Fréttablaðið - 03.02.2010, Side 36

Fréttablaðið - 03.02.2010, Side 36
20 3. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR timamot@frettabladid.is BUDDY HOLLY LÉST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1959. „Dauðinn er oft sagður góður fyrir framann.“ Buddy Holly var bandarísk- ur söngvari og lagahöfund- ur og einn af frumkvöðl- um rokksins. Hann sló fyrst í gegn með laginu That’ll Be the Day sem hann tók upp með hljómsveit sinni The Crickets árið 1957. Hann lést í flugslysi árið 1959. Geðlæknirinn Nanna Briem flytur er- indi um einkenni siðblindu og hvaða tækjum geðlæknisfræðin er búin til greiningar á henni, á hádegisfundi í Háskólanum í Reykjavík í dag. Þar vísar hún meðal annars í fullyrðing- ar breskra sálfræðinga um að sið- blinda hafi orðið fyrirtækjum á borð við Enron að falli. „Í fyrri hluta erindisins mun ég fjalla um siðblindu, hvað einkenn- ir hana og hvar hana er að finna en í seinni hlutanum styðst ég við hug- myndir tveggja sálfræðinga sem hafa stundað rannsóknir á siðblindu. Annar þeirra er Robert Hare, prófessor í sálfræði við University of Colombia. Hann er höfundur greiningartækisins Psychopathy Checklist (PCL) og hefur bent á það að siðblindir finnist ekki aðeins í fangelsum heldur alls staðar í samfélaginu. Hinn sérfræðingurinn er vinnusálfræðingurinn Paul Babi- ak en saman hafa þeir skrifað bókina Snakes in Suits: When Psychopaths Go to Work. Bókin fjallar um siðblindu í fyrirtækjum og hvernig stendur á því að siðblindir einstaklingar séu ráðnir, haldi vinnunni og nái jafnvel að vinna sig upp í áhrifastöður.“ Greiningartæki Hare er skipt í tvennt. Sum einkenni lýsa tilfinninga- lífi og samskiptum en önnur andfélags- legum lífsstíl. „Þeir sem skora hærra á andfélagslega sviðinu eru líklegri til að missa stjórn á sér, vera ofbeldis- fullir og lenda á bak við lás og slá en þeir sem skora hátt á tilfinninga- og samskiptasviðinu geta frekar leynst í samfélaginu. Siðblindir eru samvisku- lausir og ófærir um að setja sig í spor annarra en þeir sem eru klárir eiga margir auðvelt með að kveikja á per- sónutöfrunum, ráðskast með fólk og komast jafnvel til áhrifa.“ Þeir Babiak og Hare hafa skoðað tíðni siðblindu hjá stjórnendum fyrirtækja og niðurstöður þeirra benda til þess að hún sé tvisvar til þri- svar sinnum meiri en í almennu þýði. Þeir halda því fram að ákveðnir ein- staklingar sem tengjast Enron-málinu hafi verið með einkenni siðblindu. Þeir telja mikilvægt að fyrirtæki skimi fyrir einkennum hennar til að koma í veg fyrir margvísleg vandamál. Nanna segir þá félaga hafa komist að því að ákveðin fyrirtæki laði frekar til sín siðblinda einstaklinga. „Þetta eru oft fyrirtæki þar sem framgang- an er hröð, lagt er upp úr háum bónus- um og gróða. Eftirliti er oft ábótavant og á meðan starfsmennirnir græða er jafnvel litið framhjá því hvaða að- ferðum þeir beita,“ segir Nanna. Hún segir siðblinda hins vegar eiga erf- iðara uppdráttar í fyrirtækjum með meira eftirlit. Nanna gerir ráð fyrir því að á Ís- landi leynist siðblindir einstaklingar í fyrirtækjum eins og annars stað- ar. „Ef umhverfið í fyrirtækjum er eða hefur verið með fyrrgreindum hætti kann vel að vera að einhverjir þeirra hafi komist til áhrifa. Ég vil þó ekki halda því fram að þeir séu und- irrót þess vanda sem við glímum við. Þetta er bara innlegg í umræðuna og ef til vill ein af mörgum skýringum.“ Fyrirlestur Nönnu fer fram í stofu 101 og hefst klukkan 12.10. vera@frettabladid. NANNA BRIEM: FJALLAR UM SIÐBLINDU OG BIRTINGARMYNDIR HENNAR Siðblindir í röðum stjórnenda Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, Una Herdís Gröndal lést á hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn 29. janúar sl. Útförin verður auglýst síðar. Guðrún G. Gröndal Sveinbjörn Össur Gröndal Jón Halldór Jónasson Þóra Jónsdóttir Össur Ingi Jónsson Ásgrímur Karl Gröndal Hjálmar Snorri Jónsson Fréttablaðið býður nú upp á birtingu æviminninga á tímamótasíðum blaðsins. Hafið samband í síma 512 5490-512 5495 eða sendið fyrirspurnir á netfangið timamot@frettabladid.is Æviminning Gísli Eirík ur Helgaso n Laugateigi 7 2, Reykjavík Gísli Eirík ur Helgaso n fæddist í Reykjavík 1. janúar 1 931. Hann lést á Hraf nistu í Ha fnarfirði 1 2. janúar síð astliðinn. Foreldrar hans voru Guðr ún Jónsdót tir frá Þing eyri í Dýrafirði f. 1917, d. 1988, og H elgi Gíslason fr á Ísafirði, f. 1915, d. 1970. Gísli Eirík ur bjó fyrs tu æviár sí n í Reykjavík en fluttist eftir það v estur til Ísafjarð ar með for eldrum sín um og systkin um. Systkini G ísla Eiríks eru Jón Hannes, f. 1933, Sigrí ður Ása, f. 1936 og G uðmundur , f. 1941. Eiginkona Gísla Eirí ks er Marg rét Magnú sdóttir hjú kr- unarfræði ngur, f. 4. apríl 1937 . Þau geng u í hjóna- band árið 1960. Börn Gísla Eirí ks og Mar grétar eru: 1) Magnús kennari, f . 1.5. 1972 , kvæntur Guðbjörgu Björnsdótt ur kennara , f. 30.11. 1 971. Börn þeirra eru Margrét, f. 17.2. 1997 og Björn J óhann, f. 2 0.1. 1999. 2) Helgi tæ knifræðin gur, f. 18.6 . 1975, í sa mbúð með Jórunni Dr öfn Ólafsdó ttur leiksk ólakennar a, f. 15.2. 1975. Þeir ra dóttir e r Þórunn Á sta, f. 24.12 . 2001. 3) Guðrún læ knir, f. 14. 11. 1979, í sambúð m eð Þór Halldórssy ni stjórnm álafræðing i, f. 6.6. 19 80. Gísli Eirík ur lauk sk yldunámi á Ísafirði e n hélt suð ur til Reykjav íkur 17 ára gamall til að nema h úsasmíði. Húsasmíð ar urðu æv istarf hans . Framan a f starfsæv- inni vann hann á Tré smíðaverk stæðinu Fu ru en eftir að hafa fengi ð meistara réttindi í i ðn sinni st ofnaði han n sitt eigið f yrirtæki, G ísli, Eiríku r, Helgi, se m hann át ti og rak þar til fyrir fá einum áru m. Stangveið i var aðalá hugamál G ísla Eiríks alla tíð og sinnti h ann meða l annars tr únaðarstö rfum fyrir Stangveið ifélag Reyk javíkur. Útför Gísla Eiríks fer fram í dag kl. 13.00 í Fossvogskir kju. G 1 gason æddist í . Hann firði 12. drar hans á Þingeyri , og Helgi5, d. 1970. ár sín í að ve tur m sínum dur, f. úkr- u: u ð ur ð Gísli Eiríkur HelgasonTrésmíðameistariGísli Eiríkur Helgason fæddist í Reykjavík 1. janúar 1931. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 12. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðrún Jónsdóttir frá Þingeyri í Dýrafirði f. 1917, d. 1988, og Helgi Gíslason frá Ísafirði, f. 1915, d. 1970. Gísli Eiríkur bjó fyrstu æviár sín í Reykjavík en fluttist eftir það vestur til Ísafjarðar með foreldrum sínum og systkinum. Systkini Gísla Eiríks eru Jón Hannes, f. 1933, Sigríður Ása, f. 1936 og Guðmundur, f. 1941. Eiginkona Gísla Eiríks er Margrét Magnúsdóttir hjúkr- unarfræðingur, f. 4. apríl 1937. Þau gengu í hjóna- band árið 1960. Börn Gísla Eiríks og Margrétar eru: 1) Magnús kennari, f. 1.5. 1972, kvæntur Guðbjörgu Björnsdóttur kennara, f. 30.11. 1971. Börn þeirra eru Margrét, f. 17.2. 1997 og Björn Jóhann, f. 20.1. 1999. 2) Helgi tæknifræðingur, f. 18.6. 1975, í sambúð með Jórunni Dröfn Ólafsdóttur leikskólakennara, f. 15.2. 1975. Þeirra dóttir er Þórunn Ásta, f. 24.12. 2001. 3) Guðrún læknir, f. 14.11. 1979, í sambúð með Þór Halldórssyni stjórnmálafræðingi, f. 6.6. 1980. Gísli Eiríku lauk skyldunámi á Ísafirði en hélt suður til Reykjavíkur 17 ára gamall til að nema húsasmíði. Húsasmíðar urðu ævistarf hans. Framan af starfsæv- inni vann hann á Trésmíðaverkstæðinu Furu en eftir að hafa fengið meistararéttindi í iðn sinni stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki, Gísli, Eiríkur, Helgi, sem hann átti og rak þar til fyrir fáeinum árum. Stangveiði var aðaláhugamál Gísla Eiríks alla tíð og sinnti hann meðal annars trúnaðarstörfum fyrir Stangveiðifélag Reykjavíkur. Útför Gísla Eiríks fer fram í dag kl. 13.00 í Fossvogskirkju. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og bróðir, Dr. Karl-Ulrich Müller sendiherra Þýskalands á Íslandi, lést laugardaginn 23. janúar. Útför hans fer fram í Þýskalandi. Augusta Opfermann Müller Balthasar Müller Anna Philippa Müller Friedel Müller Arndt Müller Hartwig Müller Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Guðrún Eiríksdóttir Skarðshlíð 10b, Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn 22. janúar sl. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug. Eiríkur Ragnarsson Bjarney Sveinbjörnsdóttir Kristín R. Trampe Jón Ragnarsson Anna Marý Jónsdóttir Þórdís R. Trampe Ari Albertsson Halla Björk Ragnarsdóttir Bergur Júlíusson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Rósa Eiríksdóttir frá Dagsbrún, andaðist á hjúkrunardeild Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað, þriðjudaginn 26. janúar. Jarðsungið verð- ur frá Norðfjarðarkirkju föstudaginn 5. febrúar kl. 14. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Elísabet Kristinsdóttir Þórdís Kristinsdóttir Kristinn Pétursson SIÐBLINDIR GETA KOMIST TIL ÁHRIFA Sé eftirliti ábótavant innan fyrirtækja eru meiri líkur á að siðblindir komist til áhrifa, að sögn Nönnu. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /PJETU R MERKISATBURÐIR 1517 Tyrkjaveldi nær Kaíró á sitt vald. 1605 Víkurkirkja í Reykjavík er vígð af Stefáni Jónssyni Skálholtsbiskupi. 1815 Fyrsta ostabúið tekur til starfa í Sviss. 1951 Dick Button vinnur bandaríska meistaramót- ið í listhlaupi á skautum, fjórða sinn í röð. 1981 Síðasti torfbærinn, Litla- Brekka við Suðurgötu í Reykjavík, er rifinn. Þar bjó Eðvarð Sigurðsson al- þingismaður. 1991 Fárviðri gengur yfir Ísland og verður mikið eigna- tjón. Sterkasta vind- hviðan var 237 km/ klst og mældist hún í Vestmannaeyjum. Þennan dag árið 1966 stýrðu Sovétmenn ómönnuðu geimfari að nafni Lunik 9 inn til lend- ingar á svæði sem nefnist Vindahafið á tunglinu. Eftir lendinguna opnaðist á farinu hringlaga hylki þannig að úr varð loftnet og farið hóf að senda ljósmyndir og sjónvarpsefni til jarðarinnar. Svæðið sem hægt var að skoða var vestan megin við gígana Reiner og Marius og var þetta í fyrsta sinn sem mátti sjá tunglið frá yfirborði þess. Þá voru sjö útvarpssendingar sendar sem samtals voru rúmlega átta klukkustunda langar. Farinu, sem vó um 100 kíló, var skotið frá jörðu 31. janúar en Lunik 9 var þriðja stóra tungl- ferðin í geimáætlun Sovétríkjanna. Lunik 2 var fyrsti manngerði hluturinn til að ná til tunglsins þegar hann skall á yfirborði þess 14. september árið 1959. Lunik 3 flaug umhverfis tunglið 7. október sama ár og sendi aftur til jarð- ar fyrstu myndirnar af myrku hlið tunglsins. ÞETTA GERÐIST: 3. FEBRÚAR ÁRIÐ 1966 Lunik 9 lendir á tunglinu AFMÆLI Henning Mankell rithöf- undur er 62 ára. Isla Fisher leikkona er 34 ára. Warwick Davis leikari er fertugur. Nathan Lane leikari er 54 ára. Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.