Fréttablaðið - 09.03.2010, Blaðsíða 10
10 9. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Óskast í 101 Reykjavík
Einbýlishús
Staðgreiðsla fyrir vandað hús á góðum stað
Svar sendist á hus101reykjavik@gmail.com
EVRÓPUSAMBANDIÐ, AP Fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
er að hefja viðræður við evruríkin
sextán um stofnun gjaldeyrissjóðs
Evrópu, sem myndi hafa svipað
hlutverk og Alþjóðagjaldeyrissjóð-
urinn. Þeim viðræðum á að ljúka í
byrjun júlí.
Tilgangurinn er að tryggja að
efnahagsáföll verði ekki til þess að
grafa undan sameiginlegum gjald-
miðli ríkjanna, evrunni, með því
að samhæfa betur efnahagsstjórn
ríkjanna og hafa betra eftirlit með
þróun efnahagsmála þeirra.
Ætlunin er ekki sú að gera ríkj-
unum kleift að útvega Grikklandi
neyðaraðstoð til að komast út úr
kreppunni þar í landi, heldur er
markmiðið að draga lærdóm af því
sem gerðist þar.
„Hugmyndin er sú að ástand eins
og í Grikklandi skapist ekki aftur
og við verðum að styrkja efna-
hagslega samvinnu. Það er for-
gangsmál,“ segir Amadeu Altafaj
Tardio, talsmaður framkvæmda-
stjórnarinnar.
Embættismenn Evrópusam-
bandsins neituðu því ekki að þessi
nýi gjaldeyrissjóður yrði sambæri-
legur Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í
Washington. Sá sjóður hefur það
hlutverk að fylgjast með efnahags-
ástandi þeirra 186 ríkja, sem eiga
aðild að honum. Hann varar þau
við ef ástand efnahagsmála er að
komast á hættustig, veitir ráðgjöf
og lán ef á þarf að halda.
Engar upplýsingar fengust hjá
framkvæmdastjórninni um það
hvenær reiknað sé með að sjóður-
inn verði stofnaður, né heldur um
það hve langt viðræður ríkjanna
um þetta mál eru komnar. Ekki
eru heldur komnar fram neinar
upplýsingar um það hve miklu fé
þessi sjóður ætti að hafa yfir að
ráða, né hvernig framlögum í hann
verði háttað.
Þótt kreppan í Grikklandi sé
erfið viðureignar, þá hafa fleiri
Evrópusambandsríki átt í miklum
efnahagslegum erfiðleikum, þar á
meðal bæði Portúgal og Spánn.
Leiðtogar margra Evrópusam-
bandsríkja, ekki síst Angela Merkel
Þýskalandskanslari, hafa lagt ríka
áherslu á að Grikkland eigi ekki að
þurfa að leita til Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins. Það væri bæði álitshnekk-
ir fyrir Evrópusambandið og gæti
grafið undan trúverðugleika evr-
unnar. gudsteinn@frettabladid.is
Evrópusambandið stofnar
evrópskan gjaldeyrissjóð
Evrópusambandið hyggst stofna gjaldeyrissjóð fyrir evruríkin sem fengi það hlutverk að styðja við evruna
og samhæfa betur efnahagsstjórn landanna. Er ekki stofnaður til að útvega Grikkjum neyðaraðstoð.
ÓFREMDARÁSTAND Á GRIKKLANDI Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir nauðsynlegt að draga lærdóm af ástandinu á
Grikklandi. Það sé forgangsmál að styrkja efnahagslega samvinnu innan sambandsins. NORDICPHOTOS/AFP
NOREGUR Tvær níu ára stúlkur
drukknuðu á sunnudag skammt
frá Kristjánssundi í Noregi þegar
stór alda hrifsaði þær burt. Tví-
burasystir annarrar þeirra var
með þeim og sá atburðinn.
Önnur þeirra fannst látin í fjör-
unni um kvöldmatarleytið en hin
fannst rúmum klukkutíma síðar.
Þær höfðu verið að leika sér á
sjávarklettum þegar óhappið
dundi yfir.
Stúlkurnar bjuggu í nágrenninu
og gengu í skóla í Kristjánssundi.
Minningarathöfn var haldin í skól-
anum í gær. - gb
Sviplegt slys í Noregi:
Tvær stúlkur
drukknuðu
DÝRAHALD Hundar í dreifbýli Borg-
arbyggðar verða ekki skráningar-
skyldir eins og lagt hafði verið til.
Hins vegar þurfa eigendur þeirra
að fara með þá í ormahreinsun
einu sinni á ári og láta tryggja þá.
Skessuhorn greinir frá þessu.
Þetta kemur fram í drögum að
reglum um hunda- og kattahald í
sveitarfélaginu sem bæði byggða-
ráð og umhverfis- og landbúnaðar-
nefnd hafa samþykkt. Sveitar-
stjórnin á eftir að samþykkja
reglurnar. Samkvæmt reglunum
verður eigendum hunda í dreifbýli
skylt að framvísa tryggingavott-
orði verði farið fram á það. - th
Dýrahald í Borgarbyggð:
Sveitahundar
í ormaskoðun
MAÐURINN Í STAURNUM Í Mont-
martre-hverfi í París mátti um helgina
sjá þennan fima mann leika sér að
bolta hangandi í ljósastaur.
NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLUMÁL Þeir gróðurhúsalampar sem lögregla
hefur lagt hald á þegar kannabisræktanir eru
stöðvaðar fara til Ríkiskaupa, eftir að hafa verið
gerðir upptækir með dómi. Þar eru þeir seldir eins
og aðrir óskilamunir. Andvirðið rennur í ríkissjóð.
Þetta segir Stefán Eiríksson lögreglustjóri á
höfuðborgarsvæðinu.
Fjöldinn allur af gróðurhúsalömpum er í
geymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, eins
og Fréttablaðið hefur greint frá. Þeir hafa ásamt
öðrum viðamiklum búnaði verið gerið upptækir
þegar kannabisræktanir hafa verið teknar. Búnað-
inn þarf að geyma þar til dómur er genginn í við-
komandi máli.
Stórum hluta þeirra lampa sem teknir hafa
verið hjá kannabisræktendum hefur verið stolið
úr gróðurhúsum. Nýverið sagði Fréttablaðið frá
gróðurhúsaeiganda í Hveragerði sem fimmtíu
gróðurhúsalömpum hafði verið stolið frá.
„Ef lamparnir eru auðkenndir með einhverjum
hætti er þeim skilað til eigenda,“ segir Stefán. „Séu
þeir nothæfir en ómerktir og ekki hægt að finna
eigendur þeirra er þeim ráðstafað af Ríkiskaupum,
eins og öðrum óskilamunum.“ - jss
FJÖLDI LAMPA Benedikt H. Benediktsson lögreglufulltrúi með
einn þeirra fjölmörgu lampa sem eru í geymslu hjá lögreglu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Gróðurhúsalömpunum er ráðstafað eftir dóm í viðkomandi kannabismáli:
Óskilalampar til Ríkiskaupa
SVISS, AP Öreindahraðall kjarn-
eindarannsóknarstöðvarinn-
ar CERN í Sviss verður kominn
á fullt skrið
síðar í þess-
um mánuði og
búist er við
mikilvægum
vísindalegum
nýjungum á
árinu.
„Við munum
opna dyrnar að
nýrri eðlisfræði
í lok þessa árs,“
sagði Rolf Dieter-Heuer, fram-
kvæmdastjóri CERN, þegar hann
ræddi við fréttamenn í gær.
Hraðallinn var fyrst settur af
stað haustið 2008, en bilaði þá
fljótlega.
Vonast er til að hann gefi vís-
indamönnum innsýn í fyrstu
augnablik heimsins eftir Stóra
hvell. - gb
Öreindahraðallinn í Sviss:
Kemst á skrið í
þessum mánuði
ROLF DIETER-
HEUER
JAFNRÉTTI Fimmtán hundruð konur
deyja dag hvern vegna meðgöngu
eða fæðingar, langflestar í Afríku
sunnan Sahara. Á kvennaþingi
Sameinuðu þjóðanna kom fram
rík krafa um að þetta þyrfti að
breytast.
Eitt af átta þúsaldarmarkmið-
um Sameinuðu þjóðanna snýr að
því að draga úr mæðradauða og að
því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu voru flestir á því að nú þyrfti
virkilega að gefa í ef ná ætti sett-
um markmiðum fyrir árið 2015.
„Stemningin hér er mjög mis-
munandi eftir
því hver talar,
það er deilt um
raunverulegan
árangur í mál-
efnum kvenna.
Sumir v i lja
meina að búið
sé að ná heil-
miklum árangri
en aðrir ekki,“
segir Steinunn
Gyðu- og Guð-
jónsdóttir, framkvæmdastýra
UNIFEM á Íslandi, sem sat þing-
ið. „Vinnu að friði, öryggi og sjálf-
bærri þróun í heiminum er stefnt
í voða ef ekki er sérstaklega unnið
að því að frelsa konur og stúlkur
undan misrétti og fátækt,“ sagði
Ban Ki-Moon, aðalritari Samein-
uðu þjóðanna, á þinginu.
Á þessu ári eru fyrirhugaðar
breytingar á skipulagi jafnréttis-
mála innan SÞ.
Nokkrar stofnanir sem nú sinna
jafnréttismálum verða sameinað-
ar til þess að styrkja framvindu
og árangur í málaflokknum.
- sbt
Kvennaþing SÞ segir friði og öryggi stefnt í voða nema hagur kvenna batni:
Draga verður úr mæðradauða
STEINUNN
GYÐU- OG
GUÐJÓNSDÓTTIR