Fréttablaðið - 03.02.2010, Page 41
MIÐVIKUDAGUR 3. febrúar 2010 25
Þrátt fyrir að Keith Richards,
gítarleikari Rolling Stones, sé
hættur að drekka í bili er hann
svo sannarlega ekki hættur að
reykja. Hann hætti að drekka
fyrir nokkrum mánuðum af heil-
brigðisástæðum en neitar að gefa
sígaretturnar upp á bátinn.
„Keith getur ekki byrjað dag-
inn án þess að fá sér sígarettu.
Núna eru reykingar eini löstur
Keiths og hann ætlar ekki að
hætta þeim,“ sagði kunningi
gítar leikarans. Hinn 66 ára Keith
er þekktur fyrir að reykja á
tónleikum þrátt fyrir að það sé
bannað, enda finnst honum slík
boð og bönn eintóm þvæla.
Hættir ekki
að reykja
KEITH RICHARDS Gítarleikari Rolling
Stones ætlar ekki að gefa sígaretturnar
upp á bátinn.
„Núna er handboltinn nýbúinn og þá er
Eurovision byrjað,“ segir Páll Óskar Hjálm-
týsson um hina árlegu tónleika sína á Nasa á
laugardagskvöld sem verða haldnir eftir úrslit-
in í Eurovision. „Það er alltaf troðið, það er bara
þannig. Þjóðin fríkar alltaf út.“
Páll Óskar, Hera Björk og Haffi Haff stíga
þar á svið ásamt dönsurum og eftir það þeytir
Palli skífum alla nóttina. En fyrst tekur hann
þátt í upphafsatriðinu í Eurovision-útsendingu
Sjónvarpsins ásamt þremur öðrum fyrrverandi
Eurovision-förum, eða Selmu Björnsdóttur,
Friðriki Ómari og Regínu Ósk.
Palli segir að Eurovision-keppnin á laugar-
daginn gæti orðið tvísýn. „Það sem fólk má
ekki gleyma er að það eru sex lög í keppninni
en ekki tvö,“ segir hann og á þar við lög Jóg-
vans og Heru Bjarkar sem hafa verið mest í
umræðunni. „Ef eitthvað er þá er standardinn
á þessari undankeppni mun hærri og betri en
verið hefur. Það getur allt gerst í beinni útsend-
ingu og sigurinn er aldrei gefinn, ekki frekar
en í handboltanum.“
Palli er í miklu Eurovision-stuði þessa dag-
ana því hann undirbýr nú af kostgæfni þættina
Alla leið sem hefjast í Sjónvarpinu um miðj-
an apríl. Spekingarnir þrír, Reynir Þór Egg-
ertsson, Dr. Gunni og Guðrún Gunnarsdóttir,
verða áfram á sínum stað og nú verða þættirn-
ir fimm í stað fjögurra. „Þessir þrír spekingar
eru búnir að vera svolítið sannspáir. Við byrj-
um fyrsta þáttinn á því að tékka á því hversu
sannspá þau eru og það kemur sláandi vel út
fyrir þau.“
Eurovision-partíið á Nasa verður opnað
klukkan 23 á laugardagskvöld. Forsala miða
fer fram á Nasa á föstudaginn milli 13 og 17.
Eurovision kemur í stað handboltans
PÁLL ÓSKAR Páll Óskar er kominn í hörku Eurovision-
gír og spáir spennandi keppni á laugardaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Gæðaleikarinn Matthew Brod-
erick hefur tekið að sér að leika
aðalhlutverkið í nýjum gaman-
þáttum NBC-sjónvarpsstöðvar-
innar. Þeir heita Beach Lane og
fjalla um þekktan rithöfund sem
tekur að sér að ritstýra dagblaði
í smábæ. Broderick bauðst hlut-
verkið fyrir ári en ákvað loks að
láta slag standa eftir að hafa lesið
handritið, að því er kemur fram í
Hollywood Reporter. Væntanlega
hefur það síðan ekki skemmt
fyrir að eiginkona Brodericks,
Sarah Jessica Parker, hefur átt
farsælan feril í sjónvarpinu, í
þáttunum Sex and the City.
Broderick í
sjónvarpið
LEIKUR RITSTJÓRA Matthew Broderick
leikur ritstjóra í nýrri sjónvarpsþáttaröð.
Janet Jackson, systir hins látna
Michaels Jackson, bíður enn
eftir því að heyra röddina hans
í símanum sínum. Þetta kemur
fram í viðtali við söngkonuna í
tímaritinu Wonderland. „Stund-
um hringir síminn og þá vona
ég að þetta sé hann,“ segir Janet
í viðtalinu en hún hefur haldið
sig til hlés eftir að bróðir hennar
fór yfir móðuna miklu og aðeins
birst opinberlega til að styðja við
bakið á börnum Jacksons. „Fólk
syrgir bara á mismunandi hátt.“
Bíður eftir
Michael
SAKNAR MICHAELS Janet Jackson býst
enn þá við símtali frá bróður sínum.
Kringlunni • Sími 551 3200
next á Íslandi er á facebook, ert þú orðin vinur?
ÚTSÖLULOK
VERÐHRUN