Fréttablaðið - 09.03.2010, Page 18
Eru sólgleraugun klár? Sólarvörnin og froska-
lappirnar líka? Gott, því þín bíða fjórir suð-
rænir og seiðandi áfangastaðir. Sól, strendur,
menning, saga, tíska, sundlaugar, tapas,
pasta, vatnsrennibrautir, meiri sól og enn
fleiri strendur.
Það er eiginlega sama hvort þú vilt
afslöppun á sólarströnd með fjölskyldunni
eða hámenningu fyrir lengra komna, þú
finnur allt sem hugurinn girnist á suðurslóðum
– og veðurspáin er fín.
Ein með öllu. Fjölbreytt menning, einstakur arkitektúr, litríkt
mannlíf og urmull af spennandi og framandi veitingahúsum
þar sem matgæðingar hreinlega tapa sér í tapas.
Það elska allir Barcelona – hún er bara þannig borg.
Pastasósa er kannski það sem kemur fyrst upp í hugann
þegar Bologna er nefnd á nafn, en borgin hefur nú upp á
talsvert meira að bjóða. Fátt er ljúfara en að sitja á kaffi-
húsi á fögru torgi í miðborginni og virða fyrir sér mann-
lífið og fallegan arkitektúrinn. Þeir sem vilja vera meira
á ferðinni eru ekki á flæðiskeri staddir, því stutt er til
Toscana-héraðsins, Flórens er í u.þ.b. 1 klst. fjarlægð og
sóldýrkendur geta skroppið austur til Rimini.
Bergamo er yndisleg lítil borg við fjallsrætur Alpanna. Þar
ríkir skemmtileg miðaldastemning og skartar borgin fjölda
fagurra og fornra listmuna. Bergamo er aðeins steinsnar
frá hátískuborginni Mílanó sem er auðvitað ein af mest
spennandi borgum heims.
Það er gaman á Alicante. Þar er eiginlega alltaf gott veður
og afslappað strandlífið er svo sannarlega ljúft. Fjörugar
fjölskyldur eru líka vel geymdar á Alicante, því afþreyingin
er þar sérlega fjölbreytt. Strendur, sund, golf, skemmti-
garðar, fjölskylduvæn veitingahús og hvaðeina.
Fáðu hlýju í kroppinn
Barcelona
Bologna
Bergamo
Alicante
Sól s
Vindsængur og sólarvörn, sundboltar
og sólbakaðir, rammvilltir túristar.
Búðarráp, letilíf, lautarferðir,
límonaði og huggulegheit alls staðar.
Glás af píum í bleikum bikiníum
og blautir drykkir með regnhlífum.
Í sól og sumaryl, hjá
mér situr hún elsku Diljá!
Frí fyrir alla fjölskylduna
www.icelandexpress.is