Fréttablaðið - 22.03.2010, Page 34

Fréttablaðið - 22.03.2010, Page 34
18 22. mars 2010 MÁNUDAGUR timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Á þessum degi árið 1972 kom í ljós að Geirfugladrangur, vestur af Eldey, hafði hrunið eða sokkið í sæ. Dranginn er grunnlínupunktur landhelginnar, vestasti viðmiðunar- punktur og var áður um 10 metra hár. Í dag kemur hann aðeins upp úr sjó á fjöru. Fréttir af því að Geirfugladrangur hefði horfið bárust seinnipart dags- ins en það var mótorbáturinn Venus frá Hafnarfirði sem tilkynnti land- helgisgæslunni um hvarfið. Báturinn hafði verið á veiðum þar nærri, sem dranginn hafði staðið og var hvergi sjáanlegur þegar skipsverjar fóru að svipast um eftir honum. Varðskip á staðnum voru send til að kanna málið. Nokkrar umræður sköpuðust um það hvort reglugerðin um hina þá fyrirhuguðu fimm- tíu mílna landhelgislínu yrði að endurskoða og gildandi landhelgi. Nokkrum dögum eftir hvarfið gaf forstjóri Landhelg- isgæslunnar út þá yfirlýsingu að atvikið hefði engin áhrif á landhelgina. Ekki var ljóst hvort hafið hafði sorfið drangann niður eða hvort jarðsig hafði orðið. Í kjölfarið lýstu margir því yfir að merkja þyrfti drangann vel þar sem hann væri orðinn eitt helsta blindsker landsins. ÞETTA GERÐIST: 22. MARS 1972 Geirfugladrangur hverfur Hinn árlegi dagur vatnsins er haldinn í dag, 22. mars, og er að þessu sinni helgaður vatnsgæðum og verndun vatnsauðlindarinnar. Í tilefni dagsins stendur íslenska vatnafræðinefnd- in að ráðstefnu í dag í samstarfi við háskóla, stofnanir og fyrirtæki undir yfirskriftinni Betra vatn til framtíðar og er hún öllum opin. Sigurður Guð- jónsson, forstjóri Veiðimálastofnun- ar, er einn þeirra sem ræða um vatn- ið á ráðstefnunni og þá um vatnsgæði á Íslandi. „Ég mun fjalla um vatnið, fyrst hvernig það er á okkar ágæta hnetti og svo færi ég mig til Íslands og skoða hvað við höfum af vatni hér og í hvaða gæðum,“ segir Sigurður og bætir við að gæði séu margvísleg og þar verði ekki einungis horft til neysluvatns. „Við á Íslandi erum lánsöm að því leyti að við erum fá í stóru landi sem hefur talsvert mikla úrkomu og litla uppgufun. Þannig fáum við mikið vatn og einnig hefur jarðfræðin hjálpað okkur þar sem stór hluti af landinu er ungt berg og vatnið hripar þar niður og kemur upp í stórum og miklum lindum. Við erum því að drekka ómeð- höndlað grunnvatn á meðan aðrar þjóð- ir þurfa að hreinsa vatnið, klóra og þvíumlíkt.“ Engu síður er vatnið okkar við- kvæmt að sögn Sigurðar og lítið þarf til að spilla því. „Gamla sagan um olíu- bílinn sem veltur er ekki úr lausu lofti gripin. Til eru viðkvæmir staðir sem gætu haft mikil og stór áhrif yrðu þeir fyrir tjóni. Íslendingar taka vatn- inu sínu svolítið sem sjálfsögðum hlut og eru spilltir af gæðunum. En það er ekki sjálfgefið að við eigum alltaf gott vatn og til þess að svo verði verðum við að ganga vel um vatnið og landið því margt getur haft áhrif, svo sem lagn- ing vega, áburðarefni frá landbúnaði, iðnaðarstarfsemi og ýmislegt fleira. Við erum partur af hringrás.“ Framtakið Dagur vatnsins er upp- haflega tillaga frá Sameinuðu þjóðun- um og Sigurður segir það þarft. „Það er vel til fundið að minna okkur á þetta lífsnauðsynlega efni og hvernig við förum með það. Þetta eru ágætis tímamót núna því nú er að koma fram frumvarp um verndun vatns þar sem við festum í lög svokallaða vatnatil- skipun Evrópu en sá lagabálkur geng- ur út á það að vernda vatn og gæta þess að það spillist ekki. Við verðum að sýna svolitla fyrirhyggju og passa þær perlur sem við höfum. Ég tek sem dæmi Elliðaárnar, það er ekkert sjálf- gefið að þær haldist hreinar og að lax- inn sé þar fyrir okkur. Það er alltaf sótt aðeins nær að ánum og hætt er við að við missum allt úr höndunum ef ásóknin gengur of nærri þolmörkum lífríkisins.“ Ráðstefnan hefst klukkan 13 í Víð- gemli, Orkugarði við Grensásveg 9 í Reykjavík. juliam@frettabladid.is RÁÐSTEFNAN BETRA VATN TIL FRAMTÍÐAR: HALDIN Á ÁRLEGUM VATNSDEGI Gott vatn sem þarf að gæta MARKMIÐIÐ AÐ VEKJA UMRÆÐU Dagur vatnsins er í ár helgaður því að miðla upplýsingum um tækifæri og hættur er varða vatnsgæði. Sigurður Guðjónsson, forstjóri Veiðimálastofnunar, er einn þeirra sem halda erindi á ráðstefnunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA IBEN HJEJLE ER 39 ÁRA Í DAG. „Inn á milli hittir maður fólk sem skilur ekki að maður er bara nokkuð venjuleg manneskja.“ Iben Hjejle er dönsk leikkona, þekktust hérlendis fyrir leik sinn í Klovn. Sjöttu hádegistónleikar Óp- hópsins verða í Íslensku óperunni á morgun, þriðju- daginn 23. mars. Auk fastra meðlima hópsins kemur fram sérstakur gestasöngv- ari, Jóhann Smári Sævars- son bassasöngvari. Meðal verka á efnisskrá tónleikanna eru aríurnar Di provenza il mar og Parigi o cara úr La traviata eftir Verdi auk aría úr Grímu- dansleik og Don Carlos, og Fidelio eftir Beethoven. Tónleikarnir hefjast klukkan 12.15 og standa í um fjörutíu mínútur. Miða- verð er 1.000 krónur. - jma Tónleikar Óp-hópsins GESTASÖNGVARI Jóhann Smári Sævarsson bassasöngvari er sérstakur gestur á tónleikum Óp-hópsins. MERKISATBURÐIR 1867 Borgarnes við Brákarpoll verður löggiltur verslunar- staður. 1888 Enska knattspyrnudeildin er stofnuð. 1895 Fyrsta kvikmyndasýning sögunnar fer fram í París. 1924 Ríkisstjórn Jóns Magnús- sonar, sú þriðja undir for- sæti hans, tekur við völd- um. Hún situr í tvö ár. 1963 Fyrsta plata Bítlanna, Please Please Me, kemur út í Bretlandi. 1965 Bob Dylan gefur út fyrstu plötu sína þar sem hann spilar á rafmagnsgítar. 1974 Þing Bandaríkjanna sam- þykkir stjórnarskrárbreyt- ingu sem kveður á um jafnrétti kynjanna. Elskulegur bróðir minn, mágur okkar og frændi, Ólafur Guðmundsson frá Skálmardal, lést á Hrafnistu í Reykjavík að kvöldi föstudagsins 5. mars. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar A3 fyrir góða umönnun. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd aðstandenda, Ingvi Einar Guðmundsson. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við frá- fall og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa okkar, Knúts Hallssonar Smáragötu 9A, Reykjavík. Erna Hjaltalín Jónas Knútsson Halldóra Kristín Þórarinsdóttir Erna Kristín Jónasdóttir Hrefna Kristín Jónasdóttir Ástkær eiginkona mín, Hulda Guðjónsdóttir Hólabraut 5, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju þriðju- daginn 23. mars kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Haukur Sveinsson. Fréttablaðið býður nú upp á birtingu æviminninga á tímamótasíðum blaðsins. Upplýsingar um stærðir og verð, hafið samband í síma 512 5490 - 512 5495 eða sendið fyrirspurnir á netfangið timamot@frettabladid.is Æviminning Gísli Eirík ur Helgaso n Laugateigi 7 2, Reykjavík Gísli Eirík ur Helgaso n fæddist í Reykjavík 1. janúar 1 931. Hann lést á Hraf nistu í Ha fnarfirði 1 2. janúar síð astliðinn. Foreldrar hans voru Guðr ún Jónsdót tir frá Þing eyri í Dýrafirði f. 1917, d. 1988, og H elgi Gíslason fr á Ísafirði, f. 1915, d. 1970. Gísli Eirík ur bjó fyrs tu æviár sí n í Reykjavík en fluttist eftir það v estur til Ísafjarð ar með for eldrum sín um og systkin um. Systkini G ísla Eiríks eru Jón Hannes, f. 1933, Sigrí ður Ása, f. 1936 og G uðmundur , f. 1941. Eiginkona Gísla Eirí ks er Marg rét Magnú sdóttir hjúk r- unarfræði ngur, f. 4. apríl 1937 . Þau geng u í hjóna- band árið 1960. Börn Gísla Eirí ks og Mar grétar eru: 1) Magnús kennari, f . 1.5. 1972 , kvæntur Guðbjörgu Björnsdótt ur kennara , f. 30.11. 1 971. Börn þeirra eru Margrét, f. 17.2. 1997 og Björn J óhann, f. 2 0.1. 1999. 2) Helgi tæ knifræðin gur, f. 18.6 . 1975, í sa mbúð með Jórunni Dr öfn Ólafsdó ttur leiksk ólakennar a, f. 15.2. 1975. Þeir ra dóttir e r Þórunn Á sta, f. 24.12 . 2001. 3) Guðrún læ knir, f. 14. 11. 1979, í sambúð m eð Þór Halldórssy ni stjórnm álafræðing i, f. 6.6. 19 80. Gísli Eirík ur lauk sk yldunámi á Ísafirði e n hélt suð ur til Reykjav íkur 17 ára gamall til að nema h úsasmíði. Húsasmíð ar urðu æv istarf hans . Framan a f starfsæv- inni vann hann á Tré smíðaverk stæðinu Fu ru en eftir að hafa fengi ð meistara réttindi í i ðn sinni st ofnaði han n sitt eigið f yrirtæki, G ísli, Eiríku r, Helgi, se m hann át ti og rak þar til fyrir fá einum áru m. Stangveið i var aðalá hugamál G ísla Eiríks alla tíð og sinnti h ann meða l annars tr únaðarstö rfum fyrir Stangveið ifélag Reyk javíkur. Útför Gísla Eiríks fer fram í dag kl. 13.00 í Fossvogskir kju. G 1 gason fæddist í . Hann firði 12. drar hans á Þingeyri 8, og Helgi5, d. 1970. ár sín í að ve tur m sínum dur, f. úkr- - u: u ð ur ð Gísli Eiríkur HelgasonTrésmíðameistariGísli Eiríkur Helgason fæddist í Reykjavík 1. janúar 1931. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 12. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðrún Jónsdóttir frá Þingeyri í Dýrafirði f. 1917, d. 1988, og Helgi Gíslason frá Ísafirði, f. 1915, d. 1970. Gísli Eiríkur bjó fyrstu æviár sín í Reykjavík en fluttist eftir það vestur til Ísafjarðar með foreldrum sínum og systkinum. Systkini Gísla Eiríks eru Jón Hannes, f. 1933, Sigríður Ása, f. 1936 og Guðmundur, f. 1941. Eiginkona Gísla Eiríks er Margrét Magnúsdóttir hjúkr- unarfræðingur, f. 4. apríl 1937. Þau gengu í hjóna- band árið 1960. Börn Gísla Eiríks og Margrétar eru: 1) Magnús kennari, f. 1.5. 1972, kvæntur Guðbjörgu Björnsdóttur kennara, f. 30.11. 1971. Börn þeirra eru Margrét, f. 17.2. 1997 og Björn Jóhann, f. 20.1. 1999. 2) Helgi tæknifræðingur, f. 18.6. 1975, í sambúð með Jórunni Dröfn Ólafsdóttur leikskólakennara, f. 15.2. 1975. Þeirra dóttir er Þórunn Ásta, f. 24.12. 2001. 3) Guðrún læknir, f. 14.11. 1979, í sambúð með Þór Halldórssyni stjórnmálafræðingi, f. 6.6. 1980. Gísli Eiríku lauk skyldunámi á Ísafirði en hélt suður til Reykjavíkur 17 ára gamall til að nema húsasmíði. Húsasmíðar urðu ævistarf hans. Framan af starfsæv- inni vann hann á Trésmíðaverkstæðinu Furu en eftir að hafa fengið meistararéttindi í iðn sinni stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki, Gísli, Eiríkur, Helgi, sem hann átti og rak þar til fyrir fáeinum árum. Stangveiði var aðaláhugamál Gísla Eiríks alla tíð og sinnti hann meðal annars trúnaðarstörfum fyrir Stangveiðifélag Reykjavíkur. Útför Gísla Eiríks fer fram í dag kl. 13.00 í Fossvogskirkju. Eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, Svanlaug Ermenreksdóttir kennari, Eikjuvogi 4, Reykjavík, lést á Skjóli þriðjudaginn 16. mars. Útförin fer fram frá Langholtskirkju þriðjudaginn 23. mars kl. 13.00. Kristján Benediktsson Baldur Kristjánsson Svafa Sigurðardóttir Ólöf Kristjánsdóttir Sigurður Pétursson Benedikt S. Kristjánsson Sigrún Ásdísardóttir Ársæll Kristjánsson Ásdís Kristjánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.