Fréttablaðið - 09.03.2010, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 9. mars 2010 11
Fjármálafræðsla
fyrir þig.
Hafðu samband
Næstu námskeið
Reykjavík — 10. mars
Fjármál heimilanna.
Reykjavík — 11. mars
Lífeyrismál á mannamáli.
Reykjavík — 17. mars
Greiðslur úr lífeyrissjóðum.
Hvað ber að hafa í huga?
Akureyri — 18. mars
Lífeyrismál á mannamáli.
Kynntu þér röð námskeiða
á arionbanki.is
FJÁRmál Arion banka
FJÁRmálum
Komdu og njóttu góðra veitinga í bland við fróðleik
sem kemur sér vel.
Allir velkomnir - Skráðu þig á arionbanki.is.
Ókeypis aðgangur.
arionbanki.is
Arion banka 444 7000
NÍGERÍA, AP Svo virðist sem árás
á kristna menn í þremur þorpum
í Jos-héraði í Nígeríu hafi verið
hefndaraðgerðir vegna árásar
á múslima í sama héraði fyrir
nokkrum vikum.
Árásarmenn vopnaðir sveðjum
myrtu yfir tvö hundruð manns,
þar af fjölmörg börn. Eitt fjög-
urra daga gamalt barn var í hópi
hinna látnu.
Árásirnar á múslima fyrir
tæpum tveimur mánuðum kost-
uðu meira en 300 manns lífið.
Héraðið Jos er miðsvæðis í
Nígeríu þar sem fjöldi ólíkra
þjóðernishópa býr. Átök milli
kristinna og múslima þar hafa
oft verið harðvítug. - gb
Óeirðir í Nígeríu:
Blóðug átök
þjóðernishópa
HEFNDARAÐGERÐ Fjöldi manns safnað-
ist saman við lík hinna föllnu.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað-
fest úrskurð héraðsdóms þess
efnis að ekki skuli leggja réttar-
farssekt á tvo fréttamenn Stöðv-
ar 2 fyrir að flytja fréttir af því
sem fram fór í lokuðum réttar-
höldum.
Fréttamennirnir, Andri Ólafs-
son og Breki Logason, sögðu
fréttir af mansalsmálinu svo-
kallaða, en þau réttarhöld eru
lokuð öðrum en málsaðilum og
er lögum samkvæmt bannað að
greina frá því sem þar fer fram.
Dómurinn kemst að því að
bannið nái aðeins til þeirra sem
réttarhöldin sitja. Auk þess sé
það ekki ríkissaksóknara að fara
fram á réttarfarssektir. - sh
Dómur Hæstaréttar:
Fréttamenn
ekki sektaðir
VIÐSKIPTI Kaupsamningum á höfuðborgarsvæð-
inu fjölgaði um nærri fimmtung, 18,5 prósent,
milli janúar og febrúar, samkvæmt nýbirtum
upplýsingum Fasteignaskrár Íslands.
„Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fast-
eignir við sýslumannsembættin á höfuðborgar-
svæðinu í febrúar 2010 var 186. Heildarvelta
nam 5,8 milljörðum króna og meðalupphæð á
hvern kaupsamning var 31,1 milljón króna,“
segir á vef Fasteignaskrár. Velta jókst um 27,5
prósent milli mánaða í febrúar á höfuðborgar-
svæðinu.
„Þegar febrúar 2010 er borinn saman við
febrúar 2009 fjölgar kaupsamningum um 28,3
prósent og velta eykst um 33,9 prósent.“
Þá kemur fram að svonefndir makaskipta-
samningar hafi verið 41 í febrúar 2010 eða
tæpur fjórðungur af öllum samningum, heldur
færri en í fyrri mánuði. Makaskiptasamningur
er þegar hluti kaupverðs er greiddur með ann-
arri fasteign.
Á Akureyri var þinglýst 24 kaupsamningum
í febrúar, samanborið við 12 í janúar. Í febrúar
í fyrra var þar þinglýst 14 samningum, þannig
að vísbending virðist um nokkra aukningu,
þótt ekki séu margir samningar á bak við
sveifluna.
Í Árborg fækkar hins vegar samningum um
helming, voru átta í febrúar, en sextán mánuði
fyrr. Í febrúar í fyrra voru þeir ellefu. - óká
Í REYKJAVÍK Svona hefur verið umhorfs í borginni
síðustu daga þótt þíða hafi nú tekið við. Annað mál er
hvort þíða sé á fasteignamarkaði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Nýjar tölur Fasteignaskrár ríkisins sýna aukna hreyfingu á fasteignamarkaði:
Sala fasteigna eykst um nær fimmtung
Ferðabann á skáldkonu
Simin Bhbahani, 82 ára gamalli
íranskri skáldkonu, hefur verið bann-
að að fara til Frakklands þar sem átti
að heiðra hana á kvennadeginum
í gær fyrir að berjast fyrir jafnrétti
kynjanna í Íran.
ÍRAN
DÓMSMÁL Ólafur Gottskálksson,
fyrrverandi atvinnumaður í
knattspyrnu og landsliðsmark-
vörður, hefur verið dæmdur í tíu
mánaða fangelsi fyrir húsbrot og
rán. Hann ruddist ásamt öðrum
manni, Ólafi Darra Sturlusyni,
inn á heimili manns í Reykjanes-
bæ og beitti hann ofbeldi. Ólafur
Darri fékk tólf mánaða dóm enda
taldist hann hafa rofið skilorð.
Mönnunum var gert að greiða
fórnarlambinu 375 þúsund krón-
ur í miskabætur auk málskostn-
aðar.
Húsbrot í Reykjanesbæ:
Dæmdir fyrir
húsbrot og rán
Kosningalög sett
Herforingjastjórnin í Búrma tilkynnti
í gær að kosningalög hafi tekið gildi
og verða þau birt í dag. Stjórnin hefur
árum saman lofað að boða til kosn-
inga, en jafnan dregið það.
BÚRMA