Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.03.2010, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 22.03.2010, Qupperneq 6
6 22. mars 2010 MÁNUDAGUR N1 Deildin KARLAR Mánudagur Framhúsið Vodafone höll Kaplakriki Fram - Haukar Valur - HK FH - Stjarnan 19:30 19:30 19:30 2009 - 2010 Markmið námskeiðsins er að þjálfa fólk til starfa við bókhaldsstörf. Námið er byggt upp á kennslu í verslunar- reikningi (24 st.), bókhaldi (36 st.) og tölvubókhaldi (48 st.). Allar námsgreinar eru kenndar frá grunni. Nemendur þurfa að vera orðnir 18 ára og hafa grunnþekkingu á tölvum. OFT ER AUGLÝST EFTIR BÓKARA! Upplýsingar og skráning: 544 4500 / www.ntv.is 108 stundir - Verð: 99.000.- Verð fyrir atvinnulausa: 74.250.- Kvöld- og helgarnámskeið byrjar 8. apríl. NÝI TÖLVU- OG VIÐSKIPTASKÓLINN – VIÐURKENNDUR EINKASKÓLI Á FRAMHALDSSKÓLASTIGI Grunnnám í bókhaldi FRÉTTASKÝRING Hvaða áætlun er gangsett þegar eldgos hefst, og hvernig tókst til í þetta skipti? Sérfræðingar á Veðurstofu Íslands fylgjast alla jafna með náttúru- hamförum og hafa það hlutverk að láta almannavarnadeild Ríkislög- reglustjóra vita verði hamfarir. Strax klukkan 22.30 á laugar- dagskvöld jukust jarðhræringar undir Eyjafjallajökli, en það var ekki fyrr en sjónarvottar höfðu samband við Veðurstofuna á tólfta tímanum að ljóst var að eldgos væri hafið í eða undir Eyjafjalla- jökli, segir Sigurlaug Hjaltadótt- ir, jarðeðlisfræðingur á Veður- stofu Íslands. Strax í kjölfarið var samhæf- ingarstöð almannavarna í Skógar- hlíð virkjuð. Unnið er eftir fyrir- fram ákveðinni viðbragðsáætlun, og ákveðið var þegar að rýma þá bæi í nágrenni jökulsins sem gætu verið í hættu. Viðbragðsáætlunin gerir einnig ráð fyrir því að flug- vélum sé haldið frá svæðinu, og var það gert í kjölfarið. Starfsmenn Neyðarlínunnar hafa það hlutverk að láta íbúa á hættusvæðinu vita. Það gerðu þeir bæði með því að senda viðkomandi sms og hringja á alla bæi á svæð- inu til að láta fólk vita að það ætti að rýma hús sín án tafar. Rýmingu á svæðinu var lokið á um tveimur klukkustundum. Um fimm hundruð manns var gert að yfirgefa heimili sín. Rauði kross Íslands gangsetti þegar fjöldahjálparstöðvar á Hvolsvelli, Hellu og í Vík. Þangað komu allir sem þurftu að yfirgefa heimili sín til að skrá sig svo björgunarfólk gæti gengið úr skugga um að allir væru komnir af hættusvæðinu, segir Sólveig Ólafsdóttir, sviðs- stjóri útbreiðslusviðs hjá Rauða krossi Íslands. Um 130 manns leituðu í hjálparstöðvarnar. Það er samdóma álit allra sem Fréttablaðið ræddi við í gær að aðgerðir hafi gengið ótrúlega vel, þeir sem að þeim hafi komið hafi unnið saman eins og vel smurð vél. Ekki spillti fyrir að viðbúnaðarstigi hafði verið lýst yfir vegna skjálftavirkni á svæð- inu undanfarið, og allir sem komu að aðgerðum því undirbúnir. Sólveig segir alla meðvitaða um að eldgosið hafi hingað til verið eins og best hafi verið á kosið. „Ef eitthvað verður stærra síðar erum við þarna búin að fá mjög góða æfingu á því hvernig neyðar- kerfið okkar virkar, og það virkaði mjög vel,“ segir Sólveig. Hún segir alltaf einhverja hnökra koma upp í svo stórum aðgerðum. Í framhaldinu verði bætt úr því, til dæmis með því að gera skráningarblöð fyrir þá sem þurftu að rýma heimili sín betur úr garði. Í æfingum hefur gengið erfið- lega að fá fólk sem rýma þurfti hús sín til að koma í fjöldahjálp- arstöðvarnar og skrá sig, en Sól- veig segir að nú hafi allir sýnt því skilning að nauðsynlegt væri að skrá alla. Allir sem rætt var við í gær voru sammála um að öll fjarskipti hefðu gengið mjög vel í gær. Tetra- kerfið sem Neyðarlínan, lögregla og björgunarsveitir nota virkaði á öllu svæðinu sem björgunarmenn fóru um í gær. brjann@frettabladid.is Aðgerðirnar gengu eins og vel smurð vél Eldgosið í nágrenni Eyjafjallajökuls kom á besta mögulega stað. Allar aðgerðir í kjölfar gossins gengu vel. Var mjög góð æfing fyrir neyðarkerfið. Rýmingu húsa á ætluðu hættusvæði var lokið á innan við þremur klukkustundum. UNDIRBÚA KOMUNA Starfsmenn Rauða kross Íslands voru í óðaönn að undirbúa fjöldahjálparstöðvar aðfaranótt sunnudags. Um 130 manns gistu í stöðvunum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Eldgos á Fimmvörðuhálsi Atburðarás á gosdegi 22.30 Aukinn órói mælist á jarðskjálftamælum Veðurstofu Íslands. 23.30 Veðurstofan fær upplýsingar frá sjónarvottum um að gos sé hafið og lætur lögreglu og almannavarnir vita. 00.20 Samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð er virkjuð og viðbragðs- aðilar kallaðir á vettvang. Ákveðið að rýma samkvæmt áætlun vegna eldgoss í Eyjafjallajökli og stöðva flugumferð um flugvelli innan 120 sjómílna (220 kílómetra) frá gosinu. Flugvélum er beint frá svæðinu. Hjálparsími Rauða krossins, 1717, er mannaður til að taka á móti símtölum frá aðstandendum. 00.30 Starfsmenn Neyðarlínunnar senda fólki á svæðinu sms-skilaboð og hringja í það. 00.45 Fjöldahjálparstöðvar Rauða krossins opnaðar á Hellu, Hvolsvelli og í Vík. 00.56 Aðgerðastjórn umdæmisins kemur saman á Hellu. Rýming hefst í Fljótshlíð. Þjóðvegi 1 er lokað undir Eyjafjallajökli. 01.00 Jarðeðlisfræðingar á Veðurstofu Íslands staðfesta með sínum mæli- tækjum að gos sé hafið. 01.40 Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, fer í loftið með vísindamenn og varðskipi er beint á svæðið. 03.00 Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, fer í loftið með vísindamenn. 03.12 Rýmingu bæja á hættusvæði lýkur. 07.30 Bændum hleypt inn á lokuð svæði til að sinna búpeningi. 15.45 Þjóðvegur 1 er opnaður fyrir umferð á ný. 16.45 Fjöldahjálparstöðvum Rauða krossins á Hvolsvelli, Hellu og í Vík lokað. Um 130 manns gistu í fjöldahjálpar- stöðvum Rauða krossins á Hvols- velli, Hellu og í Vík í Mýrdal aðfara- nótt sunnudags. Hjálparstöðvarnar voru opnaðar í skólum í bæjunum innan við klukku- stund eftir að rýming á svæðinu hófst. Þeim var lokað um miðjan dag í gær. Íbúum sem ekki mega enn snúa til síns heima var útveguð gisting annars staðar. Yfir fjörutíu sjálfboðaliðar og starfsmenn Rauða krossins voru í hjálparstöðvunum þangað til þeim var lokað. Yfir fjörutíu sjálfboðaliðar Rauða krossins á vettvangi: Um 130 manns gistu í hjálparstöðvum VÍKURSKÓLI Um áttatíu manns gistu í hjálparstöðinni í Vík aðfaranótt sunnudags. Þar var fólkinu boðið upp á súpu í hádeginu í gær. MYND/HARPA JÓNSDÓTTIR ELDGOS Gosið sást vel frá jörðu. Þessi mynd var tekin klukkan sjö um morgun- inn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.