Fréttablaðið - 16.02.2010, Síða 6
6 16. febrúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR
VIÐSKIPTI Nítján innlendar lögfræðiskrifstof-
ur og ráðgjafarfyrirtæki seldu Glitni þjónustu
fyrir meira en fimm milljónir króna á árinu 2009.
Kostnaður skilanefndar og slitastjórnar Glitnis
vegna innlendrar sérfræðiráðgjafar nam á árinu
732 milljónum króna, en í þeim tölum eru greiðsl-
ur til þeirra sem starfa í skilanefnd og slitastjórn
bankans.
Kostnaður við kaup á sérfræðiþjónustu utan
landsteinanna árið 2009 nam svo 2,6 milljörðum
króna. Kostnaður skilanefndar og slitastjórnar
Glitnis er um 200 milljónum meiri en kostnaður
skilanefndar Kaupþings, samkvæmt svari sem
blaðinu barst fyrir helgi. Innlendur kostnaður
skilanefndar Glitnis var í fyrra 162 milljónum
króna undir kostnaði skilanefndar Kaupþings, en
kostnaður utan landsteinanna var 314 milljónum
króna meiri en hjá Kaupþingi. - óká
Kostnaður skilanefndar og slitastjórnar Glitnis á árinu 2009 samkvæmt svari við fyrirspurn:
Nítján ráðgjafar fengu 732 milljónir króna
Skilanefnd og slitastjórn Glitnis
keypti mesta sérfræðiþjónustu
af eftirtöldum fyrirtækjum árið
2009:
Bandaríkin: O´Melveny & Myers
LLP, lögfræðistofa; Steptoe &
Johnson LLP, lögfræðistofa.
Bretland: Cadwalader, lög-
fræðistofa; Deloitte, endurskoð-
unar- og ráðgjafafyrirtæki;
Deutsche Bank Bretlandi; DLA
Piper, lögfræðistofa; Houli-
han Lokey, ráðgjafafyrirtæki;
KROLL, fjármálarannsóknarfyr-
irtæki; KEWS Clifford Change,
lögfræðistofa; Morrison &
Forrester, lögfræðistofa (einnig
í Bandaríkjunum); McGuire-
Woods, lögfræðistofa; Slaughter
& May, lögfræðistofa; Sungard,
fjármálaráðgjafar; UBS, fjár-
festingabankaráðgjöf (einnig í
Bandaríkjunum).
Írland: McCann FitzGerald,
lögfræðistofa.
Kanada: BCF, lögfræðistofa.
Noregur: Arntzen de Besche
Advokatfirma AS; Forretnings-
advokatene, lögfræðistofa.
Þýskaland: Schneider;
Schwegler, lögfræðistofa,
Ísland (þjónusta fyrIr fimm
milljónir króna eða meira):
AT ráðgjöf ehf.; BBA Legal ehf.;
BT sf.; Borgarlögmenn ehf.;
Deloitte hf.; Ernst & Young hf.;
Gagnavarslan ehf.; Jónatansson
& Co. lögfræðistofa ehf.; Juris
hf.; KPMG hf.; Krónos ehf.;
Lausnir lögmannsstofa sf.; LM
lögmenn sf.; Lex ehf.; Logos slf.;
Mörkin lögmannsstofa hf.; Lög-
fræðimiðstöðin ehf.; Lögfræði-
ráðgjöf Páls E slf.; Safn ehf.
SKILANEFND GLITNIS KEYPTI AF ÞESSUM
EFNAHAGSMÁL Héraðsdómurinn
sem kvað myntkörfulán ólögmæt
er vandaður og hefur víðtækt for-
dæmisgildi. Hann kann því að hafa
áhrif á hvort tveggja bílalán og
fasteignalán. Þessi sjónarmið heyr-
ast úr stétt lögmanna. Einn þeirra,
Einar Hugi Bjarnason, bendir á
að dómurinn kunni að opna leið-
ir fyrir lántakendur til að fá end-
urgreiðslu og veki spurningar um
hvað verði með gerða gjörninga,
svo sem þegar fólk hefur breytt
lánunum sínum úr erlendum og í
krónulán.
Talsmaður neytenda rakti í pistli
fyrir áramót að þeir sem nú þegar
hafa mátt þola nauðungarsölu eða
aðra fullnustuaðgerð, gætu átt
skaðabótarétt á hendur bönkum
eða öðrum fjármálastofnunum,
vegna ólögmætis lánanna.
En það sem gæti haft áhrif á
flesta er sá möguleiki að greiðslur
af myntkörfulánum, sem hafa um
það bil tvöfaldast síðan krónan féll,
þurfi að endurskoða. Lánþegi gæti
jafnvel átt endurgreiðslu inni.
„Svo eru þeir sem hafa nú þegar
greitt upp sín lán eða samið upp á
nýtt. Þeir hafa fært lán sín yfir í
íslensk lán á miklu verri kjörum en
þeir hefðu ella gert,“ segir Einar
Hugi, sem starfar á sviði skaða-
bótaréttar. Hann tekur undir með
héraðsdómi. Úrskurðurinn sé vel
rökstuddur og í samræmi við lög-
skýringargögn.
Sú hugmynd hefur heyrst að
dómstólar eigi að breyta mynt-
körfulánum í verðtryggð íslensk
lán. Einar Hugi er ekki sannfærð-
ur um þá niðurstöðu. „Dómstólar
munu líta til þessa verðtrygging-
arákvæðis. Það er það sem verður
dæmt ógilt, en önnur ákvæði stæðu
þá óbreytt,“ segir hann.
Sem fyrr segir telur talsmaður
neytenda að bankarnir geti orðið
bótaábyrgir gagnvart neytend-
um, fallist Hæstiréttur á niður-
stöðu héraðsdóms. Sumir neytend-
ur gætu krafist bóta, hvort sem
bankarnir vissu um ólögmæti lán-
anna eða ekki. Talsmaðurinn, Gísli
Tryggvason, telur ekki útilokað að
æðstu stjórnendur bankanna beri
meðábyrgð á þessu tjóni.
Viðmælendur úr hópi lögmanna
taka undir þetta. Stjórnendur
bankanna hafi sýnt gáleysi, sé rétt
að þeir hafi ekki kynnt sér lögin
betur.
klemens@frettabladid.is
Lánþegar gætu átt
endurgreiðslu inni
Dómur um myntkörfulán er sagður vel rökstuddur og með víðtækt fordæm-
isgildi. Hann gæti einnig átt við um húsnæðislán. Lánþegar gætu átt endur-
greiðslur inni og skaðabætur ef þeir hafa nú þegar borið tjón.
Blaðberinn
bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Slapp vel eftir veltur
Ökumaður slapp með lítils háttar
meiðsl þegar bíll hans lenti utan
vegar í Önundarfirði á sunnudag. Bíll-
inn fór nokkrar veltur og hafnaði ofan
í skurði um þrjátíu metra frá veginum.
Að sögn lögreglunnar á Ísafirði má
rekja slysið til hálku.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Nýtt rit um hvali
Nýlega kom út í ritröðinni NAMMCO
Scientific Publications sérhefti
tileinkað hvalatalningum á Norður-
Atlantshafi. Bók þessi hefur að
geyma þrettán ritrýndar ritgerðir
um útbreiðslu og fjölda hinna ýmsu
hvalategunda og breytingar sem átt
hafa sér stað á tímabilinu 1987-2001.
Rannsóknir íslenskra vísindamanna
eru fyrirferðarmiklar í ritinu.
NÁTTÚRA
Eru íslenskir stjórnmálamenn
upp til hópa spilltir?
Já 84,1%
Nei 15,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Fékkstu þér bollu á bolludag-
inn?
Segðu skoðun þína á visir.is
SJÁVARÚTVEGUR Ríflega 130 styrk-
umsóknir bárust til AVS rann-
sóknasjóðs í sjávarútvegi að þessu
sinni. Öll eiga verkefnin að hafa
það að markmiði að auka verðmæti
sjávarfangs.
Hafin er vinna við að meta
umsóknirnar og er vonast til að
það liggi fyrir í lok apríl hvaða
verkefni fá styrk að þessu sinni.
AVS sjóðurinn hefur 306 milljónir
úr að spila í ár en hafði 335 millj-
ónir 2009. Frá því sjóðurinn tók til
starfa árið 2003 hefur hann styrkt
hundruð verkefna með um 1,5
milljarði króna, sem þýðir í raun
að unnin hafa verið rannsókna- og
þróunarverkefni fyrir 3 milljarða
króna hið minnsta. Ástæðan er að
styrkir eru aldrei hærri en sem
nemur um helmingi af kostnaði
verkefnanna.
Að jafnaði hefur verið sótt um
rúmlega helmingi meira fé en sjóð-
urinn hefur til ráðstöfunar. Í ár er
hlutfallið nokkuð óhagstæðara
þar sem ráðstöfunarfé sjóðsins er
tæplega tíu prósentum minna en á
fyrra ári.
Í ár og í fyrra var lögð áhersla á
að umsækjendur kæmu með hnit-
miðaðar umsóknir sem gætu skil-
að störfum og verðmætum á sem
skemmstum tíma og hafa aldrei
borist fleiri umsóknir sem taka
á markaðssetningu og vöruþró-
un. Margar hugmyndir sem liggja
fyrir geta skapað spennandi tæki-
færi ef væntingar umsækjenda
ganga eftir.
- shá
Ríflega 130 umsóknir um styrki bárust til AVS rannsóknasjóðs í sjávarútvegi:
Þrír milljarðar í rannsóknir
ÞORSKELDI Fjörlmargir styrkir hafa runnið til þorskeldis frá AVS rannsóknasjóðnum á
undanförnum árum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BETRI RÉTTUR STENDUR
Viðskiptavinir Íslandsbanka, sem hafa „nýtt sér og munu nýta sér úrræði
bankans til höfuðstólslækkunar hafa ekki fyrirgert mögulegum betri rétti
sínum komist Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að gengistryggð bílalán séu
ólögleg“. Svo segir í tilkynningu frá bankanum.
Á fjórða þúsund viðskiptavina hafi nýtt sér höfuðstólslækkun vegna
bílalána.
SKULDSETT UPP Í RJÁFUR? Úrskurður héraðsdóms um að myntkörfulán séu ólög-
mæt gæti haft áhrif á ekki bara bílalán heldur einnig á húsnæðislán.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KJÖRKASSINN