Fréttablaðið - 03.04.2010, Blaðsíða 70
50 3. apríl 2010 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
SJÓNVARPSÞÁTTURINN
LÁRÉTT
2. hland, 6. persónufornafn, 8.
skammst., 9. gogg, 11. tveir eins, 12.
miklu, 14. digurmæli, 16. leita að, 17.
sönghópur, 18. munda, 20. bókstafur,
21. lap.
LÓÐRÉTT
1. stjórnarumdæmis, 3. ryk, 4. skáld-
saga, 5. dæling, 7. tilgátu, 10. yfirgaf,
13. stormur, 15. fituskán, 16. sódi,
19. bor.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. piss, 6. ég, 8. möo, 9. nef,
11. gg, 12. stóru, 14. grobb, 16. gá, 17.
kór, 18. ota, 20. ká, 21. sull.
LÓÐRÉTT: 1. léns, 3. im, 4. sögubók,
5. sog, 7. getgátu, 10. fór, 13. rok, 15.
brák, 16. gos, 19. al.
Dúóið Heima sem er búsett í Xiamen í Kína hefur
sent frá sér myndband við lagið I Know You. Þar er
þjóðerniskenndin í fyrirrúmi og yfirgangur Breta
gagnvart Íslendingum vegna Icesave-málsins gagn-
rýndur.
„Við sátum við tölvuna og vorum að horfa á BBC-
viðtalið við Ólaf Ragnar og sáum þá einnig sjón-
armið breskra fjölmiðla. Inngangurinn að við-
talinu var svo ósanngjarn gagnvart fallega landinu
okkar og öllu fólkinu sem hafði ekkert að gera með
þetta Icesave-mál,“ segir Elín Jónína Ólafsdóttir
úr Heima. Hún hefur búið í fjögur ár í Kína ásamt
manni sínum Rúnari Sigurbjörnssyni, hinum helm-
ingi dúósins. „Þetta vakti hjá okkur þvílíka þjóðern-
iskennd að við vorum næstum því eins og Amer-
íkanar allan þann dag. Eina leiðin til að tjá þær
tilfinningar var að semja þetta lag sem við frum-
fluttum svo á tónleikum daginn eftir. Það var góð
tilfinning.“
Aðspurð segir Elín að Kínverjar hafi góðan skiln-
ing á vanda Íslendinga. „Fréttir héðan af Íslandi
bera allar þann keim að Kínverjum finnst að það sé
verið að ráðast ansi hart að okkur varðandi Icesave
og að það ætti að gefa okkur tíma til að átta okkur
á stöðunni og leyfa okkur að finna sanngjarna leið
til að borga þessar skuldir. Svo það má segja að það
séu engir fordómar gagnvart Íslandi í Kína, einung-
is stuðningur,“ segir hún.
Lagið I Know You er tekið af plötunni The Long
Road Home sem kom út í Kína síðasta haust. Platan
hefur enn ekki verið gefin út á Íslandi. Hægt er að
hlusta á plötuna og skoða nýja myndbandið á síðunni
Heimaworld.com. -fb
Íslensk þjóðerniskennd í Kína
„Þeir keyptu bara handritið. Eru
þetta einhverjir peningar? Maður fær
náttúrulega höfundarlaun en þetta
veltur allt á því hvað verkið er sýnt
lengi,“ segir Gísli Örn Garðarsson
en Aurora-leikhúsið í San Fransisco
hefur keypt leikgerð hans og Davids
Farr að verki Kafka, Hamskiptunum,
sem leikhópurinn Vesturport hefur
sýnt úti um allan heim. Gísli segist
lítið vita um leikhúsið en skilst að það
sé hluti af hinum óháða geira í banda-
ríska leikhúsheiminum.
Og leikstjórinn og leikarinn segist
ekki hafa hugmynd um hvernig leik-
húsið komst yfir þessa leikgerð. „Þeir
voru búnir að liggja yfir einhverj-
um útgáfum af þessu verki og völdu
okkur,“ segir Gísli en hann kemur
ekkert nálægt þessari uppsetningu
heldur mun leikhúsið bara notast við
sína eigin leikstjóra og leikara.
Gísli er nýkominn heim frá kólumb-
ísku borginni Bogota þar sem Vest-
urport sýndi einmitt Hamskiptin á
einni stærstu leikhússýningu heims.
„Þetta var mjög sérstök lífsreynsla,
þarna gengu miðar kaupum og sölum
á svörtum markaði, lögreglumenn
með vélbyssur á hverju götuhorni og
sprengjuleit fyrir hverja sýningu. En
það gekk allt rosalega vel hjá okkur
og það var fullt á öllum sýningunum
sex,“ segir Gísli og hrósaði þeim Vík-
ingi Kristjánssyni og Selmu Björns-
dóttur alveg sérstaklega en þau léku
í þessari sýningu í fyrsta skipti.
„Það mæddi mikið á þeim en
þau stóðu sig alveg eins og
hetjur.“ - fgg
Hamskiptin til San Francisco
KEYPT TIL AMERÍKU Hamskiptin
eftir David Farr og Gísla Örn
Garðarsson verður sett upp
í Aurora-leikhúsinu í San
Fransisco.
ÚR MYNDBANDINU Í myndbandinu við lagið I Know You er
þjóðerniskennd þeirra Elínar og Rúnars í fyrirrúmi.
„Ég er farinn að viða að mér efni
og draga saman staðreyndir sem
gott er að hafa á hreinu áður en
maður byrjar að taka viðtöl,“ segir
Jónatan Garðarsson, sem skrifar
ævisögu tónlistarmannsins Karls
Sighvatssonar. Karl spilaði meðal
annars með Trúbroti og Þursa-
flokknum, en lést sviplega í bíl-
slysi á Hellisheiði fjörutíu ára
gamall árið 1991.
„Það hefur eiginlega ekkert
verið skrifað um Karl,“ segir Jón-
atan. „Hann var mjög ungur þegar
hann byrjaði í tónlistinni. Var ekki
nema 10 ára þegar hann stofnaði
fyrstu hljómsveitina upp á Skaga.
Svo var hann í hljómsveit í Reyk-
holti en fljótlega eftir að hann kom
til Reykjavíkur var hann byrjað-
ur í böndum. Fyrst smá tíma í
Tónum, þá í Dátum og svo stofn-
aði hann Flowers. Svo er sú saga
þekkt hvernig hann fór yfir í Trú-
brot og svo úr og í bandið. Skóla-
gangan hjá honum var gloppótt.
Hann fór í nám til Austurríkis og
var þar í tæp tvö ár og svo löngu
seinna í skóla í Berkeley í Kali-
forníu. Hann var svo starfandi
sem organisti fyrir austan fjall
þegar hann lést.“
Þeir Jónatan og Karl þekktust
ágætlega. „Við áttum samskipti á
ýmsum sviðum í gegnum tíðina.
Þegar ég stofnaði Jazzvakningu
með öðrum kom hann oft á djass-
kvöld og djammaði. Eftir að ég fór
í plötuútgáfubransann tengdist ég
honum og eins þegar ég starfaði
sem blaðamaður. Ég myndi lýsa
honum þannig að hann var snöggur
að öllu. Hann var kvikur og ör og
vinmargur, fór víða um og stopp-
aði yfirleitt stutt. Á föstudeginum
áður en hann dó kom hann til mín
á skrifstofuna. Ég var á fundi svo
hann sagðist ætla að koma aftur á
mánudaginn og ræða málin. Hann
ætlaði að koma með einhverja hug-
mynd. Svo frétti ég bara af því á
sunnudagskvöldinu að hann væri
dáinn.“
Bókin um Karl Sighvatsson er
fyrsta „rokkbókin“ sem heyrist
af í ár. Í fyrra var mikil spreng-
ing í þessari tegund bókmennta
þegar ævisögur um menn eins
og Magnús Eiríksson og Vilhjálm
Vilhjálmsson komu á markaðinn,
auk bókarinnar 100 bestu plöt-
ur Íslandssögunnar, sem Jónatan
skrifaði með Arnari Eggerti Thor-
oddsen. Það var fyrsta bókin sem
Jónatan skrifaði, en hann hefur
skrifað mikið um tónlist á plötu-
kápur og í dagblöð. Æskan gefur
bókina um Karl út í haust.
drgunni@frettablaðið.is
JÓNATAN GARÐARSON: SKRIFAR ÆVISÖGU KARLS SIGHVATSSONAR
Hann var snöggur að öllu
KVIKUR OG ÖR
OG VINMARGUR
Jónatan Garðarsson
skrifar ævisögu Karls
Sighvatssonar, sem á að
koma út í haust.
Opið í IÐU um helgina.
Laugardag 9-22, mánudag 2. í páskum 10-22, lokað páskadag.
Sígild fermingar
gjöf
Viku-
tilboð
7.950
5.990,-
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Edda verður flugfreyja í sumar.
2 Plata Jónsa heitir Go.
3 Aron Bergmann.
„Ég elska að fá hroll yfir Klovn.
Svo jafna ég mig með þáttunum
hans David Attenboroughs.“
Atli Þór Albertsson leikari.
Tom Selleck-mottukeppnin var
haldin á Boston í byrjun vikunnar
eins og lesendur Fréttablaðsins
ættu að vita. Aron Bergmann var
sigurvegari kvöldsins eftir harða
keppni við nokkra vel hærða
karlmenn. Það var þétt setinn
bekkurinn á Boston og í áhorf-
endahópnum voru meðal annars
nokkrir útlendingar sem virtust
hálf hissa á þessari undarlegu
samkomu. Meðal þeirra var Chris
Harrison sem er kynnir í Bachel-
orette-þáttunum en eins og
Fréttablaðið hefur sagt
frá standa nú yfir tökur
á þeim hér á landi.
Harrison lét lítið fyrir
sér fara en þeir sem
gáfu sig á tal við hann
sögðu að hann hefði
virst vera hálf
hissa á því hvað
fáir könnuðust
við sig.
Það rekur hver gleðifréttin
aðra hjá Halldóru Rut
Bjarnadóttur þessa
dagana. Hún gengur
nú með fyrsta barn
sitt og Víkings
Kristjánssonar
leikara og í vikunni
fékk hún þær
fréttir að hún hafi
fengið inngöngu
í leiklistardeild
Listaháskólans.
Daníel Bjarnason, sem nýverið
hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin
sem höfundur ársins, fær góða
dóma fyrir plötu sína Processions
á tónlistarsíðunni Drowned In
Sound. Platan fær 8 af 10 mögu-
legum í einkunn þar sem Daníel
er hrósað fyrir að vera blátt áfram
í tónlistarsköpun sinni
og eiga auðvelt með að
koma hlustandanum
á óvart. Sannarlega
góðar fréttir fyrir
þennan efnilega
tónlistar-
mann.
- hdm, fb
FRÉTTIR AF FÓLKI