Fréttablaðið - 03.04.2010, Qupperneq 57
LAUGARDAGUR 3. apríl 2010 37
Söngkonan Janet Jackson snýr
aftur á svið í sumar, en hún hefur
ekki komið fram síðan bróðir
hennar, poppkóngurinn Michael
Jackson, lést. Jackson kemur
fram á Essence-tónlistarhátíð-
inni í júlí og stígur síðust á svið
á fyrsta kvöldi hátíðarinnar. Hún
kom síðast fram fyrir tveimur
árum og hefur látið lítið fyrir sér
fara síðan bróðir hennar lét lífið.
Á meðal annarra söngkvenna
sem koma fram á hátíðinni eru
Mary J. Blige og Alicia Keys,
Estelle, LL Cool J, Monica og
Idolstjarnan Ruben
Studdard.
Janet Jackson
snýr aftur
JANET JACKSON Hefur ekki komið fram
síðan Michael dó.
Bandaríska söngkonan Madonna
kastaði heldur betur steinum
úr glerhúsi í nýju viðtali við US
Weekly. Madonna hefur oft verið
þekkt fyrir að klæðast fremur
óhefðbundnum, eggjandi og efn-
islitlum klæðnaði en í umræddu
viðtali sagðist hún vilja að dóttir
sín, Lourdes, myndi klæða sig ögn
íhaldssamar. „Hversu kaldhæðn-
islegt er það?“ sagði Madonna og
virtist gera sér grein fyrir því að
þetta væri ekki eitthvað sem hún
hefði efni á.
Madonna og Lourdes eru búnar
að hanna saman fatalínu sem ber
hið skemmtilega heiti Material
Girl. Og mamman viðurkennir að
hún sé ekki alltaf sátt við fataval-
ið. „Hún fær sínar hugmyndir úr
danstímum, frá Evrópu og hljóm-
sveitum sem hún hlustar á. Hún
mætir á tökustaði hjá mér og setur
saman einhverja múnderingu. Og
það er alveg sama hverjir eru
að hanna fötin, hvort sem það er
Marc Jakobs eða Stella McCartn-
ey, þau spyrja hana alltaf að því
hvað henni finnst,“ útskýrir Mad-
onna og augljóst að Lourdes hefur
munninn fyrir neðan nefið þegar
tíska er annars vegar.
Og Madonna upplýsir að þegar
hún hafi hannað línu fyrir H&M þá
hafi það í raun og veru verið Lour-
des sem hafi unnið mestu vinn-
una. „Ég kunni alveg ágætlega við
starfið en þetta var ekki eitthvað
sem mig langaði til að hella mér út
í. Í raun og veru var það Lourdes
sem gerði allt, hún er þrettán ára
orkubolti og vildi alltaf vera að.
Ég sat bara úti í horni og lék mér í
BlackBerry-símanum.“
Vill að Lourdes sé íhaldssamari
SAMHELDNAR MÆÐGUR
Madonna og Lourdes eru ákaflega sam-
rýndar þótt söngkonan vilji að dóttirin
klæðist ögn íhaldssamar.
Hataðasti maðurinn í Hollywood
um þessar mundir, Jesse James,
er farinn í sömu meðferð og
Tiger Woods. James hefur viður-
kennt fyrir umheiminum að hann
sé háður kynlífi með ókunnug-
um konum. En sú fíkn batt enda á
hjónaband hans og Söndru Bull-
ock.
James er sagður allur af vilja
gerður til að vinna bug á fíkn
sinni en hann er sagður hafa átt
í ástarsambandi við að minnsta
kosti fjórar konur á meðan hann
var giftur Óskarsverðlaunaleik-
konunni. James fetar þar með í
fótspor margra þekktra karl-
manna sem hafa háð slíka baráttu
en meðal þeirra eru áðurnefnd-
ur Woods, Michael Douglas og X-
Files-leikarinn David Duchovny.
Af skilnaði þessa sérkennilega
pars er það annars að frétta að
James hefur lofað Söndru að hún
fái hitta börnin hans en leikkon-
an gekk þeim nánast í móðurstað.
Samkvæmt einhverjum vefmiðl-
um í Vesturheimi er Sandra að
velta því alvarlega fyrir sér hvort
hún eigi að sækja um forræðið
yfir þeim.
Jesse James í
meðferð
FÍKILL Jesse James hefur viðurkennt að
hann sé kynlífsfíkill og ætlar í meðferð.