Fréttablaðið - 23.03.2010, Side 12
12 23. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Laugavegi 172-174 · 590 5000 · hekla.is · hekla@hekla.isÞjónustuver og þjónustumóttökur: Opið frá 8-17 alla virka daga · Pantanasími 590 5030 · thjonusta@hekla.is. Netspjall á www.hekla.is.
Þú getur treyst því að við gerum betur við MitsubishiSverrir er sérfræðingur í bílum
sem bila eiginlega aldrei
Mitsubishi eigendur njóta góðs af áratugareynslu Sverris og félaga á Mitsubishi
þjónustuverkstæðinu. Þar sinna þeir þjónustu, viðgerðum og fyrirbyggjandi
eftirliti, bæði fyrir jeppa og fólksbíla. Láttu okkur gera betur við bílinn þinn.
100% þjónustulán án vaxta Val um upprunalega eða ódýrari varahluti Sérstök hraðþjónusta í boði Ókeypis forgreining
60+ eru samtök eldri borgara
innan Samfylkingarinnar
Stofnfundur
60+ í Reykjavík
Fundurinn verður haldinn í húsnæði Sam-
fylkingarinnar á Hallveigarstíg 1, 101 Reykja-
vík og hefst kl. 10.00 árdegis.
Við vonumst til að sjá sem fl esta til skrafs og
ráðagerða um félagsstarfi ð og vorið framund-
an. Sköpum blómlegt og skapandi félagsstarf,
á léttum nótum og okkur til upplyftingar.
Mætum öll og tökum með gesti.
Undirbúningsnefndin
Stofnfundur 60+ deildar í Reykjavík
verður haldinn fi mmtudaginn 25. mars
Allir velkomnir
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
SKIPULAGSMÁL Borgarráð hefur sam-
þykkt að gefa eiganda Baldursgötu
32 þrjátíu daga lokafrest til að fjar-
lægja húsið sem skemmdist í eldi á
fyrri hluta árs 2008.
Fyrir brunann höfðu þáverandi
eigendur hússins sóst eftir því að fá
að rífa það og byggja nýtt hús. Eftir
brunann var húsið sjálft síðan metið
óhæft til endurbyggingar. Borgin
hefur síðan tekið jákvætt í að veita
nýjum eigendum byggingarleyfi
fyrir nýju fjölbýlishúsi án þess þó
að leyfið hafi verið gefið út því full-
nægjandi uppdrætti skortir.
Í bréfi byggingarfulltrúa sem
tekið var fyrir í borgarráði á
fimmtudag kemur enn fremur fram
að niðurrif hússins hafi verið sam-
þykkt í desember 2008.
„Íbúar í nágrenni hússins hafa
með réttu kvartað mjög yfir
ástandi hússins og talið stafa frá
því fokhættu auk annarra óþæg-
inda,“ segir byggingarfulltrúinn.
Í ljósi þess hversu uppbyggingar-
áform hafi dregist á langinn sé rétt
að gefa húseigendunum nú þrjátíu
daga frest til að fjarlægja húsið og
undirstöður þess og tyrfa síðan lóð-
ina. Ella verði eigendurnir sektað-
ir um tuttugu þúsund krónur á dag
þar til verkið er unnið. - gar
Borgin gefur eiganda húss sem skemmdist í eldsvoða 30 daga frest til niðurrifs:
Dagsektir vegna hættu af brunahúsi
BRUNAHÚS Á BALDURSGÖTU Nágrannar
hafa með réttu kvartað undan ástandi
hússins á Baldursgötu 32, segir bygging-
arfulltrúinn í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/
STJÓRNMÁL Sjálfstæðisflokkurinn
fékk tæplega 332 milljónir króna
í styrki frá lögaðilum á fimm
árum, frá 2002 til 2006. Flokkur-
inn mun ekki birt nöfn gefenda í
óþökk þeirra. Þegar hafa ýmsir
aðilar neitað.
Landsbankinn styrkti flokkinn
mest, en á árunum fjórum runnu
44 milljónir króna þaðan til
flokksins í fjórum greiðslum, sú
hæsta árið 2006 upp á 30 millj-
ónir. Sama ár styrkti FL Group
flokkinn um 30 milljónir. Af
öðrum háum greiðslum má nefna
styrk Ístaks um 10 milljónir árið
2004. Þá styrkti Glitnir flokkinn
um 12,5 milljónir á árunum fjór-
um, KB banki um 9,5 og Samherji
um 11,2 milljónir króna.
Ekki er upplýst um nöfn 150
lögaðila sem gáfu til flokksins.
Jónmundur Guðmarsson, fram-
kvæmdastjóri flokksins, segir
þrennt skýra það; hluti hafi hafn-
að því að nöfn þeirra yrðu birt,
einhverjir ekki svarað og svara
sé von frá öðrum. Því gætu fleiri
nöfn átt eftir að bætast við.
- kóp
Sjálfstæðisflokkurinn birtir nöfn allra sem gáfu yfir 300 þúsund krónur:
Landsbankinn styrkti mest
STYRKIR TIL SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Tölur eru í þúsundum króna
Nafn 2002 2003 2004 2005 2006
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars 0 0 2.000 2.980 0
NN 4.050 4.500 2.350 1.100 0
FL Group 0 0 0 0 30.000
Glitnir Banki 3.000 3.500 500 500 5.000
HB Grandi 2.000 2.200 0 1.000 0
NN 4.500 4.500 4.500 0 0
NN 4.000 5.000 0 0 0
Ísl. aðalverkt. 0 0 5.000 0 0
Ístak 0 1.000 10.000 0 0
KB-Banki 500 1.000 2.000 2.000 4.000
Landsbankinn 0 4.000 5.000 5.000 30.000
NN 1.000 1.000 1.000 1.000 1.000
NN 2.000 2.000 2.000 2.400 0
Saga Film 2.500 3.500 0 0 0
Samherji 1.200 3.000 3.000 3.000 1.000
Sjóvá – Alm. 2.080 1.447 1.333 1.575 0
Skeljungur 4.000 2.000 0 0 0
NN 1.200 2.000 1.500 2.000 2.000