Fréttablaðið - 03.04.2010, Side 8

Fréttablaðið - 03.04.2010, Side 8
8 3. apríl 2010 LAUGARDAGUR Frábær gestakennari Laruga Glaser verður hjá okkur í apríl og maí. Fleiri spennandi kennarar koma í heimsókn í ár. Allir kennarar í yoga shala hafa alþjóðleg kennara- réttindi í yoga og áralanga reynslu sem iðkendur og kennarar. 13. april ~ Ashtanga vinyasa byrjendanámskeið Kennarar: Ingibjörg og Laruga 3. maí ~ Vinyasa flæði byrjendanámskeið Kennari: Gummi Skráning á yoga@yogashala.is Opnir tímar fyrir byrjendur og lengra komna. Hot yoga á morgnana með Lönu og dagurinn verður frábær. Hatha yoga í hádeginu og þú endurnýjar orkuna þína. Yoga á vinnustöðum. Einkatímar. Stundarskráin er á netinu www.yogashala.is Engjateig 5, 2. hæð, S. 553 0203 KOMDU Í YOGA! Laruga Glaser ~ gestakennari A N T O N & B E R G U R 1. Edda Björgvinsdóttir er að hefja störf á nýjum vettvangi. Hvaða? 2. Hvað kallast ný sólóplata Jónsa í Sigur Rós? 3. Hver bar sigur úr býtum í Tom Selleck-mottukeppninni í liðinni viku? SVÖR Á SÍÐU 50 SJÁVARÚTVEGUR Jón Bjarna- son, sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra, hefur úthlutað 500 tonna við- bótarkvóta í skötusel með þeirri aðferð sem mælt er fyrir um í umdeildum skötuselslögum. Hvert skip getur mest fengið fimm tonn af við- bótarkvótanum en þarf að greiða ríkinu 120 krónur fyrir hvert kíló. Bannað er að fram- selja viðbótarkvótann. Fiskistofa mun úthluta viðbótar- kvótanum fyrir 3. maí. Verði sótt um meira en 500 tonn á að skipta því sem til ráðstöfunar er jafnt milli umsækjenda. Í tilkynningu frá sjávarút- vegsráðuneytinu segir að þessi ákvörðun hafi verið tekin í samráði við Hafrann- sóknastofnun. Áður hafði ráðherrann úthlutað 2.500 tonna skötuselskvóta án endurgjalds til þeirra sem eiga aflahlutdeild byggða á tegundinni. Það var sama magn og Hafró taldi ráð- legt að veiða á þeim tíma. Landssamband íslenskra útvegsmanna lagði þá til að úthlutað yrði 3.000 tonna heild- arkvóta, eða jafnmiklu og nú hefur verið leyft að veiða úr stofninum þetta árið. Eigendur aflahlutdeildar njóta hins vegar einskis úr viðbótinni nema þeir greiði 120 krónur fyrir kílóið, eins og aðrir umsækjendur. - pg Ráðherra úthlutar 500 tonna skötuselsviðbótarkvóta: Hvert skip getur mest fengið fimm tonn JÓN BJARNASON HAAG, AP Bandarískur hershöfð- ingi, sem kenndi hugleysi homma í hollenska hernum um fjölda- morð Serba á 8.000 múslimum í Srebrenica í Bosníu, hefur beðist afsökunar á ummælunum. Paul Sheehan, fyrrverandi hershöfðingi, var í yfirheyrslu hjá bandarískri þingnefnd til að berjast gegn því að hommar fái að starfa sem bandarískir her- menn þegar hann lét ummælin sér um munn fara. Þeim var beint að hollenskum friðargæsluliðum sem voru við störf á vegum Sam- einuðu þjóðanna árið 1995. Sheehan sendi á föstudag hol- lenskum starfsbróður bréf og kvaðst iðrast. Einstakir hermenn beri enga ábyrgð á voðaverkun- um. - pg Hershöfðingi iðrast ummæla: Fjöldamorðin ekki hommum að kenna AFGANISTAN, AP Í Afganistan er ekki einungis framleitt meira ópíum en í öðrum löndum, heldur eru Afgan- ir nú einnig orðnir afkastamestir ríkja heims í framleiðslu á hassi. Sameinuðu þjóðirnar telja að á ári hverju séu 10 til 24 þúsund hektarar af landi notaðir undir kannabisrækt. Úr þessu eru svo framleidd 1.500 til 3.500 tonn af hassi árlega. „Þótt önnur lönd rækti enn meira af kannabis, þá er það þessi ótrú- lega mikla framleiðni úr afgönsku kannabisuppskerunni sem gerir landið að stærsta hassframleið- anda heims,“ segir Antonio Maria Costa, yfirmaður fíkniefna- og sakamálaskrifstofu Sþ. Í Afganistan tekst bændum að vinna 145 kíló af hassi úr kanna- bisuppskeru af einum hektara, en í Marokkó, svo dæmi sé tekið um annað afkastamikið hassfram- leiðsluland, er afkastagetan rétt um 40 kíló af hassi á hektara. Nú er svo komið að veruleg hass- framleiðsla er í 17 af 34 héruðum Afganistans. Mest er þetta í suður- hluta landsins, þar sem átök hafa verið hörð og ítök talibana sterkari en annars staðar í landinu. Árum saman hefur verið reynt að uppræta ópíumrækt í landinu, en með takmörkuðum árangri. Víða hafa bændur brugðist við með því að rækta kannabis í stað- inn fyrir ópíum. Costa segir að afganskir bænd- ur kjósi þó fremur að framleiða ópíum en hass, og rækti því kanna- bis frekar á sumrin þegar vatn er af skornum skammti. Í Afganistan eru framleidd um 90 prósent af öllu því ópíumi sem selt er í heiminum. Þessi búgrein afganskra bænda hefur verið notuð til að fjármagna uppreisnarhernað talibana. Hún hefur einnig átt sinn þátt í að viðhalda útbreiddri spill- ingu meðal stjórnvalda. „Öll fíkniefni í Afganistan, eru skattlögð af þeim sem ráða á staðn- um, og útvega uppreisnarhópum þannig viðbótartekjulind,“ segir Costa. - gb Kannabis- og ópíumrækt fjármagnar hernað talíbana: Langmest framleitt af hassi í Afganistan FÍKNIEFNI BRENND Þrátt fyrir að árum saman hafi uppskerur verið eyðilagðar í Afganistan hefur framleiðsla fíkniefna ekkert dregist saman. NORDICPHOTOS/AFP HEILBRIGÐISMÁL Unglæknar höfn- uðu í gær málamiðlunartillögu í deilu þeirra og stjórnar Landspít- alans um breytingar á vöktum. Fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöld að engir fundir hafi verið boðaðir og var haft eftir talsmanni almennra lækna að unglæknar muni að endingu þurfa að huga að nýrri vinnu dragist deilan á langinn. Alls hættu 65 unglæknar störf- um á miðnætti á miðvikudag vegna breytinga sem boðaðar voru á vaktafyrirkomulagi en þær fela í sér að vinnutími mun aukast um allt að 60 vinnustund- ir á viku. Unglæknarnir hafa lagt fram sáttatilboð en samkvæmt því yrðu breytingunum frestað meðan lausn er fundin á málinu sem er viðunandi fyrir báða aðila. Þorbjörn Jónsson, formaður Læknaráðs Landspítalans, hefur verið fenginn sem sáttasemjari og lagði fram óformlega lausn að deilunni í gær. Engir fundir hafa átt sér stað milli deiluaðila frá því á miðvikudag og engir fundir fyrirhugaðir. Ólafur Baldursson, fram- kvæmdastjóri lækninga á Land- spítalanum, vildi ekki tjá sig um deiluna en sagði að vel hafi geng- ið á spítalanum í gær. Ekkert þokaðist í deilu unglækna og stjórnar Landspítalans í gær: Hafna 60 stunda vinnuviku ÓLAFUR BALDURSSON Framkvæmda- stjóri lækninga segir starfsemi spítalans hafa gengið vel í gær. VIÐSKIPTI Askar Capital hefur feng- ið viðurkenningu Kauphallarinn- ar (NASDAQ OMX Iceland ) sem ráðgjafi á hlutabréfamarkaðnum First North Iceland. Aðkoma viðurkennds ráðgjafa að markaðnum er sögð til þess fallin að byggja traustan markað því það sé á ábyrgð ráðgjafans að fylgjast með því að félög uppfylli ávallt aðgangskröfur og upplýs- ingaskyldur First North. Askar Capital er sjöundi viður- kenndi ráðgjafi First North. - óká Stuðla að traustari markaði: Askar gefur ráð á First North VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.