Fréttablaðið - 03.04.2010, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 03.04.2010, Blaðsíða 26
26 3. apríl 2010 LAUGARDAGUR Það er gerlegt, skemmtilegt og gefandi að vinna með börn- um með ADHD. Í sumar mætir Gauraflokkurinn í fjórða sinn í Vatnaskóg til að skemmta sér og njóta lífsins í heila viku, fjarri öllu hversdag- samstri. Gauraflokkurinn er sumarbúðaflokkur í Vatnaskógi fyrir drengi með ADHD og skyldar raskanir. Bóas Valdórsson sálfræðing- ur er einn upphafsmanna Gauraflokks- ins. Hann er strax farinn að hlakka til ferðar sumarsins. „Við erum ekki að bjóða þessum strákum upp á með- ferð og markmiðið er ekki að „laga“ þá eða breyta þeim. Við mætum þeim bara þar sem þeir eru og leyfum þeim að njóta sín,“ segir Bóas til að útskýra hugmyndafræðina að baki Gauraflokkn- um. Nóg pláss fyrir alla Strákar með ofvirkni og athyglisbrest njóta sín oft á tíðum ekki vel í venjuleg- um sumarbúðum. „Við áttum oft erfitt með að mæta þörfum stráka með ADHD í venjulegu skipulagi,“ segir Bóas. „Þess vegna varð þessi hugmynd til, að búa til flokk sem strákar með ADHD gætu komið í og notið sín. Og foreldrar þeirra gætu verið rólegir á meðan, fullvissir um að þörfum drengjanna yrði mætt og upplifunin ánægjuleg fyrir þá. Það sé raunverulega gert ráð fyrir þeim, og nóg pláss fyrir þá, með öllu því sem þeir búa yfir.“ Til þess að mögulegt sé að veita drengjunum þessa þjónustu er starfs- mannafjöldi í Gauraflokknum mun meiri en í venjulegum búðum og dreng- irnir færri. Hlutfallslega eru um þrisvar sinnum fleiri starfsmenn á hvern dreng í Gauraflokki en í hefðbundnum búðum. Í hópi aðstandenda er allt það hressa og glaða starfsfólk, sem jafnan heldur utan um starfið í sumarbúðum, auk hóps af fagfólki sem hefur sérfræðiþekkingu í þessum erfiðleikum barna, til að mynda sérkennarar, listmeðferðarfræðing- ur og sálfræðingar. „Við gætum þess að starfsfólkið hafi nóg svigrúm fyrir strákana. Ef eitthvað kemur upp er því bara reddað, það er ekkert stress og truflar hvorki strákana sjálfa né dag- skrá hinna. Þetta getur verið erfitt að endurtaka í hefðbundnum flokki, eða í skólastarfi, þar sem hver starfsmaður hefur mjög ákveðin verk sem þarf að sinna og lítið má út af bregða.“ Sérúrræði sem virkar Bóas og félagar fá oft þá spurningu hvort það sé rétt að draga stráka með ADHD út úr félagsskap annarra stráka og smala þeim saman á einn stað. „Í upp- hafi stóðum við frammi fyrir því að fara þessa blönduðu leið, eins og skólakerfið gerir jafnan, eða bjóða upp á sérúrræði. Við völdum að prófa sérúrræðið og mér finnst það hafa komið mjög vel út.“ Ákveðinn styrkleiki og stuðningur felist í því að allir drengirnir sitji við sama borð. Stór hluti þeirra taki lyf og í Gauraflokknum sé það til að mynda ekk- ert feimnismál. „Ég hef enn ekki séð nei- kvæðar hliðar á að hafa fyrirkomulag- ið svona. Auðvitað er krefjandi að vera með svona marga stráka með ADHD og það krefst mikils skipulags. En það er mjög skýrt hvað við ætlum okkur og mér finnst foreldrakönnun sem við létum gera staðfesta að okkur hefur tek- ist að láta strákunum líða vel. Það var okkur líka mikils virði að fá Samfélags- verðlaun Fréttablaðsins. Í því fólst bæði stuðningur við starfið og aðstoð við að miðla því til annarra að það sé gerlegt, skemmtilegt og gefandi að vinna með börnum með ADHD.” Hefðbundin sumarbúðadagskrá Gauraflokkurinn er í boði einu sinni á Aðalmálið að strákarnir skemmti sér Í Gauraflokknum í Vatnaskógi safnast saman strákar alls staðar að af landinu sem eiga það sameiginlegt að vera með athyglisbrest og ofvirkni. Bóas Valdórsson, einn aðstandenda flokksins, lýsti því fyrir Hólmfríði Helgu Sigurðardóttur hvernig strákar með ADHD, sem oft á tíðum njóta sín illa í hefðbundnum sumarbúðum, blómstra þegar þeir finna að það er nóg pláss fyrir þá eins og þeir eru. AÐSTANDENDUR GAURAFLOKKSINS Ársæll Aðalbergsson, framkvæmdastjóri hjá KFUM, og Bóas Valdórsson sálfræðingur segja ga og ofvirkni njóti sín í Gauraflokknum í Vatnaskógi. Reynslan sýni nefnilega að börn með ADHD njóti sín oft ekki vel í hefðbundnu 8.30 Vaknað 9.00 Morgunmatur 9.30 Biblíulestur 10.15 Frjáls tími eða val 12.00 Hádegisverður 12.30 Frjáls tími eða val 15.00 Kaffi 15.30 Frjáls tími eða val 18.00 Kvöldmatur 18.30 Frjáls tími 20.30 Kvöldhressing 21.00 Kvöldvaka, kapellustund fyrir þá sem vilja 23.00 Ró Dæmigerður dagur í Gauraflokknum sumri, dvölin stendur yfir í eina viku og drengirnir eru alls 55 talsins, flest- ir á aldrinum tíu til tólf ára. Dagskráin er ekki mjög frábrugðin dagskrá venju- legra flokka, en hefur samt sem áður verið aðlöguð þörfum drengjanna. Til að mynda er þess gætt að þeir hafi allt- af val; ef þeir njóta sín til að mynda ekki á kvöldvöku eða á öðrum föstum dag- skrárliðum standi þeim eitthvað annað til boða. Þá er allt skipulag einfaldað og í grunninn boðið upp á færri dag- skrártilboð í einu, en um leið er alltaf þessi möguleiki að flakka á milli. Dag- arnir snúast um leiki, siglingar, lista- smiðjur og þar fram eftir götunum. Það kom Bóasi að mörgu leyti á óvart að sjá hversu duglegir margir drengjanna með ADHD eru að dunda sér. Til að mynda hafi eitt vinsælasta sportið eitt sumarið verið að perla. Í fyrra voru á staðnum tveir nemar frá Kennaraháskólanum á Laugarvatni, sem voru í því að laga íþróttiðkun að þörfum drengjanna. „Strákar með ADHD eiga oft erfitt með að njóta sín í hefðbundnum íþróttum, eins og fótbolta eða frjálsum íþróttum. Nemarnir fóru í það að laga íþróttaþáttinn að þeirra þörfum, taka upp styttri fótboltaleiki og stöðvaleiki og láta strákana vera með í að byggja brautirnar. Þetta gekk rosalega vel.“ Enginn aukakostnaður Bóas hefur sjálfur kynnst mörgum drengjanna í starfi sínu sem sálfræðing- ur hjá barna- og unglingageðdeild Land- spítalans. Hann segir gott að sjá þá njóta sín í sumarbúðunum. „Það var ákveð- inn toppur hjá okkur í fyrra þegar einn strákurinn kom til okkar og sagði, mjög hissa: „Það er bara enginn skammaður hérna!“ Þetta var frábært, því við erum ekki að styðjast við neinar töfralausnir. Við erum einfaldlega að styðjast við við- urkenndar aðferðir við að mæta börnum með ADHD, sem mælt er með í kennslu- fræðum og sálfræði. Við höfum vandað okkur við að halda í þessa lykilþætti – að vera með rétt starfsfólk og hafa svigrúm * Í frjálsum tíma er boðið upp á þrjá til fjóra dagskrárliði á hverjum tíma þar sem drengirnir geta flakkað á milli verkefna eftir áhuga hverju sinni. Má þar nefna báta, smíðaverkstæði, listasmiðju, íþróttahús, borðtennis, heita potta, útivist og ýmislegt fleira.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.