Fréttablaðið - 22.03.2010, Síða 4
4 22. mars 2010 MÁNUDAGUR
„Auðvitað bregður manni fyrst
en við urðum strax rórri þegar
okkur var tjáð að þetta væri lítið
gos,“ segir Vilborg Alda Jóns-
dóttir, bóndi í Hvítanesi í Vestur-
Landeyjum, þegar henni var til-
kynnt að byrjað væri að gjósa.
Vilborg fékk símtal fljótlega
eftir miðnætti á laugardagskvöld
og var sagt að hún þyrfti að yfir-
gefa heimilið ásamt foreldrum
sínum. Þau fengu gistingu hjá
systur Vilborgar á Hvolsvelli.
„Það kom sér vel að hún er í
fríi á Kanarí. Við vorum fljót að
taka okkur til en mamma tók að
vísu ansi mikinn farangur með
sér,“ segir Vilborg. Kindur, kýr
og hestar eru á bænum og segir
Vilborg að verst hafi verið að
skilja skepnurnar eftir. „Mér var
hugsað til dýranna áður en ég fór.
Hrossin ganga flest laus, fyrir
utan tvær merar sem voru inni í
hesthúsi og ég sleppti lausum. Ég
man að ég hugsaði með mér: Þetta
er Eyjafjallajökull. Annaðhvort
verður allt í lagi eða þetta fer illa.
Sem betur fer fór allt vel í þetta
sinn og dýrin voru öll róleg.“
Vilborg fékk að fara heim í gær
til að huga að skepnunum og var
að gefa hestunum þegar Frétta-
blaðið bar að garði. Hún hafði
þá ekki fengið að vita hvort hún
mætti sofa heima hjá sér í nótt.
Hún kvaðst mundu fara heim ef
það yrði heimilað en foreldrar
hennar myndu gista heima hjá
systur hennar að minnsta kosti
eina nótt í viðbót.
Þrátt fyrir afleitt skyggni
sást bjarminn frá gosinu vel frá
Hvítanesi aðfaranótt sunnudags.
Vilborg segir þó ekki íþyngj-
andi tilhugsun að búa í grennd
við virka eldstöð. „Þetta venst; ef
það væri ekki þetta þá eitthvað
annað. En nú hlýtur Katla að fara
að rumska; það held ég að hljóti
að vera.“
bergsteinn@frettabladid.is
Var illa við að skilja
dýrin eftir á bænum
Vilborgu Öldu Jónsdóttur, bónda á Hvítanesi, var hugsað til búpeningsins þegar
hún yfirgaf bæinn ásamt foreldrum sínum. Hún segir heimilisfólk hafa tekið
fréttunum með ró en móðir hennar hafi pakkað niður ansi miklum farangri.
HROSSUNUM GEFIÐ Vilborg segir verst að hafa þurft að skilja skepnurnar eftir en hún sleppti tveimur merum lausum áður en hún fór. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Guðmundur Antonsson á Glæsistöðum:
Við vildum bara vera heima
Guðmundi Antonssyni, bónda á
Glæsivöllum í Vestur-Landeyj-
um, fannst ekki þörf á að yfir-
gefa býlið þrátt fyrir gosið. Hann
lét þó til leiðast þegar leið á nótt-
ina og fylgdi lögreglumönnum á
Hvolsvöll.
„Jú, við fórum í nótt og gist-
um á Hvolsvelli. Síðan fórum við
ímorgun og sinntum búverkum.“
Guðmundur býr ásamt þremur
bræðrum sínum að Glæsistöðum.
Hann er fæddur árið 1928 og verð-
ur 81 árs í desember. Bræðurnir
töldu ekki mikla hættu á ferðum
og töldu sig örugga heima við.
„Þetta er nú ósköp meinleys-
islegt ennþá, en þetta eru varúð-
arráðstafanir. En okkur fannst
þetta óþarfi og við hefðum bara
viljað vera heima. Það var engin
hætta, við töldum það ekki.“
Guðmundur var staddur að
Glæsistöðum þegar Fréttablaðið
náði tali af honum og ætlaði að
kasta sér aðeins eftir erilsama
nótt. „Við komum í morgunsárið
til að sinna búverkum. Allir
bændur fengu leyfi til þess. Í
dag [gær] verður ákveðið hvort
eitthvað verður rýmkað til með
þetta.“ - kóp
GLÆSISTAÐIR Bræðurnir voru mættir til búverka í morgun og vonuðust til þess
að þurfa ekki að yfirgefa heimilið á ný. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
kaffivélar
– mest seldu sjálfvirku kaffivélarnar á Íslandi um árabil
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
18°
12°
13°
8°
15°
18°
7°
7°
21°
12°
18°
17°
22°
1°
15°
17°
1°Á MORGUN
12-20 m/s,
hvassast á Vestfjörðum.
MIÐVIKUDAGUR
Víða hæg suðlæg átt
en hvöss NA-átt NV-til.
8
3
-1
3
1
2
1
6
5
8
0
9
14
16
13
11
12
10
17
11
12
11
5
-1 0
2
5 5
-1 2
3
4
VINDASAMT Í dag
og á morgun má
búast við strekk-
ingi og allhvössum
vindi víðast hvar.
Á miðvikudaginn
lægir og vindur
snýst í suðlægar
áttir en áfram verð-
ur stíf norðaustan-
átt á Vestfjörðum.
Það verður heldur
vætusamt og hiti
breytist lítið.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
Eldgos á Fimmvörðuhálsi