Fréttablaðið - 03.02.2010, Síða 39
MIÐVIKUDAGUR 3. febrúar 2010
Ólafur Reynir Guðmunds-
son heldur námskeið um
bresti í innviðum ríkisins
stuttu eftir að skýrsla
rannsóknarnefndar Alþing-
is kemur út. Í hádeginu í
dag heldur hann hins vegar
tónleika í Guðríðarkirkju
í Grafarholti og leikur þar
eigin tónsmíðar.
„Þetta eru fremur einföld klassísk
verk, dreymandi í síðrómantískum
stíl en þó nútímaleg um leið, vona
ég. Mörg eru ef til vill styttri en fólk
á að venjast,“ segir Ólafur Reynir
Guðmundsson lögfræðingur.
„Þegar ég var við nám í Bos-
ton byrjaði ég að semja kyrrlátar
melódíur og finnst gaman að leita
uppi tóna sem líður vel saman. Svo
rabba ég um verkin á milli laga.
Þeir Davíð Ólafsson og Stefán Stef-
ánsson óperusöngvarar taka líka
lagið.“
Ólafur Reynir er með burtfarar-
próf í píanóleik og var kennari hans
Rögnvaldur Sigurjónsson. Ólafur
er lögfræðingur og með gráðu í
stjórnun frá Harvard. Hann fór úr
starfi í norska fjármálageiranum
og flutti til Íslands í október. Hann
starfar hjá Samtökum verslunar og
þjónustu.
Um miðjan mars, stuttu eftir að
skýrsla rannsóknarnefndar Alþing-
is kemur út, verður Ólafur Reyn-
ir með námskeið við Endurmennt-
un HÍ sem ber heitið „Brestir í
innviðum ríkisins“.
„Þar ætla ég að fjalla um hvað
kemur í veg fyrir að ríkið nær sjald-
an að taka hina bestu mögulegu
ákvörðun hverju sinni, það er með
tilliti til almannahagsmuna. Raun-
ar fjöllum við um hvað það sé í yfir-
byggingunni sem verður til þess að
kerfinu mistekst að ná markmiðum
sínum. Til að skýra vanhæfi ríkis-
ins þá berum við það enn fremur
saman við rekstur einkafyrirtæk-
is og fáum þannig skemmtilegan
samanburð,“ segir hann.
Ólafur Reynir á ekki von á að
sameina þetta tvennt, tónlistina og
pælingar um ríkið. „Ég veit ekki
hvernig slíkt verk myndi hljóma.
Ég á reyndar nokkrar fremur þung-
ar melódíur en ég efast um að ég
treysti mér til að semja tónverk upp
úr skýrslu rannsóknarnefndarinn-
ar. Það myndi líklega verða svolítið
tyrfið.“ - drg
Dreymandi píanó í Grafarholti
ÓLAFUR REYNIR GUÐMUNDSSON Semur rómantísk píanóverk og pælir í Hruninu.
„Besta leiksýning ársins“ Mbl., IÞ
BRENNUVARGARNIR
Brennuvargarnir (Stóra sviðið)
Fös 5/2 kl. 20:00 U
Mið 17/2 kl. 20:00 U
Fim 18/2 kl. 20:00 Síðasta sýn. U
Mið 24/2 kl. 20:00 Aukas. Ö
Fös 12/2 kl. 20:00 Frums. U
Lau 13/2 kl. 20:00 2. K U
Fös 19/2 kl. 20:00 3 K Ö
Lau 20/2 kl. 20:00 4. K U
Gerpla (Stóra sviðið)
Fim 25/2 kl. 20:00 Aukas. U
Fös 26/2 kl. 20:00 5. K Ö
Lau 27/2 kl. 20:00 6. K Ö
Fös 5/3 kl. 20:00 7. K Ö
Lau 6/3 kl. 20:00 8. K Ö
Fim 11/3 kl. 20:00 Ö
Lau 6/2 kl. 15:00 U
Lau 6/2 kl. 19:00 U
Sun 14/2 kl. 15:00 U
Sun 14/2 kl. 19:00 Ö
Sun 21/2 kl. 15:00 U
Sun 21/2 kl. 19:00 Ö
Oliver! (Stóra sviðið)
Sun 28/2 kl. 15:00 U
Sun 28/2 kl. 19:00 Ö
Sun 7/3 kl. 15:00 Ö
Sun 7/3 kl. 19:00 Ö
Sun 14/3 kl. 15:00 U
Sun 14/3 kl. 19:00 Ö
Sun 21/3 kl. 15:00 Ö
Sun 21/3 kl. 19:00 Ö
Lau 27/3 kl. 15:00 Ö
Lau 27/3 kl. 19:00
Sun 28/3 kl. 15:00
„Besta leiksýning ársins“ MBL, IÞ. Aukasýning 24. febrúar komin í sölu!
Miðasala hafin – tryggið ykkur sæti á fyrstu sýningar!
Lau 13/3 kl. 15:00 Frums. U
Sun 14/3 kl. 13:00 U
Sun 14/3 kl. 15:00 U
Lau 20/3 kl. 13:00 U
Lau 20/3 kl. 15:00 U
Sun 21/3 kl. 13:00 U
Sun 21/3 kl. 15:00 U
Fíasól (Kúlan)
Lau 27/3 kl. 13:00 U
Lau 27/3 kl. 15:00 U
Sun 28/3 kl. 13:00 U
Sun 28/3 kl 15:00 U
Lau 10/4 kl 13:00 U
Lau 10/4 kl 15:00 U
Sun 11/4 kl 13:00 U
Sun 11/4 kl 15:00 U
Lau 17/4 kl 13:00
Lau 17/4 kl 15:00
Sun 18/4 kl 13:00
Sun 18/4 kl 15:00 U
Sprellfjörug sýning um gleðisprengjuna ómótstæðilegu!
Oliver! ★★★★ MBL, GB. Nýjar sýningar komnar í sölu.