Fréttablaðið - 03.02.2010, Side 43
MIÐVIKUDAGUR 3. febrúar 2010 27
HANDBOLTI Guðmundur Guðmunds-
son landsliðsþjálfari hvílir lúin
bein þessa dagana eftir erfitt EM.
Hann þarf ekki að drífa sig aftur
út til Danmerkur enda er félag
hans, GOG, gjaldþrota. Guðmund-
ur fékk að vita tíðindin í gegn-
um sms-skeyti skömmu fyrir leik
Íslands á EM.
„Næstu skref hjá mér eru óljós.
Það er eitt og annað í Danmörku en
fyrst og fremst er verið að skoða
framhaldið hjá GOG. Félagið er að
skoða stöðuna, hvort félagið byrji
frá grunni í neðstu deild eða taki
yfir lið jafnvel í 2. deild. Menn
eru ekki hættir að spila handbolta
þarna. Það eru fjárfestar í starthol-
unum og menn eru að ráða ráðum
sínum um hvorn kostinn þeir ætla
að velja,“ sagði Guðmundur en
hann segist vera að skoða næstu
skref þessa dagana. Hvort eitthvað
komi upp á borðið eins og gera
má ráð fyrir í ljósi þess frábæra
árangurs sem hann hefur verið að
ná með íslenska landsliðinu.
„Það er ekkert komið upp í hend-
urnar á mér enn þá sem hægt er
að tala um. Þetta er líka oft spurn-
ing um tímasetningu. Það eru ekki
mörg alvöru lið sem eru í boði og
oft eru þessi félög nýbúin að gera
samninga við þjálfara eða nýbúin
að framlengja. Þetta snýst því líka
um að vera réttur maður á réttum
stað á réttum tíma. Þá er maður í
svolítið erfiðri stöðu,“ sagði Guð-
mundur sem ætlar því að vera þol-
inmóður.
„Ég er alveg ákveðinn í því að
bíða eftir rétta tækifærinu þó
svo það taki mig lengri tíma. Ég
mun ekki ana út í neitt heldur bíða
eftir því að rétta tilboðið og félag-
ið komi. Ég verð mjög vandlátur
á það sem verður. Hvort sem það
verður í Danmörku eða annars
staðar. Það hefur ekkert áhuga-
vert fallið í fangið á mér enn þá
ef ég á að segja satt,“ sagði Guð-
mundur en hann hefur verið orð-
aður við hið nýja sameiginlega
félag FCK og AG Håndbold sem
skartgripajöfurinn Jesper Nielsen
stendur á bak við en hann er einn-
ig aðalmaðurinn hjá Rhein-Neck-
ar Löwen.
Guðmundur mun einmitt hitta
Nielsen næstkomandi miðviku-
dag en Nielsen hefur boðið Guð-
mundi að koma á leik Rhein-
Neckar Löwen og Kiel í sínu boði.
Guðmundur segir ekkert samhengi
vera á milli þeirrar ferðar og þessa
orðróms.
„Þeir ku ætla að fela Klavs Bruun
Jörgensen og Sören Herskind það
að þjálfa þetta nýja félag. Þeir eru
vissulega reynslulitlir en það hefur
ekki verið minnst á það við mig að
taka við þessu félagi. Jesper sendi
mér tölvupóst þar sem hann óskaði
mér til hamingju með árangurinn
á EM og hann er eðlilega stoltur
af þeim íslensku leikmönnum sem
spila með Löwen. Hann ákvað af
því tilefni að bjóða mér á leikinn,“
sagði Guðmundur Guðmundsson.
henry@frettabladid.is
Mun bíða eftir rétta tækifærinu
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari er í sérstakri stöðu þessa dagana. Þó svo hann sé búinn að
sanna sig sem einn hæfasti handknattleiksþjálfari heims er hann ekki með fasta dagvinnu þar sem félag
hans, GOG, fór á hausinn er EM stóð sem hæst. Hann ætlar ekki að taka fyrsta atvinnutilboði sem berst.
ÞOLINMÆÐI ER DYGGÐ Það er leit að hæfari þjálfara á lausu í dag en Guðmundi. Hann ætlar að vera þolinmóður og bíða eftir
nægilega spennandi tilboði. FRÉTTABLAÐIÐ/DIENER
Enska úrvalsdeildin:
Hull City-Chelsea 1-1
1-0 Steven Muoyokolo (30.), 1-1 Didier Drogba
(42.)
STAÐA EFSTU LIÐA:
Chelsea 24 17 4 3 58-20 55
Man. United 24 17 2 5 56-20 53
Arsenal 24 15 4 5 60-28 49
N1-deild kvenna:
Fylkir-FH 21-17
KA/Þór-Valur 20-31
Stjarnan-HK 37-19
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Chelsea er aðeins með
tveggja stiga forskot á toppi
ensku úrvalsdeildarinnar eftir 1-
1 jafntefli gegn Hull í gær. Liðið
á þess utan ekki lengur inni leiki
á Man. Utd sem er í öðru sæti.
Chelsea lenti undir í leiknum
en Didier Drogba kom liðinu til
bjargar með glæsilegu marki
beint úr aukaspyrnu. Þetta var
fyrsti leikur Drogba með Chelsea
síðan hann snéri aftur úr Afríku-
keppninni.
John Terry spilaði með Chelsea
í gær þrátt fyrir áföll í einkalíf-
inu. Hann var skotspónn áhorf-
enda sem bauluðu á hann er hann
hafði boltann. - hbg
Enska úrvalsdeildin:
Chelsea gerði
jafntefli
UNDIR SMÁSJÁ Vel var fylgst með John
Terry í gær og áhorfendur bauluðu á
hann. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES