Trex hefur staðið fyrir vinsælli ferð til Færeyja þar sem ferðamenn dvelja í nokkra daga og fara í skemmtilegar göngu- ferðir um eyjuna. Sögulegur fróðleikur fylgir einnig. Í Færeyjum vorar fyrr og því standa vonir til að veðrið verði milt í lok maí þegar ferð- in er farin. MYND/ÚR EINKASAFNI VOLKSWAGEN ætlar sér að vera orðinn stærsti bílaframleiðandi veraldar fyrir 2018 og boðar 60 nýjar gerðir á þessu ári. www.fib.is Gistiheimili í Kaupmannahöfn Herbergi og studioíbúðir í miðbænum sími 0045-2848 8905La Villa Skíðabox St i l l ing hf . · S ími 520 8000 www.st i l l ing. is · s t i l l ing@sti l l ing. is Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Patti Húsgögn Landsins mesta úrval af hornsófum SWS 8922 Boston delux aspen paris boston-lux Boston Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16 man-75 leður bogasófi fusite 6731 leður sófasett 3+1+1 299.9 00 kr Verð áður 469.0 00kr ASPEN Endalausir möguleikar parisp-8185 bonn 199.950 kr Verð áð ur 399.900 kr

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.