Fréttablaðið - 09.03.2010, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 09.03.2010, Blaðsíða 29
krabbamein og heilsa ● fréttablaðið ●ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2010 5 ● LÆRÐU AÐ ÞEKKJA BRJÓST ÞÍN Konur ættu að skoða brjóst sín einu sinni í mánuði og vera meðvitaðar um brjóstakrabbamein. Mörgum konum finnst þó erfitt að átta sig á hvort eitthvað sé óeðlilegt, en brjóst geta verið þrymlótt og ójöfn án þess að nokkuð sé að. Sniðugt getur verið að kortleggja brjóstin til að átta sig betur á hvað er konunni eðlilegt og halda dagbók. Ákveðin svæði brjósta hafa sín einkenni sem gott er að hafa til hliðsjónar. Til dæmis eru brjóstin oft hnútótt eða þrymlótt nálægt hol- höndinni. Svæðið undir brjóstunum er oft eins og sandur eða smásteinar séu þar undir og undir geirvörtunni getur svæðið verið kornótt. Mikilvægast er þó að hver kona læri að þekkja sín brjóst því engin eru þau eins. Best er að þreifa brjóstin nokkrum dögum eftir að blæðingum lýkur þegar þau eru ekki aum. Hnútar geta komið fram á vissum tímum í tíðarhringnum og horfið svo aftur en hafa skal samband við lækni ef einhverj- ar breytingar í brjóstinu hverfa ekki að heilum tíðarhring liðnum eða virðast ágerast. Heimild: www.brjostakrabbamein.is Sniðugt er fyrir konur að halda dagbók um brjóstin til að átta sig strax á ef eitthvað breytist. NODICPHOTOS/GETTY Krabbamein er önnur helsta dánarorsök karla og kemur fast á hæla hjarta- og æðasjúkdóma. Á eftir fylgja slys og heilablóð- fall. Flestir karla deyja úr lungna- krabbameini en blöðruhálskirt- ils- og ristilkrabbamein fylgja þar á eftir, að því er fram kemur á MayoClinic.com. Til að forðast krabbamein ætti að hafa eftirfar- andi atriði í huga: ● Ekki reykja eða nota tóbak. ● Forðastu óbeinar reykingar. ● Hreyfðu þig á hverjum degi. ● Haltu þér í kjörþyngd. ● Borðaðu mikið af ávöxtum og grænmeti og forðastu fiturík- an mat. ● Forðastu sólböð og notaðu sólar- vörn á góðviðrisdögum. ● Drekktu áfengi í hófi. ● Farðu reglulega í krabbameins- skoðun. ● Forðastu geislun og loftmeng- un. - ve Varnir gegn krabbameini Mikilvægt er að halda sér í kjörþyngd, forðast fituríkan mat og borða mikið af ávöxtum og grænmeti. ● GENGIÐ TIL STYRKT- AR GRUNNRANNSÓKN- UM Styrktarfélagið Göngum saman leggur áherslu á hreyf- ingu, bæði til heilsueflingar og sem tæki til að afla fjár til styrkt- ar grunnrannsóknum á krabba- meini í brjóstum. Hugmynda- fræði Göngum saman byggir á þremur hugtökum: grasrót, hreyfingu og grunnrannsókn- um, sem tengjast innbyrðis. Öllum er velkomið að ganga í félagið og er hægt að skrá sig á heimasíðu þess www.gongum- saman.is. Hvað getur NutriLenk gert fyrir þig? Með árunum rýrnar brjóskvefurinn sem veldur því að liðirnir slitna. Þetta er náttúrulegt ferli. Mjög margir finna fyrir miklum óþægindum þegar beinin byrja að núast saman, sérstaklega í stóru liðamótum eins og í mjöðmum, hryggjar-og hnjáliðum. Þess vegna er allt tilvinnandi að styrkja liðbrjóskið á náttúrulegan hátt. Náttúrulegt byggingarefni fyrir liðbrjóskið og beinin NutriLenk inniheldur náttúrulegt byggingarefni fyrir brjóskvefinn og er mjög góður valkostur fyrir þá sem þjást af minnkuðu liðbrjóski. Unnið úr sérvöldum fiskibeinum úr hafinu sem hefur sýnt fram á að vera fyrsta flokks byggingarefni til að styðja við brjóskvefinn og viðhalda honum. Vara ársins! NutriLenk hefur hjálpað fjölmörgu fólki. NutriLenk var valið heilsuvara ársins 2004 í Noregi. NutriLenk er 100% náttúruleg vara sem er mjög gagnleg þeim sem þjást af brjóskvefsrýrnun. Prófið sjálf-upplifðu breytinguna! Liður með slitnum brjóskvef Heilbrigður liður NÁTTÚRULEGT FYRIR LIÐINA „Ég hef verið nokkuð slæm í hnjánum síðastliðin ár, en einnig hefur hægri öxlin verið að fara með mig og var það orðið þannig að ég gat ekki lyft hendinni hærra en í axlarhæð og fylgdi þessu mikill sársauki Ég hætti að vinna fyrir tæpum tveimur árum og ákvað því að byrja að stunda líkamsrækt sem ég hef stundað samviskusamlega, en hægri öxlin skánaði lítið. Í ágúst 2009 ákvað ég að prófa NutriLenk töflurnar, þar sem ég hef heyrt marga hrósa því. Fann fljótlega mikinn mun Innan tveggja vikna var ég farin að finna mikinn mun,  en höndin fór að virka mun betur og nokkrum vikum síðar var ég farin að geta lyft hendinni upp yfir höfuðið. Ég bý á þriðju hæð, en þar sem að hnén voru orðin illa farin var ég hætt að geta gengið upp stigana og tók því lyftuna. Eftir að ég fór að taka inn NutriLenk finn ég ekki lengur fyrir í hnjánum og geng sársaukalaust upp í íbúðina mína Ótrúlegt en satt   Skemmtilegt er að segja frá því að fyrir síðustu jól hreingerði ég eldhússkáp- ana og það með hægri hendinni, sem ég var hreinlega búin að telja af, ef svo má segja. NutriLenk er meiriháttar efni sem ég hvet allt fólk sem þjáist af sliti í liðum til að prófa. Ég þarf svo sannar- lega ekki að sjá eftir því“ segir Sigríður kát í bragði. Gat illa hreyft hægri höndina Sigríður Friðþjófsdóttir, sem unnið hefur við hárgreiðslu síðastliðin 50 árin, hefur kynnst álaginu sem fylgir starfsgreininni m.a. í fótleggjum og axlarliðum. NutriLenk er fáanlegt í flestum apótekum, heilsubúðum, Fræinu Fjarðarkaupum, stærri Hagkaupsverslunum, Þín verslun Seljabraut og Vöruvali Vestmanneyjum NUTRILENK NÁTTÚRLEGT BYGGINGAREFNI FYRIR BRJÓSKVEFINN Nýtt og endurbætt NutriLenk Búið er að bæta út í formúluna D-, C vítamíni, kalk i og mangan til þess að styrkja b einin og vefi líkamans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.