Fréttablaðið - 03.04.2010, Qupperneq 35
Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
NÝJAR ÁSKORANIR
Í boði eru áhugaverð störf fyrir öfluga og metnaðarfulla einstaklinga
Hugbúnaðarsérfræðingar Microsoft
Dynamics AX og Microsoft XAL
HugurAx óskar eftir hugbúnaðarsérfræðingum til starfa á viðskiptalausnasviði
fyrirtækisins. Viðkomandi starfar við þarfagreiningar, hönnun, forritun, ráðgjöf, þjó-
nustu og innleiðingar á Microsoft Dynamics AX og Microsoft XAL. Fjöldi áhugaverðra
verkefna eru fyrirliggjandi. Þetta er kjörið tækifæri fyrir áhugasama aðila til að öðlast
yfirgripsmikla þekkingu og kynnast rekstri fjölmargra fyrirtækja.
Við leitum eftir einstaklingum með brennandi áhuga á því að kynna sér nýjungar,
miðla þeim og takast á við krefjandi verkefni. Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði,
verkfræði, viðskiptafræði eða sambærileg menntun er æskileg. Reynsla af forritun og
innleiðingu á viðskiptakerfum er kostur. Áhersla er lögð á fagleg vinnubrögð, metnað
til árangurs, lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í
hópi.
Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl nk.
Umsóknir skal senda á atvinna@hugurax.is og merkja VL-svið
Allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál
Hjá HugAx starfa um 110 starfsmenn. Markmið HugarAx er að vera öflugur samstarfsaðili fyrirtækja sem vilja ná árangri, viðskiptavinir okkar eru um 4.000 talsins, þar á meðal
mörg af stærstu og öflugustu fyrirtækjum landsins. Höfuðstöðvar HugarAx eru að Guðríðarstíg í Reykjavík, en HugurAx rekur jafnframt starfsstöðvar á Akureyri, Egilsstöðum og
í Vestmannaeyjum.
Tæknilegur sérfræðingur
Microsoft Dynamics AX
HugurAx óskar eftir sérfræðingi til starfa á viðskiptalausnasviði fyrirtækisins. Starfið
felst í uppsetningum, þarfagreiningum, forritun og tæknilegri ráðgjöf tengdri Microsoft
Dynamics AX, Sharepoint og Microsoft SQL server. Stór hluti starfsins felst í því að
kynna sér nýjungar og miðla upplýsingum um það sem er nýjast á hverjum tíma til
samstarfsmanna og viðskiptavina fyrirtækisins.
Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á að kynna sér nýjungar og er
fljótur að tileinka sér þær og koma í framkvæmd. Háskólamenntun á sviði tölvunar-
fræði, verkfræði eða sambærileg menntun er æskileg. Sérmenntun eða reynsla tengd
rekstri, uppsetningu gagnagrunna og tækniumhverfis fyrir starfsemi fyrirtækja er
kostur. Áhersla er lögð á frumkvæði, fagleg vinnubrögð, metnað til árangurs, lipurð í
mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hópi.