Fréttablaðið - 03.04.2010, Page 72
Mest lesið
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VISIR.IS
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR AF FÓLKI
Fermingargjafir
fyrir unga
hestamenn
www.lifland.is
Lynghálsi 3 • Lónsbakka Akureyri
Óli Stef til Færeyja?
Á færeysku vefsíðunni Portalin var
sagt frá því að íslenski landsliðsfyr-
irliðinn Ólafur Stefánsson hefði
ákveðið að spila nokkra leiki með
liðinu Kyndli í úrslitum færeysku
deildarkeppninnar. Samkvæmt
vefsíðunni átti Ólafur að vera í fríi
frá þýsku deildarkeppninni, þar
sem hann spilar með Rhein-Neck-
ar Löwen, til 24. apríl. Löwen og
Kyndill hefðu komist að samkomu-
lagi um að Ólafur yrði leigður til
Færeyja í eina viku þar sem hann
myndi leika með síðarnefnda liðinu
gegn Neistanum í úrslitakeppninni
auk þess sem hann myndi standa
fyrir handboltanámskeiði fyrir börn.
Samkvæmt Portalnum
átti fyrsti leikur Ólafs
með Kyndli að vera í
fyrradag og má alveg
gera ráð fyrir að
nokkrir stuðnings-
menn liðsins hafi
orðið fyrir von-
brigðum þegar
þeir áttuðu sig
á því að um
aprílgabb var
að ræða.
Hrókeringar hjá VG
Þó nokkrar hrókeringar hafa átt sér
stað síðustu vikur á milli ráðuneyta
sem Vinstri grænir fara með. Í lok
janúar var tilkynnt að Elías Jón
Guðjónsson hefði látið af störfum
sem upplýsingafulltrúi fjármála-
ráðuneytisins og hefði verið ráðinn
sem aðstoðarmaður Katrínar
Jakobsdóttur menntamálaráðherra.
Þá hefur Andrés Ingi Jónsson, sem
starfaði í forföllum sem upplýsinga-
fulltrúi í umhverfisráðuneyti Svand-
ísar Svavarsdóttur, fært sig um set
og verið ráðinn sem sérfræðingur í
heilbrigðisráðuneytinu.
Báðir eiga Elías
Jón og Andrés
það sameiginlegt
að hafa starfað
í ungliðastarfi
Vinstri grænna.
- kh
1 Vélsleði fór ofan í sprungu
2 Ekið á mann á
Vesturlandsvegi - mikil hálka
á höfuðborgarsvæðinu
3 Fasteignarisi gjaldþrota vegna
láns frá Kaupþingi
4 Tvö útskrifuð af gjörgæslu
eftir flugslys
5 Réðst á hraðbanka