Fréttablaðið - 03.04.2010, Page 13
LAUGARDAGUR 3. apríl 2010 13
UMRÆÐAN
Sigurbjörg Sigurgeirs-
dóttir skrifar um at-
vinnumál
Þegar kallað er eftir opinberri atvinnu-
stefnu fá margir óbragð
í munninn. Þá rifjast upp
sögurnar um minkabú-
in, refabúin og laxeldið – tilraunir
stjórnvalda til að auka fjölbreytni
atvinnulífsins, – tilraunir sem lykt-
uðu af pólitísku sjóðasukki og kjör-
dæmahygli. Við tók afskiptaleys-
isstefnan, þ.e. að láta markaðnum
einum eftir að sjá um uppbyggingu
atvinnulífsins. Atvinnutækifærin
eiga að vera sjálfsprottin. Ríkið á
eingöngu að skapa réttu skilyrðin,
vera ekki að þvælast fyrir, láta fólk
í friði. Ráðuneytin eiga að vera sem
allra minnst. Með valddreifingu
voru verkefni færð til stofnana eða
út á markað. Aðilar á markaði sam-
einast hins vegar í stórum heild-
arsamtökum. Þannig má ná betri
árangri við að koma vilja markað-
arins fram gagnvart stjórnvöld-
um. Á meðan ríkið valddreifðist,
miðstýrðist markaðurinn og vald-
ið færðist til fárra, þeirra stærstu
á markaði. Báknið var komið út í
bæ. Þar ráða ríkjum m.a. heildar-
samtök atvinnulífsins og þar virð-
ast öll litlu dýrin, meðalstóru dýrin
og stóru og stærstu dýrin í skóg-
inum vera vinir. En ekki er þó allt
sem sýnist. Nú virðist álitamál hver
þvælist fyrir hverjum.
Við núverandi aðstæður eiga
litlu dýrin og stóru dýrin í skógin-
um minna sameiginlegt, því stjórn-
völd vilja taka upp atvinnustefnu og
auka fjölbreytileika atvinnulífsins
með því að hlúa betur að og byggja
upp lítil og meðalstór fyrirtæki
í iðnaði og þjónustu af ýmsu tagi.
Öllum er ljóst að áherslan í atvinnu-
uppbyggingunni verður að vera á
framleiðslu á vörum og þjónustu til
útflutnings til þess að afla gjaldeyr-
istekna. Atvinnutækifæri fyrir hug-
vit og skapandi vinnufúsar hendur
má nú greina í nýsköpun og sprotum
sem hvarvetna spretta fram eftir að
jökulhetta fjármálalífsins bráðnaði.
En til að nýsköpun og sprotafyrir-
tæki geti náð þeim áfanga að vera
sjálfbær öflug útflutningsfyrirtæki
þarf markvissa atvinnustefnu. Þá
vaknar sú spurning hvort ríkinu sé
treystandi til að móta atvinnustefnu
sem ekki lyktar af sjóðasukki og
kjördæmahygli? Hvernig ætti ríkið
að móta markvissa atvinnustefnu
við núverandi aðstæður?
Á dögunum var hér á ferðinni
prófessor Yonekura frá Japan með
erindi um endurreisn atvinnulífs-
ins í Japan eftir seinna stríð. Þá
ríkti neyðarástand í Japan. Engum
dylst að með atvinnustefnu sinni
unnu Japanar þrekvirki og stóra
sigra. Önnur ríki í Austur-Asíu
leituðu í smiðju þeirra. Fjármála-
kreppa lék ríkin í Austur-Asíu grátt
á tíunda áratugnum, en ekki er við
atvinnustefnuna sjálfa að sakast
þegar hagstjórn og peningamála-
stefna bregðast. Við end-
urreisn atvinnulífsins geta
Íslendingar lært af Jap-
önum. Ríkisstjórnin þarf
að hafa forystu um það
að leiða saman það besta
sem samstarf ríkisvalds
og markaðar býður upp á.
Hér þarf ríkið að taka sér
hlutverk landsliðsþjálfar-
ans, leggja upp leikjaáætl-
un, velja leikmenn og hafa
þolinmæði til að þjálfa þá. Hér þarf
nægilega marga aðila á markaði,
„leikmenn“, sem eru tilbúnir til að
mæta á æfingar, hlaupa út á völlinn
og spila. Hér þarf ekki stöðugleika-
sáttmála sem lokar öll litlu og með-
alstóru dýrin inni í skóginum með
stóru dýrunum. Hér þarf hæfileika-
samkeppni þar sem aðilar eru sýni-
legir á markaði, keppa samkvæmt
skýrum, gegnsæjum og sanngjörn-
um leikreglum – og þeir bestu kom-
ast í landsliðið.
Takmarkað aðgengi að fjármagni
til fjárfestinga skapar aðstæð-
ur sem gera sérstakar kröfur til
íslenskra stjórnvalda við mótun
atvinnustefnu. Þá þarf ríkisstjórn
með pólitískan vilja og dug til að
forgangsraða – mismuna atvinnu-
greinum tímabundið og veðja á til-
teknar atvinnugreinar sem vænleg-
astar eru til þess að vinna markaði
erlendis. Það þarf ráðherra atvinnu-
mála sem þorir að taka ákvörðun
með heildarhagsmuni þjóðarinnar
að leiðarljósi og fylgja slíkri ákvörð-
un eftir. Það þarf öflugt atvinnu-
vegaráðuneyti sem hefur á að skipa
teymi þar sem saman eru komnir
færustu sérfræðingar landsins á
sviði atvinnuþróunar, efnahags-
og markaðsuppbyggingar. Ríkis-
stjórnin þarf ráðgefandi vísinda- og
tækniráð sem skipað er sérfræðing-
um sem búa og starfa erlendis með
góð tengsl við þróun þeirra mark-
aða sem íslensk útflutningsfyr-
irtæki eru að sækja inn á og inn-
lendum sérfræðingum sem starfa
í íslenska rannsóknar- og háskóla-
samfélaginu.
Nýsköpun ein og sér er ekki nóg.
Árangur af nýsköpun ræðst af því
að nýsköpunariðnaður verði hluti af
markvissri atvinnustefnu. Stefnu-
markandi forysta stjórnvalda þarf
að bjóða upp á alþjóðlega sýn,
stuðningskerfi með gegnsæjum,
sanngjörnum samkeppnisreglum
og markaðshvetjandi umhverfi.
En umfram allt – það þarf pólit-
ískan vilja, getu og þor til að taka
ákvarðanir.
Höfundur er stjórnsýslufræðingur
Atvinnustefna á Íslandi
SIGURBJÖRG
SIGURGEIRSDÓTTIR
VÍNBÚÐIRNAR
UM PÁSKANA
vinbudin.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
16
2
4
VÍNBÚÐIR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU VERÐA
OPNAR LAUGARDAGINN 3. APRÍL KL. 11-18.
Laugardagur 3. apríl opið 11-18
Páskadagur LOKAÐ
Annar í páskum LOKAÐ
Kynntu þér páskaopnun allra
Vínbúða á vinbudin.is
Gleðilega páska!