Fréttablaðið - 03.02.2010, Page 31
MARKAÐURINN 11MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2010
F R É T T I R
Einar Sigurðsson hefur tekið við
starfi forstjóra Auðhumlu, sam-
vinnufélagi 700 mjólkurbænda,
sem á stærstan hlut í Mjólk-
ursamsölunni. Forstjóraskipti
urðu núna um mánaðamótin en
þá lét Magnús Ólafsson af störf-
um „eftir áratuga farsælan feril
í íslenskum mjólkuriðnaði“, að
því er fram kemur á vef Lands-
sambands kúabænda. Einar verð-
ur forstjóri bæði Auðhumlu og
Mjólkur samsölunnar.
Fram kemur að Magnús Ólafs-
son hafi hafið störf hjá Mjólkur-
stöðinni í Reykjavík árið 1961 og
unnið nær óslitið fyrir mjólkur-
iðnaðinn síðan. „Einar Sigurðs-
son tók við starfi forstjóra Mjólk-
ursamsölunnar 1. maí á síðasta
ári. Hann hafði verið forstjóri
Árvakurs í tvö og hálft ár og
framkvæmdastjóri viðskipta-
þróunar hjá Capacent þar á
undan,“ segir á vef kúabænda.
- óká
Stýrir Auðhumlu og
Mjólkursamsölunni
Frestur til að leggja fram óskuld-
bindandi tilboð í allan hlut SAT
Eignarhaldsfélag og Íslandsbanka
í Sjóvá rann út í gær. Um var að
ræða allt hlutafé tryggingafyrir-
tækisins.
Söluferlið var opið öllum áhuga-
sömum fjárfestum sem teljast
fagfjárfestar og geta sýnt fram
á eiginfjárstöðu umfram 500
milljónir króna.
Ekki lá fyrir í gær hversu marg-
ir höfðu sent inn tilboð. Farið verð-
ur yfir þau í viðurvist óháðs aðila
og niðurstöður kynntar á næstu
dögum, samkvæmt upplýsingum
úr bankanum. - jab
Tilboðsfrestur
liðinn
Rannveig Rist, forstjóri
Alcan á Íslandi, hefur tekið
við formennsku í stjórn
Skipta hf. Þetta var ákveð-
ið á fundi stjórnar Skipta
á mánudag. Lýður Guð-
mundsson var áður
stjórnarformaður, en
hann situr áfram í
stjórn félagsins.
„ M e ð f o r -
mennsku Rann-
veigar er tryggð
samfelldni í stjórn
fyrirtækisins en
hún hefur mikla
r e y n s l u o g
þekkingu á rekstri þess.
Rannveig hefur setið í
stjórn Skipta og Sím-
ans frá árinu 2002 þegar
fyrirtækið var í eigu ís-
lenska ríkisins. Hún var
formaður stjórn-
ar frá 2002 ti l
2005 en hefur
s í ð a n v e r i ð
varaformað-
ur stjórnar,“
segir í tilkynn-
ingu stjórn-
ar Skipta til
Kauphallar-
innar. - óká
Breytt stjórn Skipta
Embætti rektors við Háskóla Ís-
lands hefur verið auglýst laust til
umsóknar.
Í auglýsingu háskólaráðs í Lög-
birtingablaðinu kemur fram að það
sé gert í samræmi við lög númer
85 frá 2008 um opinbera háskóla
og sjöttu greinar númer 569 frá
2009 fyrir Háskóla Íslands.
Kristín Ingólfsdóttir hefur
gegnt starfinu frá árinu 2005 og
tók þá við af Páli Skúlasyni.
„Menntamálaráðherra skip-
ar háskólarektor til fimm ára
samkvæmt tilnefningu háskóla-
ráðs,“ segir í auglýsingunni, en
tilnefning háskólaráðs fer fram
að undangengnum kosningum
í háskólanum. „Miðað er við að
rektorskjör fari fram 12. apríl
næstkomandi.“ - óká
Auglýst eftir
rektor
HÖFUÐSTÖÐVAR SJÓVÁR Frestur til að
skila inn tilboðum í tryggingafélagið Sjóvá
rann út í gær. MARKAÐURINN/VILHELM
HÁSKÓLAREKTOR Kristín Ingólfsdóttir tók
við embætti rektors Háskóla Íslands af Páli
Skúlasyni í júnílok 2005. MARKAÐURINN/STEFÁN
EINAR
SIGURÐSSON