Fréttablaðið - 22.03.2010, Page 16

Fréttablaðið - 22.03.2010, Page 16
16 22. mars 2010 MÁNUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 sumarferdir.is Frábært golftilboð! Villaitana, Benidorm – Alicante 12.-17. apríl Verð á mann m.v. 2 fullorðna. í tvíbýli. Innifalið er flug með sköttum og flutningi á golfsetti. Akstur til og frá flugvelli erlendis. Gisting með morgun og kvöldmat. 5 golfdagar 119.900 kr.frá Boðaðar aðgerðir ríkisstjórnar-innar til þess að takast á við skuldavanda heimilanna eru um margt ágætar. Yfirlýsingar ráð- herra um að aðgerðarpakkinn nái að öllu leyti utan um vandann eru hins vegar í besta falli spaugileg- ar. Talsvert meira þarf að gera til þess að sátt geti ríkt á lánamark- aði á Íslandi og til þess að hinn ógnarstóri skuldavandi þjóðarinn- ar teljist að fullu leystur. Skulda- vandi heimilanna er vandi af slíkri stærðargráðu að betur fer á því að tileinka sér vissa auðmýkt og minni yfirlýsingagleði í viðureign- inni við hann. Nógu stórt var talað þegar síðasti aðgerðarpakki rík- isstjórnarinnar var kynntur í okt- óber síðastliðnum. Hann náði ekki tilætluðum árangri. Betrumbætur boðaðar En nú eru boðaðar betrumbætur. Margt í aðgerðarpakka ríkis- stjórnarinnar er afsprengi vinnu- bragða sem gjarnan mættu sjást víðar í stjórnmálunum um þessar mundir. Þverpólitískur samráðs- hópur um skuldavanda heimila og fyrirtækja hefur nú starfað um nokkurt skeið. Margar höf- uðáherslur þess hóps er að finna í aðgerðarpakkanum. Þannig hefur stofnun embættis umboðs- manns skuldara, eða lántakenda, átt hljómgrunn í öllum flokkum á þingi, að því er ég best veit, og eins hefur verið nokkuð víðtæk- ur samhljómur á meðal flokk- anna um mikilvægi þess að hanna betur þá ferla sem fólki í veruleg- um greiðsluvanda býðst til þess að endurskipuleggja skuldir sínar. Á þessu er tekið í aðgerðarpakk- anum. Mikilvægt embætti umboðsmanns Það er mikilvægt að tala ekki niður hið nýja embætti umboðs- manns skuldara. Hugmyndin er góð. Þessu embætti verður ætlað að vera málsvari lántakenda gagn- vart kröfuhöfum. Í gegnum þetta embætti munu skuldarar geta fengið úrlausn sinna vandamála, ef vel tekst til. Þessu þarf að gefa góðan sjens. Að því sögðu er þó líka mikilvægt að hafa í huga, að auðvitað verður að vakta vel hvort embættið virkar eða ekki. Margir vankantar gætu komið í ljós sem nauðsynlegt verður að sníða af. Meðal annarra fagnaðarefna í frumvarpsdrögum ráðherranna má nefna, að til stendur að taka á málum þeirra skuldara sem sitja uppi með tvær eignir, en þau mál hafa verið í pattstöðu alltof lengi. Eins eru góðar áherslur lagðar í þátt að auka möguleika á óverð- tryggðum lánum. Meira þarf að gera í þeim efnum. Auk þess eru skref í átt að aukinni fjölbreytni á húsnæðismarkaði, með kaupleigu- íbúðum og húsnæðissamvinnufé- lögum, töluvert gleðiefni. Hvar eru almennu aðgerðirnar? En kem ég nú að göllunum. Það er orðið rannsóknarefni hvað ríkisstjórnarflokkarnir virðast sýna nauðsyn almennra aðgerða í skuldamálum lítinn skilning. Lítið á að gera fyrir þann stóra hóp fólks sem ekki telst beinlínis vera í greiðsluvanda, en er þó á mörkunum. Þetta er hin stóra millistétt á Íslandi. Hrunið tók frá henni hið fjárhagslega svig- rúm sem hún hafði. Ekki fyrr en vanda þessa hóps verður mætt með almennum aðgerðum, eins og leiðréttingu höfuðstóls eða öðrum slíkum, getur mögulega mynd- ast sátt á íslenskum lánamarkaði. Hið efnahagslega markmið er líka augljóst: Þessi hópur, sem telur þorra Íslendinga, verður að losna við byrðar. Að öðrum kosti hefst ekki eðlileg neysla og fjárfesting í samfélaginu. Á að gera höggið frádráttarbært? Eina almenna aðgerðin sem ríkis- stjórnin boðar er raunar algerlega þvert á þessi markmið. Hún felst í því að skattleggja afskriftir. Slík áform virka óneitanlega sem blaut tuska í andlit þeirra sem barist hafa fyrir almennri leiðréttingu á höfuðstól. Það má þó kannski freista þess að hugsa uppbyggilega og reyna að snúa þessari vondu hugmynd upp í aðra betri. Ef ríkisstjórn- in vill fara í almennar aðgerðir í gegnum skattkerfið, er auðvitað fullkomlega eðlilegt að leggja til, að sú dæmalausa aukning á höf- uðstól sem lántakendur tóku á sig í hruninu komi til frádráttar frá skatti. Þar gæti verið komin leið til þess að létta byrðar hrunsins af almenningi. Þetta þarf að skoða. Eitt er víst: Krafa þorra lántak- enda um léttari og sanngjarnari byrðar verður bara háværari eftir því sem aðgerðarleysið í þeim efnum er meira. Næstu skref á lánamarkaði felast einkum í því að mæta þessari kröfu af röggsemi. Höfundur er alþingismaður. Næstu skref GUÐMUNDUR STEINGRÍMSSON Í DAG | Skuldavandi heimilanna Betra vatn til framtíðar UMRÆÐA Alþjóðlegur dagur vatnsins Vatnsgæði og mikilvægi þess í vatnsstjórnun er umræðuefni alþjóðlegs Dags vatnsins þann 22. mars nk. Hreint vatn er grund- völlur fyrir heilbrigði manna og vistkerfa, og er mikilvægur liður í sjálfbærri efnahagsþróun samfélaga. Vatnsgæði ber ekki oft á góma í þjóðfélagsumræðunni á Íslandi. Það er kannski ekki skrýtið í ljósi þess að við höfum með örfáum undantekningum hreint og afar gott vatn. Næringarefnaauðgun sem ógnar vatnavistkerfum í mörgum löndum er nær óþekkt á Íslandi. Jafnframt er 95% af neysluvatni á Íslandi ómengað grunnvatn, en ekki klórað yfirborðsvatn. Af þessum sökum er ekki óalgengt að við tölum um „hreinasta vatn í heimi“. Við njótum góðs af þessu næga ómeng- aða vatni í flestum undirstöðuatvinnuvegum okkar, eins og í fiskiðnaði, orkuframleiðslu, landbúnaði, gróðurhúsaræktun. Tækifæri geta leynst til frekari verðmætasköpunar bæði með nýsköpun svo og betri markaðssetningu á afurðum og þjónustu úr þessu gæðavatni. En hvað vitum við um vatnsgæði á Íslandi? Er hreint vatn sjálfgefið eða eru hættur sem þarf að varast? Skemmst er að minnast nóró- verufaraldra sem urðu á tveimur ferðamannastöðum sumarið 2004 þar sem yfir þrjú hundruð manns veiktust. Orsökina mátti í báðum tilfellum rekja til mengunar neysluvatns. Margir muna einnig eftir klórslysum í Varmá og Ell- iðaám sem ollu fiskdauða. En að öllum líkindum er helsta hættan aukin ásókn í landnýtingu nálægt vatnsbólum og því þarf að taka tillit til vatnsverndarsjónarmiða við alla skipulagsvinnu. Einnig er mikilvægt að kortleggja betur vatnsgæði og standa vel að verki við verndun vatnsins. Í flestum löndum heims er aðgangur að hreinu vatni forréttindi og ekki sjálfgefinn hlutur. Íslenska vatnafræðinefndin í samvinnu við fleiri aðila stend- ur fyrir ráðstefnunni Betra vatn til framtíðar sem fjallar um þessi mál. Ráðstefnan verður haldin í Orkugarði við Grensásveg 9 mánudaginn 22. mars frá kl. 13-16 og eru allir velkomnir. Hrund Ó. Andradóttir og María J. Gunnarsdóttir, Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands. En hvað með fólkið? „Fyrstu áhyggjurnar þegar ég heyrði af þessu tengdust fluginu.“ Svo mælti Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, í samtali við Vísi í gær. Vissulega er það rétt hjá Ernu, sem hún hafði áhyggjur af, að vont er ef flugáætlanir raskast. Það er vissulega leiðinlegt að bíða eftir flugi og líklega gætu einhverjir tapað fjármunum, sem er líka leiðinlegt. En hefði ekki verið eðlilegra að fyrstu áhyggjur hefðu tengst fólki í nágrenni gossins? Augljós tengsl Hinn skemmtilegi þjóðfélagshópur gárungar lætur ekki að sér hæða, frekar en endranær. Þeir ræddu það sín á milli hvernig möguleiki væri að tengja fréttir af gosinu í Eyjafjallajökli við Icesave, til að viðhalda því að önnur hver frétt fjalli um það mál. Þeir þurftu hins vegar ekki að brjóta heilann lengi; alþjóðlega fréttastofan AP tók af þeim ómakið og birti ítarlega frétt um gosið á Íslandi og Icesave- skuldina. Aug- ljós tengsl. Skilja ekki alveg Sigurjón Þórðarson hefur formanns- tíð sína hjá Frjálslynda flokknum með nýja stjórnmálayfirlýsingu upp á vasann. Þar lýsir flokkurinn yfir líklega kær-, en heldur seint til komnum, stuðningi við þjóðaratkvæðagreiðslu, sem fram fór 6. mars. Eitthvað hefur þó flokkurinn misskil- ið málið, því hann styður þá ákvörðun forsetans að „vísa þeirri ákvörðun til þjóðarinnar, hvort þjóðin eigi að greiða skuldir óreiðumanna“. Það hefur forsetinn aldrei gert. kolbeinn@frettabladid.is HRUND Ó. ANDRADÓTTIR MARÍA J. GUNNARSDÓTTIR N áttúruöflin eru máttug á Íslandi. Á það var minnt um helgina þegar eldgos hófst á Fimmvörðuhálsi. Enn sem komið er virðist ekki vera á ferðinni mikið gos en í fyrrinótt og í gær kom vel í ljós hversu vel bæði vísindamenn og almannavarnir fylgjast með jarðhræringum og eldvirkni, hversu miklu máli sú árvekni skiptir og síðast en ekki síst hversu vel viðbragðsáætl- anir vegna náttúruhamfara eru unnar og hversu vel þær ganga upp þegar til þess kemur að vinna þarf eftir þeim. Atburðir helgarinnar minntu vel á að við eigum framúrskar- andi almannavarnakerfi. Þar er á ferðinni smurð vél þar sem hver þáttur skilar sínu eins og best verður á kosið. Samhæf- ing aðila gengur snurðulaust þannig að ekkert atriði verður út undan. Strax og ljóst var að eldgos væri hafið í fyrrinótt var samhæf- ingarstöð almannavarna í Skógarhlíð virkjuð en þar er unnið eftir fyrirfram tilbúinni viðbragðsáætlun. Rýming þeirra bæja í nágrenni jökulsins sem taldir voru í hættu tók ekki nema tvær klukkustundir. Þremur fjöldahjálparstöðvum var komið á fót á Hellu, Hvolsvelli og í Vík en þangað komu þeir sem höfðu þurft að yfirgefa heimili sín til skráningar. Þessi aðgerð var fumlaus þótt um miðja nótt væri. Náttúruöflin á Íslandi eru til alls vís. Það er því gríðarlegur styrkur og mikið öryggi í því fólgið að við eigum vel samhæft og gott almannavarnakerfi sem fer af stað þegar glíma þarf við náttúruöflin. Þar er öryggi manna sett í forgang. Yfirsýn og yfirvegun einkennir störf þeirra fjölmörgu sem að verkefninu koma: starfsmenn Veðurstofu, lögreglu, Landhelgisgæslunnar, Neyðarlínu og svo sjálfboðaliðar og starfsmenn Rauða kross Íslands. Allur þessi hópur vann framúrskarandi störf nú um helgina og mun gera áfram meðan þörf krefur. Mikið er lagt upp úr því að halda almannavörnunum vel smurðum með reglulegum æfingum. Um helgina kom í ljós hversu miklu það skiptir. Einnig er augljóst að fumlaus við- brögð almannavarnakerfisins um helgina gefa góð fyrirheit um þau viðbrögð sem búast má við þegar enn öflugri náttúru- hamfarir gera vart við sig. Við búum í landi þar sem náttúruöflin eru til alls vís. Enginn veit hvenær og hvernig þau láta á sér kræla. Það felst því mikið öryggi í vitneskjunni að almannavarnakerfið bregst ekki þegar á reynir. Styrkur almannavarnakerfisins kom vel í ljós þegar eldgos hófst á Fimmvörðuhálsi í fyrrinótt. Fumlaus viðbrögð á öllum vígstöðvum STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR SKRIFAR Allur þessi hópur vann framúrskarandi störf nú um helgina og mun gera áfram meðan þörf krefur.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.