Fréttablaðið - 03.04.2010, Page 31

Fréttablaðið - 03.04.2010, Page 31
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 SKÍÐAVIKAN Á ÍSAFIRÐI stendur fram til 5. apríl. Hún á sér 75 ára sögu en var fyrst haldin um páskana árið 1935. Gestir skíðavikunnar geta einnig nýtt sér alla þá fjölbreyttu skemmtun sem verður í boði í bænum enda tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður í algleymingi. „Ég nýt þess til hins ítrasta að vera í borginni þegar allir fara úr henni, sitja við glugga á Íslenska barnum við Austurvöll og láta bera í mig mat og kaffi þar sem ég vinn á far- tölvunni. Vinnan er svo brotin upp með óreglulegu millibili af vinum sem detta inn að spjalla,“ segir Halldór E. Högurður ráðgjafi, um páskahelgina. Hann segist þó þekkja glæpa- kvendi uppi á Akranesi sem líka þurfi sinn skammt af athygli. „Guð- ríður Haraldsdóttir, aðstoðarrit- stjóri Vikunnar, fékk nýlega á sig dóm sem blaðamaður, en starfið er orðið með þeim hættulegri í dag. Ég veit ekkert páskalegra en að setjast upp í bílinn minn, sem er egglaga, og þrusa honum gegnum stokkinn og poppa út Skagamegin. Þar ætla ég að matreiða þorsk ofan í glæpa- kvendið Guðríði og son hennar í kvöld. Þetta verður kannski síð- asta þorskaþjálfamáltíðin ef Guð- ríður endar með að sitja inni fyrir blaðamennsku,“ segir Halldór. Hann segist mega við því að verða sér til minnkunar, samkvæmt læknum, og því hamast hann í Grand Spa þessa dagana. „Harka þeirra sem þar reka mig áfram er önnur ástæða þess að ég voga mér ekki út fyrir borgina í meira en nokkra klukkutíma í senn. Það má þó ekki skilja þetta sem svo að ég sé fýlupúki sem ekkert fer. Ég ætla að húrra mér norður þegar borgar- fólkið skilar sér aftur í borgina, eiga góða daga á Hótel KEA á Akur- eyri og kaffihúsast með fartölvuna. Ég á aldrei algjört frí, það eru allt- af einhver verkefni, en mér skilst að maður eigi ekki að kvarta undan því á þessum síðustu og áhugaverð- ustu og ég geri það svo sem ekki. Lukkulega er vinnan mín skemmti- leg og ég get tekið hana með mér landshluta og landa á milli,“ segir Halldór Högurður. kjartan@frettabladid.is Eldar ofan í glæpakvendi Halldór E. Högurður ráðgjafi nýtur þess að vera í borginni þegar allir aðrir fara úr henni. Hann ætlar þó að bregða sér upp á Skaga í kvöld og norður á Akureyri þegar straumurinn skilar sér aftur í borgina. „Ég veit ekkert páskalegra en að setjast upp í bílinn minn, sem er egglaga, og þrusa honum gegnum stokkinn og poppa út Skagamegin,“ segir Halldór E. Högurður. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN framlengt til 11. apríl Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207 Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is 4ra rétta seðill frá 4.990 kr. Tilvalið fyrirárshátíðina! KRYDDLEGIN KLAUSTURSBLEIKJA með rússneskri pönnuköku, dillrjóma og piparrótarsósu RJÓMALÖGUÐ HUMARSÚPA með Madeira og grilluðum humarhölum FISKUR DAGSINS ferskasti hverju sinni, útfærður af matreiðslumönnum Perlunnar (4.990 kr.) BEIKONVAFINN OG FYLLTUR FASANI með polentu og kóngasveppasósu (5.590 kr.) RIB EYE með kartöfluturni, Bearnaisesósu og steinseljurótarmauki (6.590 kr.) NAUTALUND með grænmetismósaík og blönduðum skógarsveppum (7.590 kr.) SÚKKULAÐIFRAUÐ með hindberjahlaupi, ferskum ávöxtum og passionís 1 2 3 4 VELDU MILLI FJÖGURRA AÐALRÉTTA Góð tækifærisgjöf !

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.