Fréttablaðið - 03.04.2010, Side 22
22 3. apríl 2010 LAUGARDAGUR
E
ftir páskahelgina
verða birtar á net-
inu allar upplýsingar
um hluthafa DV, jafnt
stóra sem smáa. Þetta
upplýsir Lilja Skafta-
dóttir sem í vikunni komst í kast-
ljós fjölmiðla eftir að hafa keypt
fjórðungshlut í blaðinu. Annan
fjórðungshlut á ritstjóri blaðsins,
Reynir Traustason. Hinn helming-
inn segir Lilja að eigi smærri fjár-
festar.
Lilja er þó ekki að öllu
ókunnug því að athygli
almennings beinist að
henni. Hún bauð sig
fram til Alþingis fyrir
Borgaraflokkinn í Norð-
vesturkjördæmi fyrir
síðustu alþingiskosn-
ingar. Hún segir hafa
legið beint við að bjóða
sig fram þar, á ættir að
rekja vestur á firði. Þá
var Lilja framleiðandi
heimildarmyndarinnar
„Maybe I should have“
auk þess sem hún er
meðal hluthafa í vefrit-
inu Smugunni.
Hagsmunatengsl hamla
„Ég er búin að vera að
gera ansi margt annað
þannig að það má alveg
segja að ég hafi verið
að láta til mín taka með
einum eða öðrum hætti
síðastliðið eitt og hálft
ár,“ segir Lilja. Að baki
segir hún fyrst og fremst liggja
löngun sína til að leggja lýðræð-
isþróun í landinu lið og þá sér í
lagi „lýðræði fólksins“ eins og hún
nefnir það. „Fólksræði fyrir fólk-
ið og með fólkinu. Það er nú eig-
inlega það fyrsta sem ýtir mér
áfram, enda var ég með í stjórn-
málaafli sem vonaðist til að geta
breytt einhverju. Hvað DV varð-
ar þá þótti mér þar komið gullið
tækifæri til þess að hafa frábær-
an miðil sem getur verið hundrað
prósent óháður. Og það er kannski
það sem skiptir mestu máli.“
Með áherslu á mikilvægi sjálf-
stæðis DV segist Lilja þó ekki vera
að setja út á fréttamenn í nokkrum
öðrum miðlum. „Það er alls ekki
meiningin. Það getur hins vegar
verið erfitt ef fréttamaður hefur
eitthvað í höndunum um
eigendur sína. Maður
bítur ekki í höndina
sem gefur manni eitt-
hvað að launum. Ekki
það að fréttamenn láti
kúgast eða neitt slíkt.
Þetta er til þess að auð-
velda vinnuna,“ segir
hún og bætir við að með
óháðu eignarhaldi séu
blaða- og fréttamenn
líka lausir við það að
verk þeirra séu í sífellu
tengd við einhverja
hagsmuni aðra en þá að
flytja fréttir.
„Þá er þetta bara
fréttamaðurinn að tala.
Og ég get ímyndað mér
að þægilegra sé fyrir
hann að lesendur viti að
hann er örugglega ekki undir nein-
um þrýstingi. Hann þarf þá ekki að
skýra það neitt nánar.“
Seldi styttur í Frakklandi
Á næstunni segir Lilja að komi til-
kynning frá útgáfufélagi DV um
það hvernig eignarhaldi sé háttað
og hverjir sitji í stjórn félagsins.
„Þá verður sett á Netið hluthafa-
skrá og hægt að sjá nákvæmlega
hverjir þar eiga hlut, allt niður í
smæstu hluthafa. Við viljum hafa
alveg opið fyrir öllum hverjir koma
að, hverjir eru í stjórn og hverjir
eru framkvæmdastjórar. Það er
mikilvægt að þar sé ekkert hulið.“
Lilja tekur sjálf við stjórnar-
formennsku og kveður stjórnina
skipaða góðu fólki. „En við erum
lítið búin að hittast og lítið hægt að
segja um stjórnina á þessu stigi,“
segir hún, en kveðst hlakka til
þeirrar vinnu sem fram undan er.
Þá segir hún viðbúið að hún þurfi
að gefa verkinu allnokk-
uð af tíma sínum.
„Að reka dagblað er
ábyggilega ekki gert
með annarri hendinni.
Í því liggur svo margt,
ekki bara blaðamennsk-
an eins. Það þarf að sjá
til þess að hlutirnir
gangi vel og allir séu
ánægðir,“ segir hún og
gerir fastlega ráð fyrir
því að starfanum kunni
að fylgja andvökunætur
þar sem hún veltir því
fyrir sér hvort ekki sé
nú allt örugglega í lagi.
„En ég er ekki blaða-
maður og kem ekki til
með að skrifa í blað-
ið, nema þá kannski að
mig langi til að skrifa
einhvern pistil. En það
getur verið hvar sem
er.“
Lilja er búsett í
Reykjavík og hefur búið
hér á landi frá árinu
2006. Hún hefur þó haft annan fót-
inn í Frakklandi líka. „Ég hef verið
í viðskiptum með listaverk, stytt-
ur og fékk mjög góðan samning og
hefur gengið mjög vel.“ Þessi við-
skipti segir Lilja svo hafa gefið af
sér þá undirstöðu sem hún nú getur
notað til fjárfestinga hér heima.
Núna segir Lilja hins vegar
erfiða tíma í þessum geira lista-
verkasölu. „Þetta er mjög þröngur
hópur og eftir hrunið vildi enginn
hafa viðskipti við íslenskt fyrir-
tæki í þessum bransa,“ segir hún,
en vettvangur viðskipta hennar í
listaverkasölu hefur alfarið verið
utan landsteinanna.
Fréttasjúk að vestan
Lilja, sem varð fimmtug í desem-
ber síðastliðnum, hefur dvalið utan
landsteinanna mestan-
part sinna fullorðins-
ára. Hún á tvær dætur,
önnur er 22 ára og hin
verður 14 ára í sumar.
Auk þess að hafa búið
í Frakklandi hefur Lilja
líka búið í Svíþjóð og í
Noregi.
Utan hélt hún hins
vegar strax að loknu
stúdentsprófi, þá til að
leggja stund á háskóla-
nám í stærðfræði í
Stokkhólmi í Svíþjóð.
„Ég er búin að vera
að ferðast og kynnast
heiminum, læra tungu-
mál,“ segir hún og
kveðst líka forfallinn
fréttasjúklingur.
Eftir að hafa tekið
fyrstu skrefin utan heimahaganna
á Norðurlöndum segist Lilja hafa
farið í ferðalag til Parísar og hafi
þar kolfallið fyrir landi og þjóð.
„Ég fékk smá kúltúrsjokk í Svíþjóð
og svo enn meira í Frakklandi, en
held ég sé að jafna mig og komið
á jafnvægi núna,“ gantast hún.
„Þetta ætti að vera í lagi.“
Og þótt Lilja búi í Reykjavík og
sé þar fædd og uppalin þá kveðst
hún vera Vestfirðingur. „Ég er frá
Önundarfirði og Dýrafirði,“ segir
hún og kveðst hafa verið í sveit
fyrir vestan þegar hún var barn.
„Sem varð aftur til þess að ég var
í framboði fyrir Borgarahreyfing-
una í Norðvesturkjördæmi. Það er
alveg minn staður.“
Tekur við góðu búi
Annars segir Lilja gríðarlega
spennandi tíma fram undan og er
ánægð með góðar undirtektir og
kveðjur sem hún hefur fengið eftir
aðkomu sína að DV. „Allir þeir
sem maður talar við virðast mjög
ánægðir með þetta,“ segir hún.
Þegar Lilja er spurð að því
hversu mikil fjárfesting það hafi
verið að kaupa þennan hlut í DV
segir hún hendur sínar dálítið
bundnar í að greina frá því, þótt
sjálfri væri henni það að meina-
lausu. „Svona fyrst að gefið var út
að verðið yrði ekki gefið upp. Það
vita allir að ég keypti fjórðung
þannig að reikningsdæmið yrði
þá auðvelt. Ég verð að taka tillit
til annarra í þessu. En það kemur
kannski í ljós síðar.“
Lilja segist hins vegar taka
við búi sem sé heilbrigt á að líta
og kvíðir ekki rekstri DV. „Strax
fyrsta daginn eftir að búið var að
tilkynna breytt eignarhald bætt-
ust við hundrað áskrifendur,“ segir
hún og hlær.
GAMLA SVEITIN Í BAKSÝN Málverk af Önundarfirði hangir uppi á heimili Lilju Skaftadóttur í Reykjavík, en hún á ættir að rekja
bæði þangað og í Dýrafjörð. Og þótt segja megi að Lilja sé úr Reykjavík þá hefur hún haldið tengslum við Vestfirðina þar sem
hún var í sveit sem barn. Þá bauð hún sig fram fyrir Borgaraflokkinn í Norðvesturkjördæmi fyrir síðustu alþingiskosningar.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Upplýsir um alla hluthafa
DV að páskahátíðinni lokinni
Lilja Skaftadóttir er athafnakona ættuð vestan af fjörðum, frá Önundar- og Dýrafirði. Óli Kristján Ármannsson tók Lilju tali í tilefni
af því að hún festi kaup á fjórðungshlut í DV og tekur að sér stjórnarformennsku í útgáfufélagi blaðsins. Lilja hefur búið erlendis, en
flutti hingað heim árið 2006. Hún lætur sig framkvæmd lýðræðisins varða og segir nauðsynlegt að haldið sé úti óháðu dagblaði.
Strax fyrsta
daginn eftir
að búið var
að tilkynna
breytt
eignarhald
bættust við
hundrað
áskrifendur.
Eftir hrunið vildi enginn hafa
viðskipti við íslenskt fyrirtæki í
þessum bransa.
Ég er búin að
vera að ferð-
ast og kynn-
ast heim-
inum, læra
tungumál.