Fréttablaðið - 09.03.2010, Qupperneq 47
ÞRIÐJUDAGUR 9. mars 2010 31
Auður Ava Ólafs-dóttir hefur sent
frá sér ljóðabók, Sálm-
urinn um glimmer, hjá
forlagi Sölku. Er þetta
fyrsta ljóðabók Auðar
en hún hefur áður
samið og gefið út þrjár
skáldsögur. Síðasta skáldsaga hennar,
Afleggjarinn, fékk Menningarverðlaun
DV 2008 og Fjöruverðlaunin 2008
og var tilnefnd til bókmenntaverð-
launa Norðurlandaráðs ári seinna.
Sálmurinn um glimmer er 57 síður að
lengd og hefur að geyma bálk ónafn-
greindra ljóða í frjálsu formi.
Skáldsagan Gerpla er komin út í kilju í ritröðinni
Íslensk klassík á vegum
Forlagsins. Er í þess-
ari kiljuútgáfu, sem er
tíunda útgáfa sögunnar,
ráðist í að fylgja hefð-
bundinni stafsetningu
þótt ekki sé breytt því
fornlega málfari sem höf-
undurinn tileinkaði sér við ritsmíðina.
Gerpla kom fyrst út í kilju 1956 og þá
með skýringum og var það ein fyrsta
tilraunin til að gefa bók út fyrir fjölda-
markað hér á landi. Bókina prýðir
forsíðumynd eftir Halldór Pétursson
en hún er 333 síður í kiljubroti.
NÝJAR BÆKUR
Helgi Tómasson komst í fréttir
vestanhafs í liðinni viku þegar
tilkynnt var að höfuðstöðvar
San Francisco-ballettsins sem
hann hefur stýrt í aldarfjórðung
væru nefndar upp á nýtt. Þær
bera héðan í frá nafn Cris
Hellman, en hún hefur
um langt árabil verið
dyggur stuðningsmað-
ur dansflokksins, setið
þar í stjórn og ber, með
þekkingu sinni, fjár-
styrk og metnaði fyrir
hönd flokksins, stóra
ábyrgð á að flokk-
urinn er nú um
stundir talinn
besti listdans-
flokkur heims, segir í frétt San
Francisco Chronicle í liðinni
viku.
Helgi segir í viðtali að framlag
Cris og eiginmanns hennar, auð-
kýfingsins Warren Hellman, hafi
í 25 ár, gert sér kleift að gera San
Francisco að besta dansflokki
heims. Færir hann Cris miklar
þakkir fyrir stuðninginn, bæði
við flokkinn og sig persónulega.
San Francisco-ballettinn er
einn elsti starfandi dansflokkur
heims og hefur starfað óslitið í
77 ár. - - pbb
Frá San Francisco
LISTDANS Helgi Tóm-
asson, einn virtasti
listdansstjóri heims.
Írar standa frammi fyrir mikl-
um niðurskurði á ríkisfjármálum
vegna efnahagsþrenginga. Í til-
lögum stjórnvalda er rík áhersla
lögð á hlut menningar í því endur-
reisnarstarfi sem fram undan er.
Gagnrýnendur hafa mætt þeim
tillögum með tortryggni og benda
á að stjórnvöld verði að endur-
skipuleggja styrkjakerfi ríkis og
sveitarfélaga. Fjárveitingar deil-
ist milli ráðuneyta og stofnana og
kjósi menn að treysta á virkan þátt
menningarlífs á Írlandi til endur-
byggingar verði að taka kerfið upp
og skipuleggja það að nýju.
Framlög á Írlandi til menningar-
mála af öllu tagi nema nú um 200
milljónum evra eða nærri 35
milljörðum. Vísa gagnrýnend-
ur til aðgerða Skota og Breta en
þar er verið að endurskipuleggja
allt styrkjakerfi hins opinbera til
menningar. Þar eru opinberir aðilar
með það í huga að keppa betur um
athygli listunnenda og almennings
heima fyrir og erlendra gesta.
Gráinne Millar sem starfar við
menningarsjóðinn Temple Bar
Cultural Trust hefur lagt fram til-
lögur um hvernig beri að einfalda
styrkjakerfið með það að mark-
miði að fjármunir nýtist betur á
skýrt afmörkuðum sviðum. Fjár-
veitingar til menningarmála hér á
landi eru fyrst í höndum þings og
sveitarstjórna, síðan minnst fjög-
urra ráðuneyta fyrir utan margvís-
lega sjóði sem lúta flestir sjálfstæð-
um stjórnum.
pbb@frettabladid.is
Kreppa heimtar nýtt skipulag
MENNING Írska rokkið er ein helsta
menningarafurð frænda okkar á Írlandi.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Þriðjudagur 09. mars 2010
➜ Tónleikar
21.00 Trúbadorarnir og söngvaskáldin
Uni og Jón Tryggvi verða með tónleika
á Rosenberg við Klapparstíg.
➜ Sýningar
Á skörinni hjá Handverki og Hönnun
við Aðalstræti 10, hefur verið opnuð
sýning á bókbandshandverki Ragnars
G. Einarssonar. Opið alla virka daga kl.
9-18 og um helgar kl. 12-17.
➜ Námskeið
20.15 Hjá Endurmenntun HÍ hefst
námskeiðið „Dauðasyndirnar sjö“.
Námskeiðið er öllum opið og fer fram
að Dunhaga 7. Skráning og frekari upp-
lýsingar á www.endurmenntun.is.
➜ Kvikmyndir
20.00 Kvikmyndasafn Íslands sýnir
mynd Aki Karismaki „Ský á reki”
(Kauas pilvet karkaavat) frá árinu 1996.
Sýningin fer fram í Bæjarbíói við Strand-
götu í Hafnarfirði. Enskur texti. Nánari
upplýsingar á www.kvikmyndasafn.is.
➜ Leiðsögn
12.05 Guðrún Guðmundsdóttir verð-
ur með leiðsögn um sýningu sína
„Ævispor“ í Bogasal Þjóðminjasafns-
ins við Suðurgötu. Þar sýnir Guðrún
útsaumsverk sem hafa sterka skírskot-
un í listrænan arf og þjóðlegar hefðir
Íslendinga.
➜ Fyrirlestrar
12.00 Ginta Leimane flytur erindi um
ólöglega innflytjendur í Eystrasaltsríkjun-
um eftir inngöngu í Evrópusambandið.
Fyrirlesturinn fer fram hjá Háskólanum á
Akureyri, Sólborg v/ Norðurslóð (L 201).
20.00 Mannfræðifélag Íslands stend-
ur fyrir fyrirlestri í húsnæði Reykjavíkur-
Akademíunnar í JL-húsinu við Hring-
braut 121. Þar mun Hulda Proppé
flytja erindi um hvort hræðsla móti
þekkingarsköpun. Allir velkomnir.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
EURO handklæðaofnar
40x70cm Beinn Hvítur 6.900,-
50x80cm Beinn Hvítur 7.900,-
50x120cm Beinn Hvítur 10.900,-
60x140cm Beinn Hvítur 12.900,-
40x70cm Beinn Króm 12.900,-
50x800cm Beinn Króm 13.900,-
50x120cm Beinn Króm 17.900,-
60x140cm Beinn Króm 19.900,-
50x80cm Oval Hvítur 8.900,-
50x120cm Oval Hvítur 11.900,-
60x140cm Oval Hvítur 13.900,-
50x80cm Oval Króm 14.900,-
50x120cm Oval Króm 18.900,-
60x140cm Oval Króm 19.900,-
EURO handklæðaofn
50x80 cm
14.900
NAPOLI hitastýrt
sturtusett
29.900
Brúsa, barki, stöng og festing
3.900
NAPOLI hitastýrð blöndunartæki fyrir sturtu
12.945
NAPOLI hitastýrð blöndunartæki f. baðkar
13.995
Stálvaskur ø 38 cm
5.990
Stálvaskur 40x50 cm
5.990
Foster Stálvaskur 79x50 cm
22.900
Handlaug100x45 cm
19.900
LAILA handlaug 55 cm
5.490
Handlaug 60x51 cm
9.900
VITRA S50 handlaug 60 cm
10.900
VEMAR blöndunartæki
4.890
VEMAR blöndunartæki há, í borð
11.900
VEMAR eldhús blöndunartæki
6.990
VEMAR eldhúskrani
4.890
FLORENCE stálvaskur 0,8mm
78x47 cm
16.900