Fréttablaðið - 22.03.2010, Page 42

Fréttablaðið - 22.03.2010, Page 42
26 22. mars 2010 MÁNUDAGUR Húsgögn fyrir hagsýna Smiðsbúð 6, 210 Garðabæ, Sími 564 5040 w w w . h i r z l a n . i s Tilboð 49.900,- Fullt verð 66.900,- Tilboð 15.500,- Fullt verð 20.300,- kr. 18.800,- Beyki, Hvítt Hvítt, Hlynur, Kirsuber Bókahillur í úrvali Einkarekin í 17 ár! Tilboð 79.900,- Fullt verð 108.600,- Tilb oð Coffee Kirsuber Tilb oð Tilb oð FÓTBOLTI Englandsmeistarar Manchester United unnu lang- þráðan sigur á Liverpool í gær. Liverpool hafði unnið þrjár síð- ustu viðureignir liðanna áður en kom að þessum leik. Kóreumað- urinn Ji-Sung Park skoraði sigur- markið á Old Trafford og er Unit- ed á kunnuglegum stað á toppi deildarinnar. Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, var kampa- kátur eftir þennan sigur á erki- fjendunum. Hann hrósaði mið- varðaparinu Rio Ferdinand og Nemanja Vidic í hástert en sá síðarnefndi brá út af vananum og hélt sér inni á vellinum allan tímann í gær. Liverpool fékk óskabyrjun en Fernando Torres skoraði fyrsta mark leiksins með skalla eftir fimm mínútur. Umtalaðasta atvik leiksins gerðist svo sex mínútum síðar þegar United fékk vítaspyrnu. Javier Mascherano braut á Antonio Valencia en lík- lega átti brotið sér stað fyrir utan vítateiginn. Wayne Rooney steig á punkt- inn. Pepe Reina, markvörður Liverpool, náði að verja spyrn- una en Rooney náði frákastinu og skoraði. Sigurmarkið kom á 60. mínútu þegar Darren Fletcher átti fyrir- gjöf sem Park skallaði í netið. Fletcher og Park áttu báðir flott- an leik fyrir United en sá síðar- nefndi var fremstur á miðjunni og óhemju vinnusamur að vanda. „Þetta var mjög jafn leikur og lið Liverpool er gott í að stöðva flæði andstæðingsins. En við sýndum þolinmæði og markið frá Park Ji- sung var frábært. Hann átti enn einn stórleikinn og hefur reynst okkur mikilvægur,“ sagði Fergu- son eftir leik en hann vildi fá rautt spjald á Mascherano fyrir brotið á Valencia. „Ég get ekki séð hvernig nokkur maður hefði getað komið í veg fyrir skot frá Valencia. Þetta var upplagt marktækifæri og Mascherano verðskuldaði rautt.“ Rafael Benítez, knattspyrnu- stjóri Liverpool, var ekki sama sinnis og sakaði Valencia um leikaraskap. „Það eru einhverjar efasemdir um vítaspyrnudóminn. Þegar þú sérð endursýninguna þá er undarlegt hvernig hann féll til jarðar, Mér fannst þetta vera dýfa. Þetta skipti miklu máli. Við vorum að spila vel og vorum full- ir sjálfstrausts og síðan breytt- ist allt á einu augnabliki,“ sagði Benítez. elvargeir@frettabladid.is Park kom United á toppinn Manchester United er í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir helgina. Liðið vann Liverpool í gær þar sem Ji-Sung Park skoraði sigurmarkið með skalla. GULLS ÍGILDI Kóreumaðurinn Park tryggði United sætan sigur. NORDICPHOTOS/GETTY Úrvalsdeildin Blackburn - Chelsea 1-1 0-1 Didier Drogba (5.), 1-1 El Hadji Diouf (69.) Fulham - Manchester City 1-2 0-1 Roque Santa Cruz (6.), 0-2 Carlos Tévez (35.), 1-2 Danny Murphy (74.) Man Utd - Liverpool 2-1 0-1 Fernando Torres (4.), 1-1 Wayne Rooney (11.), 2-1 Park Ji-Sung (59.) Arsenal - West Ham 2-0 1-0 Denílson (4.), 2-0 Cesc Fábregas (82.). Aston Villa - Wolves 2-2 1-0 John Carew (15.), 1-1 Jody Craddock (22.), 2-2 Emile Heskey (81.) Everton - Bolton 2-0 1-0 Mikel Arteta (71.), 2-0 Steven Pienaar (88.). Portsmouth - Hull 3-2 0-1 Craig Fagan (26.), 1-1 Tommy Smith (36.), 1-2 Caleb Folan (72.), 2-2 Jamie O’Hara (87.), 3-2 Nwankwo Kanu (88.). Stoke - Tottenham 1-2 0-1 Eiður Guðjohnsen (45.), 1-1 Matthew Etherington (63.), 1-2 Niko Kranjcar (76.) Sunderland - Birmingham 3-1 1-0 Darren Bent (4.), 2-0 Darren Bent (10.), 2-1 Cameron Jerome (59.), 3-1 Anton Ferdinand (87.). Wigan - Burnley 1-0 1-0 Hugo Rodallega (91.) STAÐAN: Man Utd 31 22 3 6 72-25 69 Arsenal 31 21 4 6 73-33 67 Chelsea 30 20 5 5 70-28 65 Tottenham 30 16 7 7 55-29 55 Man City 29 14 11 4 55-37 53 Liverpool 31 15 6 10 50-32 51 Aston Villa 29 13 11 5 41-24 50 Everton 30 12 9 9 48-42 45 Birmingham 30 12 8 10 31-34 44 Fulham 30 10 8 12 33-34 38 Stoke City 30 8 12 10 29-35 36 Blackburn 30 9 8 13 32-49 35 Sunderland 30 8 10 12 40-46 34 Bolton 31 8 8 15 36-56 32 Wigan 31 8 7 16 29-59 31 Wolves 30 7 7 16 25-49 28 West Ham 30 6 9 15 37-51 27 Burnley 31 6 6 19 31-64 24 Hull City 30 5 9 16 29-64 24 Portsmouth 30 6 4 20 28-53 13 ENSKI BOLTINN FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen skoraði fyrra mark Tottenham er liðið lagði Stoke 2-1 á útivelli. „Það er nokkuð langt síðan ég skoraði mark og það er frábært að geta loks hjálpað liðinu og á heildina litið voru þetta stór úrslit fyrir okkur. Það er í okkar hönd- um hvort við komumst í Meist- aradeildina,” sagði Eiður eftir sigurinn. „Ég hef alltaf sagst vera fljótur á fyrstu metrunum og ég er mjög ánægður með markið mitt. Ég er þó enn ánægðari með stigin þrjú því það er ekki auðvelt að sækja sigur á Britannia-völlinn. Fólk hefur sínar skoðanir á leik- stíl Stoke en við þurftum bara að mæta þeim og vera tilbún- ir í alvöru bardaga. Við lékum góðan fótbolta á köflum og börð- umst vel,“ bætti Eiður við sem er á lánssamningi frá franska liðinu Monaco. Það hefur gengið erfiðlega hjá Eiði að vinna sér sæti í liði Tottenham en Harry Redknapp, stjóri Tottenham, vill halda Eiði Smára hjá liðinu. „Hann er topp- leikmaður og býr yfir frábærum hæfileikum. Fyrst Jermain Defoe er meiddur hefur hann hlutverk að leika hjá okkur. Ég vil halda honum hérna á næsta tímabili,“ sagði Harry Redknapp um Eið Smára eftir sigurinn gegn Stoke. - rog Eiður Smári skoraði fyrir Tottenham á laugardag: Ansi langþráð mark ÞAÐ FYRSTA Eiður skoraði sitt fyrsta mark fyrir Tottenham. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI „Þetta var svo sannar- lega sigur sem við verðskulduð- um, við sköpuðum fleiri færi,“ sagði Roberto Mancini, knatt- spyrnustjóri Manchester City sem vann 2-1 útisigur á Fulham í gær. Eftir sigurinn er City í fimmta sæti deildarinnar, tveim stigum fyrir ofan Liverpool og tveimur stigum á eftir Tottenham. Roque Santa Cruz kom City yfir eftir sjö mínútna leik í gær. Carlos Tevez bætti síðan við öðru marki fyrir City og staðan 2-0 í hálf- leik. Danny Murphy minnkaði mun- inn fyrir Fulham með eina marki síðari hálfleiksins. Það kom úr vítaspyrnu. Enski landsliðsmaðurinn Joleon Lescott meiddist í upphit- un og er óttast að hann verði frá í einhvern tíma. - egm Man City vann Fulham: Sterkur sigur á erfiðum útivelli BARÁTTA Tevez lætur finna fyrir sér. NORDICPHOTOS/GETTY Chelsea tapaði dýrmætum stigum í baráttunni: Er orðið erfiðara FÓTBOLTI „Það er orðið erfiðara fyrir okkur að vinna deildina en það er ekki ómögulegt samt,“ sagði Carlo Ancelotti eftir að Chelsea náði aðeins jafntefli við Blackburn á útivelli í gær. Leikurinn endaði með jafntefli 1-1. „Við töpuðum þarna tveimur dýrmætum stig- um. Við byrjuðum vel en náðum ekki að koma inn öðru marki og fengum það síðan í bakið.“ Chelsea er nú fjórum stigum á eftir Manchester United sem trónir á toppn- um en Lundúnaliðið á leik inn. Didier Drogba kom Chelsea yfir eftir aðeins sex mínútna leik með sínu 22. úrvalsdeildar- marki á tímabilinu. El- Hadji Diouf jafnaði fyrir Blackburn í seinni hálf- leik og liðin skiptu því stigunum á milli sín. „Ég veit ekki hversu mörg stig við þurfum til að vinna titilinn en við megum allavega ekki misstíga okkur meira. Við verðum að vinna á miðvikdudaginn,“ sagði Ancelotti en Chel- sea mætir Portsmouth í vikunni. - egm

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.