Fréttablaðið - 16.02.2010, Side 46
38 16. febrúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
„Ég fæ mér kaffisopa og sneið
af randalínu eða nokkrar
skeiðar af hrærðu skyri. Ávextir
þykja mér líka lostæti og það er
alltaf hátíð í bæ þegar þeir eru
á boðstólum.“
Örvar Smárason Þóreyjarson í múm
LÁRÉTT
2. verð, 6. frá, 8. eyrir, 9. frjó, 11. gelt,
12. ríki í Suður-Ásíu, 14. kölski, 16.
tveir eins, 17. hyggja, 18. umfram, 20.
49, 21. sæla.
LÓÐRÉTT
1. sléttur, 3. samtök, 4. bullari, 5.
af, 7. dráttur, 10. orga, 13. sigað, 15.
ekkert, 16. efni, 19. mun.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. þarf, 6. af, 8. aur, 9. fræ,
11. gá, 12. nepal, 14. satan, 16. tt, 17.
trú, 18. auk, 20. il, 21. unun.
LÓÐRÉTT: 1. jafn, 3. aa, 4. ruglari, 5.
frá, 7. frestun, 10. æpa, 13. att, 15.
núll, 16. tau, 19. ku.
„Það skortir einfaldlega fag-
mennsku í þetta og á það var ég að
benda,“ segir Linda Björg Árna-
dóttir, fagstjóri fatahönnunar-
brautar Listaháskóla Íslands. Hún
sendi íslensku sjónvarpskonunni
Evu Maríu Jónsdóttur bréf eftir
úrslitakvöld Söngvakeppni sjón-
varpsins, laugardaginn 6. febrú-
ar, en í bréfinu fullyrti Linda að
kjólar Evu Maríu og Ragnhildar
Steinunnar væru þeir ljótustu sem
hún hefði séð í sjónvarpinu.
„Þau hjá RÚV bera ekkert skyn-
bragð á hvað er gott þegar kemur
að sjónlistum. RÚV hefur ákveðna
ábyrgð og því ber að sýna fag-
mennsku og kynna það besta sem
er í gangi hverju sinni en þarna
var einfaldlega hið gagnstæða
gert,“ segir Linda og bætir því
við að þetta sé ekki hennar per-
sónulega álit heldur væri bréf-
ið byggt á faglegum forsendum.
„Þetta snýst ekki bara um fata-
hönnunina heldur eru bæði leik-
myndirnar sem RÚV notast við
og förðunin ljót og hallærisleg,“
segir Linda.
Umræddir kjólar sem þær
Ragnhildur og Eva Maríu klædd-
ust voru hannaðir af Birtu Björns-
dóttur sem á og rekur verslun-
ina Júníform. Í yfirlýsingu sem
Birta sendi Fréttablaðinu kemur
fram að kjólarnir hafi fengið mjög
jákvæða umfjöllun, meðal annars
í færeysku dagblaði: „… þar sem
fjallað var um hve miklu betur
íslensku kynnarnir litu út held-
ur en þeir dönsku,“ segir í yfir-
lýsingu Birtu. „Ef til vill hefðum
við betur fylgt danska fordæm-
inu og verið í „nýjustu tísku“. Það
kemur mér spánskt fyrir sjónir
að aðjúnkt og fagstjóri við Lista-
háskóla Íslands komi fram í fjöl-
miðlum, með sterka sleggjudóma
sem þessa á íslenskan fatahönn-
uð, faglærðan eða ekki. Hönnuð
sem rekið hefur merki á Íslandi
í þetta langan tíma við sívaxandi
vinsældir. Það væri nú eflaust
áfall fyrir hana Lindu að vita hve
margir kaupa hönnun Júníform og
kannski áttar hún sig þá á eigin
hroka, í garð fatasmekks íslensku
þjóðarinnar. Ég vísa nú þessari
gagnrýni hennar aftur til föður-
húsanna, gagnrýni sem greinilega
ber sterkan keim af biturð henn-
ar, sökum þess að hennar nemend-
ur fengu ekki verkið.“
freyrgigja@frettabladid.is
Í HÁR SAMAN Linda Björg Árnadóttir, fagstjóri fatahönnunarbrautar Listaháskóla
Íslands, skammaði Evu Maríu Jónsdóttur og Ragnhildi Steinunni fyrir klæðnað þeirra
á úrslitakvöldi Söngvakeppni Sjónvarpsins. Hönnuður kjólanna, Birta Björnsdóttir hjá
Júníformi, segir þetta vera sleggjudóma og hroka hjá fagstjóranum.
„Þið stöllur voruð í einhverjum ljót-
ustu kjólum sem ég hef séð í kvöld
í sjónvarpinu.
Þið hjá RÚV berið þá ábyrgð
að sýna ávallt það sem er best í
menningu, hönnun og listum.
Ykkur tókst í kvöld að upphefja
eitthvað það versta sem er að gerast
í fatahönnun á Íslandi og sýna
stórkostlegan skort á fagmennsku
og það ekki í fyrsta skipti.
Þetta myndi ekki gerast hjá BBC.“
LJÓTUSTU KJÓLARNIR
„Ég var að eignast mitt annað barn og þetta var
komið gott bara,“ segir bassaleikarinn Hallur Halls-
son, sem er hættur í hljómsveitinni Leaves. „Ég er
líka að byrja að skrifa MA-ritgerðina mína í sagn-
fræði sem tekur drjúgan tíma.“
Í stað hans er kominn Elís Pétursson, eða Elli úr
Jeff Who?, og spilaði hann með sveitinni á tónleikum í
London fyrir skömmu.
Hallur stofnaði Leaves ásamt söngvaranum Arnari
Guðjónssyni, sem er sá eini sem er eftir af uppruna-
legum meðlimum. Hann viðurkennir að það sé svolít-
ið skrítið að vera hættur eftir níu ár í sömu hljómsveit
en segir að ákvörðunin opni alveg jafnmargar dyr og
hún hafi lokað á. Engin leiðindi voru í kringum brott-
hvarf hans. „Við erum náttúrulega góðir félagar og
það var allt í góðu þar. Ég var bara orðinn þreyttur á
að gera músík og vera alltaf háður því hvort einhver
fílaði þetta eða ekki.“
Hallur sér ekki eftir tímanum í Leaves og segir
hann einfaldlega hafa verið æðislegan. „Maður er
búinn að upplifa flest sem er hægt að upplifa í rokk-
inu, held ég. Þetta er búið að vera alveg ógeðslega
skemmtilegt.“
Söngvarinn Arnar sér eftir Halli en telur að Elli
sé rétti maðurinn til að fylla skarð hans. „Hann er
frábær bassaleikari og skemmtileg-
ur strákur. Hann passar rosa vel inn
í þetta.“
Ekki er langt síðan Kjartan úr
hljómsveitinni Ampop gekk líka til
liðs við Leaves. Spurður hvort hljóm-
ur sveitarinnar breytist ekki með
nýjum mönnum segir Arnar að það ger-
ist sjálfkrafa. „Við erum voða spenntir
fyrir þessu nýja efni sem við erum
að vinna. Þetta verður örugglega
nýr hljómur. Stefnan er að klára
plötu á þessu ári,“ segir hann. - fb
Elís tekur við af Halli í Leaves
BIRTA BJÖRNSDÓTTIR: GAGNRÝNI LINDU BER KEIM AF BITURÐ OG HROKA
Fagstjóri úthúðar kjólum
Evu Maríu og Ragnhildar
LEAVES Hallur Hallsson,
annar frá vinstri, er hættur
í Leaves. Hann er annar af
stofnmeðlimum sveitarinar.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
ELÍS Elli
verður bæði
í Leaves og
Jeff Who?
Myndband tónlistar-
mannsins Daníels
Ólivers við lagið Dr. Love
hefur notið mikilla
vinsælda á Youtube
undanfarna daga.
Yfir fimm þúsund
manns hafa horft
á myndbandið og er óhætt að segja
að skiptar skoðanir eru um ágæti
þess eins og sjá má í athugasemd-
um á Youtube. Athyglisvert er að
Daníel Óliver hefur sett inn fjöldann
allan af leitarorðum (e. „tags“) til að
auka áhorf á myndbandið. Meðal
leitarorðanna er „Páll Óskar“ en
ekki er vitað til þess að sú skæra
poppstjarna hafi komið nálægt lagi
Daníels.
Eins og Fréttablaðið
greindi frá í gær var
fjölmiðlamótið í knatt-
spyrnu haldið í Fífunni
í Kópavogi á laugar-
daginn. Ein hressilegasta
rimma keppninnar átti sér
stað milli hins íturvaxna
Ívars Guðmundssonar
af Bylgjunni og Ágústs
Bogasonar, útvarpsmanns hjá RÚV.
Ágúst lenti í klónum á tröllinu Ívari
með þeim afleiðingum að sauma
þurfti sex spor í höku hans. Ágúst
verður því með ör á svipuðum stað
og Harrison Ford.
Tónlistarkonan Lay Low heldur
tvenna tónleika í New York í kvöld
og annað kvöld. Þar ætlar hún að
kynna nýjustu plötu sína, Farewell
Good Night´s Sleep, sem kemur út
í Bandaríkjunum 9. mars. Stutt er
síðan Lay Low hitaði upp fyrir Emilí-
önu Torrini á tónleikum í Ástralíu og
Japan en núna fær hún loksins að
vera ein í sviðsljósinu. Eftir tónleik-
ana í New York spilar hún í Kaup-
mannahöfn og Stokkhólmi
14. og 15. mars þar sem
hún bregður sér reyndar
aftur í upphitunargírinn,
þá fyrir hina þekktu
bandarísku sveit, Dave
Matthews Band.
- hdm, fgg, fb
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Þeir eru að nota karakter sem þeir hafa ekkert
leyfi til að nota,“ segir Kjartan Þór Þórðarson,
framkvæmdastjóri Saga Film, um auglýsingar
smálánafyrirtækisins Kredia.
Saga Film, framleiðandi Nætur-, Dag- og
Fangavaktarinnar, fékk í gær lögbann á nýlegar
auglýsingar Kredia. Forsvarsmenn framleiðslu-
fyrirtækisins telja að karakterinn í auglýsing-
unum sé hinn seinheppni Hannes, pabbi Ólafs
Ragnars úr Vaktaseríunum þremur.
Kjartan segir að honum hafi brugðið þegar
hann sá auglýsingar Kredia, enda sé karakter-
inn í auglýsingunni alveg eins og Hannes. „Það
verður höfðað skaðabótamál. Auglýsingastofan
á að vita að svona er ekki eðlilegt að vinna hlut-
ina,“ segir Kjartan, Spurður hversu háa upphæð
farið verður fram á segir hann að það sé óvíst.
Júlíus Brjánsson túlkar karakterinn, sem kall-
ast Búbbi Guggi, í auglýsingunni. Hann segist
hafa verið beðinn um að leika svarthærðan, lág-
vaxinn mann. „Ég gerði það og þeir voru ákaf-
lega ánægðir með þennan lágvaxna, svarthærða
mann. Að öðru leyti veit ég ekki um hvað er
verið að rífast.“
Líturðu ekki svo á að þú hafir verið að túlka
Hannes?
„Ef Hannes er líka lágvaxinn og svarthærður.
Ég get ekki borið ábyrgð á því hvaða hugrenn-
ingar vakna við það.“
Valgeir Magnússon, framkvæmdastjóri aug-
lýsingastofunnar Pipar/TBWA, sem framleiddi
auglýsinguna vísar því á bug að ætlunin hafi
verið að herma eftir Hannesi. „Karakterinn
heitir Búbbi Guggu,“ segir hann. „Júlíus hefur
oft leikið svona karaktera. Hann lék karakter í
þáttaröð sem hét Fastir liðir eins og venjulega
sem hét Indriði. Hann hafði þessi karakterein-
kenni. Hann hafði líka sömu einkenni þegar
hann lék manninn hennar Bibbu á Brávallagöt-
unni.“ - afb
Lögbann á auglýsingar Kredia
BÚBBI GUGGU EINS OG HANNES? Saga Film hefur
fengið lögbann á auglýsingar Kredia sem sýna
þennan karakter, Búbba Guggu, slá lán.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Karl Júlíusson.
2 Á Langjökli.
3 Lee Bucheit.
LAGERSALA
Grensásvegi 8 - 108 Reykjavík
Allar upplýsingar í síma 517-2040
Mikið úrval af dömu- og herraskóm frá Gabor.
Götuskór Öryggisskór Herra-sandalar