Fréttablaðið - 09.03.2010, Síða 30
9. MARS 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Stuðningsfélagið Kraftur var stofnað 1. október 1999.
Að sögn Huldu Bjarnadóttur, framkvæmdastjóra
Krafts, var ákveðið að halda upp á tíu ára afmæli fé-
lagsins með veglegri dagskrá sem hófst á sjálfan af-
mælisdaginn á síðasta ári og stendur fram í október
á þessu ári.
„Við fórum í sólargöngu á sjálfan afmælisdaginn til
að vekja athygli á krabbameini og fá fólk til að ganga
sólarmegin í lífinu,“ rifjar Hulda upp og bætir við að
félagið hafi einnig staðið fyrir málþingi á afmælinu
þar sem einstaklingar sem hafa greinst með krabba-
mein og starfsmenn innan heilbrigðisstéttarinnar
fjölluðu um krabbamein frá ýmsum hliðum. „Eitt um-
fjöllunarefnið var til dæmis þetta nýja líf sem skap-
ast við greiningu krabbameins, óháð því hvernig hver
og einn tekur á því.“
Hulda segir félagið vera með öflugt stuðningsnet.
„Við viljum nýta okkur þá breytingu sem verður á lífi
okkar og þá reynslu sem við höfum fengið í baráttunni
við krabbamein til að aðstoða aðra,“ bendir hún á, en
auk uppákoma og stuðnings við krabbameinsgreinda
hefur félagið staðið fyrir forvörn og fræðslu með mat-
reiðslunámskeiðum. Síðast gaf félagið út Dagbók rokk-
stjörnu – þrjú mögnuð ár í lífi fallins flugstjóra sem
fjallar um glímu Atla Thoroddsen við krabbamein.
Fleira stendur svo til á afmælisárinu. „Við ætlum
meðal annars að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu,
gefa út kynningarbækling fyrir aðstandendur krabba-
meinsgreindra, heimsækja framhaldsskóla, standa
fyrir ungliðaferð í Bergheima og stofna verkefnasjóð
fyrir ungt fólk í meðferð, sem það getur sótt í til að
hrinda í framkvæmd hugmyndum meðan á meðferð
stendur og þannig látið gott af sér leiða.“ - rve
Horfum til reynslunnar
Hulda segir mikla breytingu hafa orðið á viðhorfi til krabba-
meins síðustu ár. Ekki sé lengur feimnismál að ræða um
sjúkdóminn eða litið á hann sem dauðadóm. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ragnar Davíðsson fann fyrir
hæsi sumarið 1994 sem kom
sér illa þar sem hann var með
hlutverk í uppfærslu Þjóð-
leikhússins á óperunni Valdi
Örlaganna eftir Verdi. Tveimur
árum síðar kom í ljós að hæsin
stafaði af æxli sem var vaxið
í gegnum barkakýlið og batt
þar með enda á söngferil hans.
„Þetta var svolítið kaldhæðnis-
legt því óperuverkið sem ég söng
í þegar ég fann fyrir fyrstu ein-
kennunum fjallaði um hve lífið
virðist oft ósanngjarnt. Á þessum
tíma var ég á seinni hluta náms
míns í óperusöng og ég hafði notið
þeirrar gæfu að fá ýmis tækifæri,
bæði hjá Íslensku óperunni og sem
einsöngvari við ýmsar athafnir
og framtíðin lofaði góðu þannig
að þetta var mikið högg,“ segir
Ragnar.
Næstu tvö árin ágerðist hæsin
án þess að nokkur gerði sér grein
fyrir af hverju hún stafaði. Þegar
það loks uppgötvaðist var æxlið
orðið fimm sentímetrar á lengd
og rúmlega tveggja sentímetra
þykkt. Skyldi engan undra að
Ragnar hafi verið aumur í hálsin-
um allan þennan tíma. „Mér var
tjáð að geislameðferð myndi að
öllum líkindum lækna mig en slík
væri raunin í áttatíu prósent til-
fella. Í kjölfarið gekkst ég undir
geislameðferð á hálsi og svæðinu í
kringum barkakýlið. Í fyrstu fann
ég ekkert fyrir meðferðinni en
smám saman brenndu geislarnir
slímhúðina þannig að ég gat varla
kyngt neinu fyrir sársauka. Auk
þess höfðu geislarnir slæm áhrif
á skjaldkirtilinn og taugakerfið,
enda léttist ég á þessu tímabili
um sautján kíló,“ segir Ragnar og
bætir við að líkamlegi sársaukinn
hafi þó ekki verið neitt á við sjokk-
ið að vera tilkynnt að fjarlægja
þyrfti raddböndin og barkakýlið.
„Í ljós kom að mistök höfðu
verið gerð í upphafi sjúkdóms-
greiningar, eitthvað sem hefði
skipt sköpum að vita í upphafi,
með þessum afleiðingum. Þar sem
langt var liðið á meðferðina voru
aðrir kostir ekki í boði úr því sem
komið var. Þetta var einn erfiðasti
hlutinn við það að greinast með
krabbamein enda rothögg á allar
mínar fyrirætlanir og framtíðar-
sýn. Í kjölfarið tók svo við löng að-
lögun að breyttu lífsmynstri og ég
gekk í gegnum litróf tilfinninga,
vonleysis og vantrúar, auk þess
sem ég þurfti að læra að tala upp
á nýtt.“
Ragnar ákvað að halda áfram í
námi en þurfti að söðla um vegna
breyttra aðstæðna og fór í háskóla-
nám í viðskiptum og rekstri. Í dag
er Ragnar ráðgjafi hjá útboðsdeild
Ríkiskaupa.
Í mótlætinu segist Ragnar hafa
lært það að þegar dyr lokast opn-
ast gluggi og einnig hve mikil-
vægt það er að eiga góða að sem
og vonina. „Í mínu tilfelli voru það
konan mín og börnin sem stóðu
með mér í gegnum allt saman og
einnig var hjálplegt að ræða við þá
sem gengið höfðu í gegnum svip-
aða reynslu. Eftir að ég greindist
með krabbamein tók ég þá ákvörð-
un að lifa með því, sætta mig við
orðinn hlut og halda áfram. Þessi
reynsla kenndi mér að við sjálf
verðum að taka ábyrgð á lífi
okkar, þekkja einkennin og hlusta
á líkamann. Krabbameinsfélag Ís-
lands á hrós skilið fyrir áratuga
starf að forvörnum, sem við verð-
um að nýta okkur og það er sér-
staklega ánægjulegt að nú skuli
áherslan loksins vera á karlmenn
og krabbamein. Einhverra hluta
vegna eru krabbamein hjá körlum
oft lengra gengin við greiningu og
hvet ég alla og karlmenn sérstak-
lega til að kynna sér þessi mál,“
segir Ragnar. - jma
Þurfti að hætta að syngja
Ragnar Davíðsson þurfti að söðla um í starfi þegar hann greindist með krabbamein
í raddböndum. Áður hafði hann verið óperusöngvari en hann lærði viðskiptafræði í
kjölfar veikindanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ıwww.itr.is sími 411 5000
Góð hreyfing
er lykillinn að góðri heilsu
Kynntu þér forvarnir gegn krabbam
eini á
karlmennogkrabbamein.is