Fréttablaðið - 03.04.2010, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 3. apríl 2010 27
aman að sjá hversu vel drengir með athyglisbrest
um sumarbúðum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Gauraflokkurinn
hlaut Samfélagsverð-
laun Fréttablaðsins
fyrir skömmu í
flokknum Frá kynslóð
til kynslóðar, en
verðlaunin voru veitt við hátíðlega
athöfn í Þjóðmenningarhúsinu 19.
mars. Þar var á annað hundrað
manns samankomnir til að gleðjast
með þeim rúmlega 20 einstakling-
um og samtökum sem útnefnd voru
í fjórum flokkum Samfélagsverð-
launanna.
Markmið Samfélagsverðlauna
Fréttablaðsins er að vekja athygli á
broti af því kærleiksríka starfi sem
unnið er víða í íslensku samfélagi.
Hlutu Samfélagsverð-
laun Fréttablaðsins
SAMFÉLAGSVERÐLAUN
Athyglisbrestur og ofvirkni, eða
ADHD, er taugaþroskaröskun sem
kemur yfirleitt fram fyrir 7 ára aldur
og getur haft víðtæk áhrif á daglegt
líf.
Nýjar rannsóknir sýna að 5 til 10
prósent barna og unglinga glíma
við athyglisbrest og ofvirkni. Í hópi
barna með ADHD eru þrír drengir á
móti hverri einni stúlku. Nýjar rann-
sóknir benda þó til að fleiri stúlkur
séu með ADHD en áður var talið,
en þær koma síður til greiningar.
Nýjar bandarískar rannsóknir sýna
að 4,4 prósent fullorðinna eru með
ADHD.
Rannsóknir benda til að orsakir
ADHD sé að leita í truflun í boð-
efnakerfi heila á stöðum sem gegna
mikilvægu hlutverki í stjórn hegðun-
ar. Erfðir gegna mikilvægu hlutverki,
en talið er að þær útskýri 75 til 95
prósent ADHD-einkenna.
Helstu einkenni ADHD eru
athyglisbrestur, hvatvísi og hreyfi-
óróleiki. Þá er til í dæminu að börn
séu með athyglisbrest án ofvirkni
en þá kemur fram athyglisbrestur
en óveruleg einkenni hvatvísi og
hreyfióróleika.
Heimild: Heimasíða ADHD sam-
takanna, www.adhd.is.
Hvað er ADHD?
„Aðalmálið er að taka vel á móti stelpum sem hafa ef til vill ekki mikið verið að fara í
sumarbúðir hingað til,“ segir Hrund Þrándardóttir sálfræðingur sem skipuleggur stelpu-
flokk í Kaldárseli í sumar, fyrir stelpur með ADHD eða sambærilegar raskanir. „Þetta
verður sambærilegt því sem boðið er upp á í Vatnaskógi fyrir Gauraflokkinn. Aðalmark-
miðið okkar er að bjóða upp á öruggt og skemmtilegt umhverfi sem stelpurnar geta
notið sín í með sínar þarfir, sem eru oft ólíkar þörfum annarra.“
Líkt og í Gauraflokknum verður fleira starfsfólk um hverja stelpu og auk þess fleira
fagfólk á staðnum.
Hrund segir það oft gerast að stelpur með ADHD týnist, enda séu þær oft á tíðum
eingöngu með athyglisbrest en ekki ofvirkni. Það valdi því að þær sé ekki eins fyr-
irferðarmiklar og týnist hálfpartinn. Þó séu líka mörg dæmi um stelpur sem séu líka
ofvirkar. ADHD er þrisvar sinnum algengara hjá strákum en stelpum.
Sjálf starfaði Hrund með Gauraflokknum í fyrra og heillaðist mjög. „Ég varð mjög hrifin
af þessu fyrirkomulagi. Ég heyrði það líka frá einum guttanum þarna að honum hafi
fundist svo æðislegt að hann ætli að koma aftur og aftur, þangað til hann verður full-
orðinn en þá ætlar hann að vinna í Vatnaskógi. Krakkar með ADHD eru svo skemmti-
legir. Það er algjör synd ef þeir ná ekki að njóta lífsins eins og önnur börn.“
Áætlað er að sumarbúðirnar fyrir stelpur með ADHD verði frá 1. til 5. júní. Skráning
hefst 6. apríl á heimasíðu KFUK, www.kfuk.is.
Stelpurnar fá líka sínar sumarbúðir
og sveigjanleika í dagskránni til að
geta brugðist við óvæntum uppák-
omum.“
Það standi upp úr að í upphafi
fengu aðstandendur Gauraflokksins
að heyra úr ýmsum áttum að þetta
væri algjört glapræði. Það ætti
aldrei eftir að ganga upp að safna
svo mörgum drengjum með ADHD
saman á einn stað. Hins vegar hafi
berlega komið í ljós að það sér ger-
legt og það sem meira er – strákarn-
ir njóti lífsins upp til hópa vel í heila
viku. Til þess sé leikurinn gerður.
Foreldrar drengja í Gauraflokkn-
um greiða sama daggjald og greitt
er fyrir aðra flokka i sumarbúð-
um KFUM. Allur aukakostnaður
er greiddur með styrktarfé sem
aðstandendur Gauraflokksins afla.
Opnað verður fyrir skráningu í
Gauraflokk sumarsins 2010 þriðju-
daginn 6. apríl á heimasíðu KFUM,
kfum.is.