Fréttablaðið - 09.03.2010, Síða 8

Fréttablaðið - 09.03.2010, Síða 8
8 9. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR 1 Hvaða Íslendingur fékk verðlaun fyrir kvikmyndatöku á kvikmyndahátíð í Prag? 2 Formaður hvaða stjórnmála- flokks vill kosningar í vor? 3 Hvaða lið er í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 38 Hafðu samband símiVerðbréfaþjónusta Arion banka er söluaðili sjóða Stefnis. Stefnir - Ríkisvíxlasjóður. Traustur kostur fyrir einstaklinga og fyrirtæki. 90% ríkisvíxlar og ríkisskuldabréf / 10% innlán Ríkisvíxlasjóður er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag sjóðsins er Stefnir hf. Vakin er sérstök athygli á að almennt fylgir áhætta fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum sjóða, t.d. getur fjárfesting rýrnað eða tapast að öllu leyti. Fyrri ávöxtun sjóða gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarávöxtun þeirra. Nánari upplýsingar um sjóðinn, þ.á m. nánari upplýsingar um áhættu við fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum hans, má finna í útboðslýsingu eða útdrætti úr útboðslýsingu sjóðsins, sem nálgast má á www.arionbanki.is/sjodir.Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta tryggir innlán að lágmarki fjárhæð sem samsvarar EUR 20.887 skv. lögum nr. 98/1999, um innstæðutryggingar og tryggingarkerfi fyrirfjárfesta. Samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 3. febrúar 2009 eru „innstæður í innlendum viðskiptabönkum og sparisjóðum og útibúum þeirra hér á landi tryggðar að fullu“.Með yfirlýsingu frá 9. desember 2009 lýsti ríkisstjórnin því yfir að yfirlýsingin frá 3. febrúar 2009 væri enn í fullu gildi og að yfirlýsingin yrði ekki afnumin fyrr en hið nýja íslenska fjármálakerfi, með breyttri umgjörð, hefði sannað sig og þá yrði gefinn aðlögunartími. Tryggingarsjóðurinn tryggir ekki tjón sem verður vegna taps á undirliggjandi fjárfestingum sjóða s.s. skuldabréfum eða víxlum. Sjá nánar lög nr. 98/1999, um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, og heimasíðu sjóðsins, www.tryggingarsjodur.is. STÓRIÐJA „Það myndi hjálpa okkur ef bæjar-yfir- völd myndu lýsa yfir stuðningi við málið,“ segir Ólafur Teitur Guðnason, upplýsingafulltrúi Alcan á Íslandi, um orð Rannveigar Rist, for- stjóra fyrirtækisins, í bréfi til bæjaryfirvalda í Hafnarfirði. Eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær lýsir Rannveig í bréfi sínu áhyggjum af áhrifum þess að íbúar í Hafnarfirði synji álverinu aftur um stækkun í endurtekinni íbúakosningu. „Stuðn- ingur bæjaryfirvalda myndi draga verulega úr þeim áhyggjum.“ skrifaði hún í bréfinu sem dag- sett er 28. janúar síðastliðinn. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri sagði aðspurður í Fréttablaðinu í gær að honum væri ekki ljóst hvort forstjórinn væri í bréfinu að biðja bæjar- yfirvöld um stuðning í aðdraganda væntanlegr- ar íbúakosningar sem enn á eftir að tímasetja. Upplýsingafulltrúi Alcan tekur af tvímæli um það eins og sjá má af ummælum hans hér að framan. Þá sagði bæjarstjórinn nauðsynlegt að fá fram skýra afstöðu Alcan varðandi nýju íbúa- kosninguna og að svör frá fyrirtækinu hafi ekki verið nógu afdráttarlaus. „Við áttum fund með bæjarstjóranum um það bil hálfum mánuði eftir að bréfið var sent og það var ekkert óljóst eftir þann fund af okkar hálfu,“ segir Ólafur Teitur hins vegar. „Rann- veig Rist var á fundinum og líka Evrópufor- stjórinn fyrir Rio Tinto Alcan. Þannig að þetta var gert með fulltingi móðurfélagsins og allt var klárt.“ Upplýsingafulltrúi Alcan segir það þannig nú vera bæjarins að ákveða hvort og hvenær eigi að fara í íbúakosningarnar sem fjórðung- ur atvæðisbærra manna í Hafnarfirði óskaði eftir. Fyrir sitt leyti vilji Alcan einfaldlega að kosið verði um óbreytta þá deiliskipulags- tillögu sem kosið var um 2007. Fyrirtækið sé hins vegar í öðrum framkvæmdum um þess- ar mundir og hafi enga skoðun á því hvenær kosningin fari fram. „Við getum ekki lýst því yfir að við förum í þetta verkefni ef það verður samþykkt í atkvæðagreiðslunni enda er þetta fjárfesting fyrir hundruð milljarða króna. En við höfum áhuga á að auka umsvif okkar á Íslandi og já í þessari atkvæðagreiðslu yrði af okkar hálfu mjög vel þegið fyrsta skref í því að það geti orðið í Hafnarfirði,“ segir Ólafur Teitur. gar@frettabladid.is Álversstækkun í Straumsvík óviss þótt íbúar samþykki Upplýsingafulltrúi Alcan aftekur að afstaða félagsins til nýrrar íbúakosningar Hafnfirðinga um stækkun álversins í Straumsvík sé óljós. Alcan muni þó ekki lýsa yfir fyrirfram að farið verði í þessa framkvæmd. ÁLVERIÐ Í STRAUMSVÍK Upplýsingafulltrúi Alcan á Íslandi segir forstjóra fyrirtækisins og forstjóra Rio Tinto Alcan í Evrópu hafa gengið á fund bæjarstjórans í Hafnarfirði fyrir nokkru og veitt svör við öllum spurningm bæjaryfir- valda. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HEILBRIGÐISMÁL Landlæknisemb- ættið hefur hafið átak þar sem fermingarbörnum og forráða- mönnum þeirra er bent á hættuna sem fylgir því að ungt fólk fari í ljósabekki. Skilaboðin eru frá Félagi íslenskra húðlækna, Geislavörn- um ríkisins, Krabbameinsfélag- inu, Landlæknisembættinu og Lýðheilsustöð. Þetta er sjöunda árið sem farið er í fræðsluherferð undir slag- orðinu „Hættan er ljós“, að því er fram kemur á vef Landlækn- is. „Vakin er athygli á því að börn og unglingar séu næmari en aðrir fyrir skaðlegum áhrifum geislun- ar frá ljósabekkjum og sól,“ segir þar og bent á að tíðni húðkrabba- meins hafi aukist mikið á síðustu áratugum. - óká Landlæknir gegn ljósanotkun: Ungt fólk fari ekki í ljósabekki Í SÓLBAÐI Dag er tekið að lengja og styttist í sumarið. Skiptar skoðanir eru um ágæti sólbaða. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES UPPLÝSINGATÆKNI Ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS) um að óumbeðnar tölvupóstsendingar sem Hin hliðin stendur fyrir séu ekki ólögmætar hefur verið stað- fest af úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála. Á vef PFS kemur fram að í ágúst í fyrra hafi ónefndur kærandi sent PFS erindi um óumbeðin fjar- skipti. „Kærandi gerir þær kröf- ur að úrskurðarnefnd staðfesti að tölvupóstsendingar þær sem henni hafi borist frá aðila sem kalli sig www.hinhlidin.com, feli í sér óum- beðin fjarskipti og að komið verði í veg fyrir umræddar tölvupóst- sendingar,“ segir í úrskurðinum. Fram kemur í kærunni að kær- andinn þurfi að sitja undir því að vera á síðunni gerður tortryggileg- ur á ýmsa vegu vegna þess eins að hafa afþakkað tölvupóstana. Vefur Hinnar hliðarinnar er tileinkaður deilumálum foreldra um forsjá barna. Þar er haldið úti svörtum lista yfir hina og þessa sem sagðir eru hafa unnið gegn réttindum barna. Niðurstaða PFS er að sending- arnar brjóti ekki gegn fjarskipta- lögum þar sem þau „uppfylli ekki skilyrði umrædds ákvæðis um beina markaðssetningu“. - óká KÆFA Rafrænn ruslpóstur er gjarnan nefndur „kæfa“ sem er þýðing á enska orðinu „spam“ yfir sama hlut. Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála staðfestir ákvörðun PFS: Sendingar Hinnar hliðarinnar í lagi LÖGREGLUMÁL Utalsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit í íbúð í Austurborginni á föstudag. Um var að ræða um 300 grömm af amfetamíni og ámóta magn af marijúana, auk kannabisplantna. Húsráðandi, karlmaður á fer- tugsaldri, var handtekinn og ját- aði hann aðild sína að málinu. Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu. Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust inn upplýsingar um fíkniefnamál. -jss Karlmaður handtekinn: Fíkniefni fund- ust við húsleit VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.