Fréttablaðið - 03.04.2010, Blaðsíða 49
LAUGARDAGUR 3. apríl 2010 29
6
Eftir að hafa borðað
kvöldmat fórum við í það
að baða börnin og svoleið-
is. Enduðum þó öll í baði
og Bryndís konan mín er
þarna með eitthvert krem fram-
an í sér. Hún hélt að ég væri að
sýna sér eitthvað fyndið í tölvunni
og náði ég þá að smella af henni
mynd.
stolnum bíl
4
Eftir að hafa veggfóðrað
bæinn með Aldrei-plak-
ötum í svaðalegum kulda,
fannst okkur það þjóðráð
að fara í Hamraborg og
kaupa okkur ís – til að hlýja okkur.
Þar gátum við rætt málin og tekið
stuðmælingu á fólki. Þangað löbb-
uðu inn Valdi í hljómsveitinni
Reykjavík! og Erna Ómars dans-
ari, þau voru í geggjuðum fíling.
Það sem virðist vera í vasanum
hjá Valda er ísskeiðin mín, ekki
sverð.
5
Muggi hafnarstjór i
hringdi í mig og sagði
að við yrðum að koma og
skila bílnum. Hann spurði
líka hvort löggan hefði
náð á okkur. Ég hélt að Muggi væri
eitthvað að grína í mér. Þegar við
mættum niður á höfn kom það á
daginn að við Öddi höfðum stolið
bíl. Við áttum að taka hafnarbíl
sem var grár með lyklunum í en
svo virtist sem maður hafi skilið
eftir gráa bílinn sinn fyrir utan
með lyklunum í. Við tókum hann
óvart. Bílþjófnaðurinn var kærður
til lögreglu en við settluðum málið
og fórum með bílinn heim til eig-
andans. Fínn bíll alveg!
■ Á uppleið
Páskaeggjaát Það er skylda allra að borða í það minnsta
eitt páskaegg yfir þessa heilögu súkkulaðihátíð.
Fótbolti Það er brjáluð spenna í
meistaradeildinni og flestum öðrum
deildum erlendis, íslenski boltinn í
startholunum og rétt rúmlega tveir
mánuðir í HM. Nú er tíminn til að kynna
sér liðin og kaupa réttu fótboltatreyjurnar.
Farfuglarnir Lóan er komin og margir vinir
hennar líka og
bráðum kveða
þau líka burtu
kuldann.
Partí Íslendingum er ekkert heilagt
og þess vegna er páskahelgin ein sú
æstasta á börum borgarinnar og víðar
um sveitir.
■ Á niðurleið
Hreinsunarátak borgarinnar . Fyrst ætti
borgin sjálf að hreinsa til í niðurbrunnum og
galtómum húsum í niðurníðslu í miðborg-
inni, áður en hún leggur þær kröfur á herðar
íbúanna.
Vanbúnir vitleysingar Guði
sé lof fyrir alla björgunarsveitar-
mennina sem hafa hingað til náð
að koma í veg fyrir að einhver
yrði úti á Fimmvörðuhálsi.
Unglæknar Ef verkfallið
þeirra skilar ekki árangri verða þeir ekki lengi að
flytja úr landi og skilja okkur eftir framtíðarlækna-
laus.
Ofnotuð seleb Það er allt of mikið fjallað
um fólk sem hefur ekki unnið fyrir umfjölluninni.
Hverjum er til dæmis ekki sama þótt Gilzenegger spili
póker?
M
Æ
LI
ST
IK
A
N