Fréttablaðið - 23.03.2010, Qupperneq 8
23. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR8
Eldgos á Fimmvörðuhálsi
Fermingargjöf sem gefur
Fermingarskeyti eða gjafabréf frá Hjálparstarfi kirkjunnar er gjöf
sem heldur áfram að gefa. Fermingarbarnið fær skeytið eða bréfið
í hendurnar en andvirðið rennur til jafnaldra fermingarbarnsins
sem býr við fátækt.
Sendu skeyti, það kostar 1.990 kr.
Eða gefðu fermingargjafabréf að upphæð 5.000 kr.
Þú færð skeytin og gjafabréfin á www.gjofsemgefur.is
eða pantar þau á skrifstofunni okkar, 528 4400.
Þú prentar út, sækir til okkar – eða við sendum fyrir þig.
Einfalt og gleðilegt.
Óskalistinn minn:
Rúm
Myndavél
Svefnpoki
iPod
Vefmyndavél
Handklæði
Teppi
Orðabók
Hálsmen
Svo væri gaman að fá
pening og „Gjöf sem
gefur“. Mig langar til
að einhver sem er ekki
eins heppinn og ég fái
að njóta með mér.
www.gjofsemgefur.is
Við systkinin erum munaðarlaus.
1.990 kr. fermingarskeyti á
Íslandi dugar fyrir 4 hænum.
Þær gefa okkur fullt af eggjum.
Eða við gætum fengið sparhlóðir.
Þá færi ekki allur dagurinn í að
leita að eldsneyti og við
hefðum meiri tíma til að læra.
5.000 kr. gjafabréf á Íslandi
myndi gefa okkur 2 geitur.
Namm! Mjólk og kjöt, ekki
lengur bara maísgrautur!
Eða kannski reiðhjól. Þá
kæmist ég á markað með
uppskeruna okkar og við
fengjum pening fyrir ýmsu
sem okkur vantar.
Óskalistinn minn:
„Það eru allir í viðbragðsstöðu,“
sagði Agnar Már Agnarsson, bóndi
í Hallgeirseyjarhjáleigu í Austur-
Landeyjum, þegar Fréttablaðið
spurði hann um búfjárhald nærri
gosstöðvunum.
Agnar Már hefur, eins og fleiri
bændur í nágrenni gosstöðvanna,
hvítan disk úti til að geta fylgst
með hvort öskufall sé hafið frá
gosinu. Um miðjan dag í gær var
þess ekki farið að gæta.
Agnar Már er með fjölda hrossa
úti og kvaðst ekki geta komið þeim
öllum í hús ef öskufall verði eða
flóð af völdum goss.
„Það þarf að passa upp á vatn
og gefa hrossunum minna í einu,
þannig að heyið standi ekki lengi
úti. Jafnvel gæti þurft að ferja
hrossin burt og á öruggara svæði
ef út í það færi. Við erum á hættu-
svæði og þurftum að rýma þegar
gosið hófst en höfum nú fengið að
snúa aftur heim,“ sagði Agnar Már.
Hann bætti við að myndi Katla
gjósa kæmi flóðið að líkindum í
farveg árinnar Affalls sem liggur
með jörðinni. Hún rennur um
Fljótshlíðina og útigangshross
Agnars drekka úr henni. Hann
kvaðst vera hálfsmeykur við að
öskufall kynni að berast með ánni
og þar með gætu hrossin veikst af
eitrun.
Katrín Andrésdóttir, héraðs-
dýralæknir á Suðurlandi, segir
best að hýsa allar skepnur ef vart
verður við öskufall. Sé ekki hús-
pláss, þá skuli gefa hey oft og
lítið í einu, gæta að því að hafa
ómengað vatn handa þeim, svo og
saltstein.
„Þessar skepnur eru oft salt-
hungraðar þegar líður að vori og
fara þá kannski að sleikja öskuna.“
jss@frettabladid.is
Allir í við-
bragðsstöðu
Bændur í nágrenni gosstöðvanna á Fimmvörðu-
hálsi eru í viðbragðsstöðu vegna öskufalls og jafnvel
flóða. Hvítur diskur utan dyra er gamalt og gott
ráð til þess að sjá hvort öskufall sé hafið. Það getur
reynst útigangandi búfénaði skeinuhætt.
Hætta á flúoreitrun er meiri af gosum
úr Eyjafjallajökli en Kötlu. Í jöklinum
er berg svipað og á Heklusvæðinu,
sem er með þrefalt magn af flúor.
Svo segir Sigurður Sigurðarson dýra-
læknir í samantekt um áhrif eldgosa
á dýr. Hér á eftir fara fróðleikspunktar
úr samantektinni.
■ Eitrun verður bráð ef mikið flúor
berst í líkamann á stuttum tíma,
en langvinn ef magn umfram það
sem skepnan losar sig við berst
stöðugt á löngum tíma.
■ Einkenni langvinnrar eitrunar eru
beinaskemmdir, vanþrif og lömun.
■ Flúor í miklu magni veldur kalk-
skorti eða doða í ám og kúm og
klumsi í hryssum.
■ Einkenni bráðrar eitrunar eru
deyfð, slefa og nasarennsli, hósti
og frís eða hnerrar, hröð öndun,
lystarleysi, niðurgangur, sjóndep-
urð og blinda, lömun og meðvit-
undarleysi. Nýrun geta skemmst
vegna eituráhrifa flúorsins.
■ Flúor sest fyrst og fremst að í tönn-
um og beinum. Áhrif langvinnrar
eitrunar eru ,,gaddur” og ,,fætlur”.
■ Gaddur myndast við misslit á
jöxlum, slitflötur verður ójafn, sem
gerir skepnunum erfitt að bíta,
tyggja og jórtra.
■ „Fætlur“ eru áhlæði af frauð-
kenndu beini á fótleggjum og slíkir
beinhnjóskar koma á fleiri bein svo
sem kjálka og rifbein.
EINKENNI FLÚOREITRUNAR Í DÝRUM
HUGAÐ AÐ HROSSUM Í FLJÓTSHLÍÐ Gæta þarf þess að gefa hrossunum minna í einu þannig að hey standi ekki lengi úti. Sömu-
leiðis þarf að passa vel upp á að brynna skepnunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þessar skepnur eru oft
salthungraðar þegar líður
að vori og fara þá kannski að
sleikja öskuna.
AGNAR MÁR AGNARSSON
BÓNDI Í HALLGEIRSEYJARHJÁLEIGU
Afar mikilvægt er að
fólk hlýði fyrirmælum
lögreglu um að yfirgefa
hættusvæði, segir Sveinn
K. Rúnarsson, yfirlög-
regluþjónn á Hvolsvelli.
Komi til þess að bjarga
þurfi fólki sem tekur
óþarfa áhættu, hefur
fólkið ekki bara sett sig
og sína í hættu, heldur
björgunarmennina líka.
Lögreglan á Hvolsvelli handtek-
ur fólk sem ekki hlýðir þessum
fyrirmælum, enda eru mannslíf í
húfi. Gossvæði flokkist vitanlega
undir hættusvæði.
„Ef við erum með fólk um allar
sveitir og símarnir detta úr sam-
bandi í flóði er þetta fólk alveg
einangrað, ef eitthvað kemur upp
á,“ segir Sveinn.
Í gær var rýmingu aflétt undir
Eyjafjallajökli og íbúar áttu því
að fá að sofa í rúmum sínum
í nótt. Hins vegar átti
að auka löggæslueftir-
lit. Eigendur sumarhúsa
voru beðnir um að koma
ekki á svæðið.
Afar mikil umferð var
í Fljótshlíðinni í gær og
víðar um svæðið. Lög-
reglan greip til þess að
loka helstu leiðum að
Fimmvörðuhálsi.
„Við hvetjum fólk til að
vera ekki inni á hættusvæðinu.
Þótt menn séu á stórum og mikl-
um bílum og telji sig færa í allt
þá erum við að eiga við náttúru-
öfl sem enginn getur sagt með
vissu hvernig haga sér,“ segir
Sveinn yfirlögregluþjónn.
Umdæmi Sveins er um fimmt-
án prósent af landinu og því
sinna alla jafna þrír lögreglu-
þjónar. Í gær voru tíu manns á
vaktinni.
- kóþ
Sveinn yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli við öllu búinn:
Handtekur fólk ef
það neitar að fara
UNG HANDAN ÖRYGGISLÍNU Fjöldi fólks lagði bílum sínum innst í Fljótshlíðinni í gær
og hvessti augun á jökulinn. Sumir fóru í stuttan spássitúr í átt að gosinu. Heima-
menn benda á að verstu ferðamennirnir séu þeir sem aka í leyfisleysi að jöklinum
og setja með því sjálfa sig og aðra í hættu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SVEINN K.
RÚNARSSON