Fréttablaðið - 03.04.2010, Blaðsíða 2
2 3. apríl 2010 LAUGARDAGUR
SJÁVARÚTVEGUR „Í sjálfu sér höfum
við engu við okkar ráðgjöf að bæta
frá því í fyrra,“ segir Jóhann Sig-
urjónsson, forstjóri Hafrann-
sóknastofnunar. „Menn verða að
hafa hugfast að ákveðin nýtingar-
stefna í þorski er í gildi og almennt
ekki inni í myndinni að auka afla-
heimildir á þessu fiskveiðiári, frá
okkar bæjardyrum séð. Vitaskuld
getur komið til aukningar strax á
næsta fiskveiðiári ef nýjar upplýs-
ingar og úttekt að vori á fiskistofn-
unum gefur tilefni til þess.“
Jóhanna Sigurðardóttir forsæt-
isráðherra lýsti yfir áhyggjum
af atvinnuástandi víða um land
vegna yfirvofandi hráefnisskorts
í grein í Fréttablaðinu á fimmtu-
dag. Lokanir í landvinnslu eru
yfirvofandi og þær munu standa
vikum saman að óbreyttu. Í ljósi
þessa telur forsætisráðherra rétt
að það verði skoðað að auka afla-
heimildir.
Ríkisstjórnin mótaði hins vegar
í fyrra nýtingarstefnu í þorskveið-
um til fimm ára, eins og Jóhann
vísar til, og sendi Alþjóðahaf-
rannsóknaráðinu (ICES) bréf
þess efnis í lok maí. Samkvæmt
nýtingarstefnunni verður veiði-
ráðgjöf Hafró fylgt og byggt á því
að veiðihlutfall sé aldrei meira
en tuttugu prósent af viðmiðun-
arstofni. Þessi nýtingarstefna er,
frá hendi vísindamanna Hafró,
talin grundvöllur þess að tryggja
sterkari hrygningarstofn og bætta
nýliðun á næstu árum.
Jón Bjarnason, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra, sagði
aðspurður um orð forsætisráð-
herra að grundvallaratriðið sé að
standa vörð um sjávarauðlindina
til lengri og skemmri tíma; lög og
reglur takmarki auk þess aðgerð-
ir. Jón segist sem ráðherra ábyrg-
ur fyrir málaflokknum þegar allt
kemur til alls og það sé á hans
ábyrgð að ákveða hvort aflaheim-
ildir verði auknar.
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeigenda,
segir nauðsynlegt að auka afla-
heimildir í þorski úr 150 í 200 þús-
und tonn nú þegar, eins og sam-
bandið hafi mælt með um árabil.
„Ég fagna því að stjórnvöld séu
tekin að skoða þetta í alvöru og
efast ekki um að um þetta náist
samstaða í ríkisstjórninni.“
Örn segir ástæðulaust að hafa
áhyggjur af þorskstofninum. Sjó-
menn um allt land votti að fisk-
gengd sé nú áþekk því sem best
gerist. Þess vegna sé sárgræti-
legt að ræða við útgerðarmenn um
uppsagnir vegna hráefnisskorts.
svavar@frettabladid.is
Hafró leggst gegn
því að auka kvóta
Ríkisstjórnin mótaði nýtingarstefnu í þorski í fyrra sem gengur út frá því að
veiðiráðgjöf sé fylgt næst árin. Forsætisráðherra telur rétt að skoða auknar afla-
heimildir. Forstjóri Hafró telur það ekki inni í myndinni á þessu fiskveiðiári.
FARSÆLL Á VEIÐUM Sjómenn fullyrða að þorskgengd hafi sjaldan eða aldrei verið
meiri. FRÉTTABLAÐIÐ/JSE
ÖRN PÁLSSON JÓHANN
SIGURJÓNSSON
VIÐSKIPTI Séreignarsjóður Lífís
hefur verið sameinaður Frjálsa
lífeyrissjóðnum, að því er fram
kemur í tilkynningu Arion banka.
„Að mati Lífís var ekki hag-
kvæmt, eftir breytingar sem urðu
á lögum og reglum um starfsemi
séreignarsjóða, að reka sjóð af
þeirri stærðargráðu sem sjóður
Lífís var. Lagabreytingarnar fela í
sér aukinn kostnað sem hefur bein
neikvæð áhrif á eign sjóðsfélaga.
Í ljósi þessa leitaði Lífís til Frjálsa
lífeyrissjóðsins um sameiningu
sjóðanna“, segir í tilkynningunni.
Við sameininguna fluttust
yfir eignir 286 sjóðsfélaga Lífís.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn er 80
milljarðar að stærð með um 43
þúsund sjóðsfélaga. - óká
Séreign í sameinaðan sjóð:
Lagabreyting
jók kostnaðinn
SPURNING DAGSINS
Bjóðum heildarlausnir þegar endurnýja á góleppi
í stigagöngum í ölbýlis- og sambýlishúsum.
Taktu upp símann eða sendu okkur línu og við
göngum í málið.
Ármú la 32 · 108 Reyk j a v í k · S ím i 533 5060 · Fax 533 5061 · t epp i@stepp · www. s t epp . i s
Ó
!
·
1
3
1
3
6
teppi@stepp.is
Fréttablaðið kemur næst út á
þriðjudag. Afgreiðsla blaðsins
er lokuð í dag og næstu tvo daga.
Afgreiðslan verður aftur opin á
þriðjudag. Þjónustuver 365 er
opið frá klukkan 10 til 22 alla
daga, nema á morgun, páskadag,
en þá er opið til klukkan 18.
Útgáfa Fréttablaðsins:
Kemur næst út
á þriðjudag
Edda, ertu hátt uppi yfir
þessu?
„Já, alveg í skýjunum!“
Leikkonan Edda Björgvinsdóttir er orðin
flugfreyja og ætlar að starfa í sumar hjá
Iceland Express.
BANDARÍKIN/AP Atvinnuleysi í
Bandaríkjunum hélst stöðugt
í mars, en tæplega tíu prósent
vinnuaflsins ganga iðjulaus. Þó
telur Barack Obama forseti það
jákvætt merki að 162 þúsund ný
störf urðu til í mánuðinum. Það
er hið mesta í þrjú ár en þó undir
væntingum því spár gerðu ráð
fyrir um 200 þúsund nýjum störf-
um.
Obama forseti sagði í ræðu,
sem hann hélt í gær í verksmiðju
í Norður-Karólínu, að tölur um ný
störf væru hughreystandi vegna
þess að fleiri störf hafi orðið til en
tapast, eins og tilfellið hefur verið
á undanförnum mánuðum.
Forsetinn hefur sett atvinnu-
málin á oddinn og sagt þau mik-
ilvægasta innanríkismál Banda-
ríkjanna um þessar mundir.
Langtímaatvinnuleysi nær nú til
tæplega tíu milljóna manna, sem
er hið mesta í bandarískri sögu.
Obama undirritaði tvenn lög í
síðasta mánuði í baráttunni gegn
atvinnuleysinu. Annars vegar
skattaafslætti fyrir fyrirtæki
sem ráða atvinnulausa og mann-
aflsfrekar aðgerðir í samgöngu-
málum. - shá
Barack Obama Bandaríkjaforseti vongóður um viðsnúning í atvinnumálum:
Teikn á lofti um batnandi tíð
BANDARÍKJAFORSETI Barack Obama
viðurkennir að þrátt fyrir jákvæðar fréttir
af nýjum störfum sé langt í land.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
TRÚMÁL Gagnrýnin sem Benedikt
XVI. páfi hefur sætt vegna við-
bragða hans við kynferðisofbeldi
kirkjunnar manna gegn börnum
er áþekk svört-
ustu hliðum
gyðingaofsókna.
Þetta sagði tals-
maður Páfa-
garðs, Raniero
Cantalamessa, í
prédikun í gær.
Páfinn hefur
verið gagnrýnd-
ur fyrir linkind
í garð þeirra
presta sem gerst hafa sekir um
barnaníð. Páfagarður hefur jafn-
harðan svarað gagnrýninni og
sagt hana ósanngjarna.
Ummælin vöktu hörð við-
brögð og í New York söfnuðust
um tuttugu fórnarlömb barna níðs
kaþólskra presta saman til að mót-
mæla þeim. - sh
Prédikun í Páfagarði:
Segir gagnrýni
á páfa líkjast
gyðingahatri
FÓLK „Ég gæti trúað að þetta verði
sérstakt, að hlusta á gömlu sukkar-
ana taka lagið saman,“ segir Rúnar
Þór Pétursson, sem kemur í fyrsta
sinn fram á tónlistarhátíðinni
Aldrei fór ég
suður í heima-
bænum Ísafirði
í kvöld. Rúnar
Þór vinnur
þessa dagana að
breiðskífu með
sjálfum Megasi
og Gylfa Ægis-
syni.
Að sögn Rún-
ars Þórs hefur
þríeykið þegar lokið upptökum
á því lagi sem fyrst verður sett í
útvarpsspilun. Hann segist ekki
verða hissa ef lagið verður bann-
að strax. „Þetta eru kallarnir sem
tóku mig undir sinn verndarvæng
þegar ég kom frá Ísafirði. Fyrst
þvældist ég með Gylfa Ægis, en
þegar hann hætti að drekka fór ég
að þvælast með Megasi.“ - kg / sjá Allt
Rúnar Þór gerir breiðskífu:
Vinnur með
Gylfa og Megasi
RÚNAR ÞÓR
PÉTURSSON
Maður varð fyrir bíl
Ekið var á mann á Vesturlandsvegi,
skammt frá Grafarholti, síðdegis í gær.
Maðurinn var á vegum kranabílafyrir-
tækisins Króks að sækja bíl sem hafði
skemmst í árekstri þegar ekið var á
hann. Sjúkralið kom á vettvang en
talið var að maðurinn væri ekki mikið
slasaður.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SJÁVARÚTVEGUR „Þetta er í þriðja skipti sem við lend-
um í þessu sem sýnir að við erum undir eftirliti,“
segir Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals
hf. „Við höfum áður lent í þessu í Finnlandi og Ham-
borg í Þýskalandi fyrir nokkrum árum. Ætli maður
verði ekki að flytja kjötið út í kafbát til að fá frið.“
Sjö gámum af hvalkjöti var skipað í land í höfn-
inni í Rotterdam í Hollandi eftir aðgerðir fimmtán
félaga úr umhverfissamtökum grænfriðunga. Þeir
hlekkjuðu sig við flutningaskipið, sem heitir NYK
Orion, í gærmorgun og hafnaryfirvöld létu undan
kröfum þeirra. Um 140 tonn af langreyðarkjöti voru
í gámunum sjö.
Kristján setur stórt spurningarmerki við gæslu í
höfninni í Rotterdam. „Það er ekkert endilega gefið
að þessir náungar séu bara með mótmælaskilti á
sér. Það hafa dæmin sannað í gegnum tíðina,“ segir
Kristján.
Í tilkynningu frá samtökunum segir að sjö félag-
ar úr hreyfingunni hafi verið handteknir en þeir
saka Íslendinga um að hunsa CITES-sáttmálann,
sem kveður á um takmarkanir við sölu á afurðum af
villtum dýrum.
Kristján segir óþarfa að hafa áhyggjur því kjöt-
ið sé vel geymt í frystigámunum í höfninni og verði
sent til Japans með einum eða öðrum hætti. - shá
Grænfriðungar hindruðu útflutning á hvalkjöti í höfninni í Rotterdam:
Þriðja atlagan gegn Hval hf.
HVALKJÖT Um 140 tonn af hvalkjöti voru í gámunum sjö.
BENEDIKT XVI.
TRÚMÁL John
Forsythe, sem
er sjónvarps-
áhorfendum að
góðu kunnur
sem olíujöf-
urinn Blake
Carrington úr
sápuóperunni
Dynasty, lést í
gær úr lungna-
bólgu, 92 ára að aldri.
Forsythe hefur undanfarið ár
barist við krabbamein í ristli.
- sh
Olíujöfurinn úr Dynasty:
John Forsythe
er fallinn frá
JOHN FORSYTHE