Fréttablaðið - 10.04.2010, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 10. apríl 2010 5
Veruleiki og sjálfsmynd lands-
manna eru til skoðunar á
sýningu Ólafs S. Gíslasonar í
Listasafni ASÍ.
Listamaðurinn Ólafur S. Gíslason
opnar sýningu á verkinu Identity
Check í Listasafni ASÍ í dag klukk-
an 15.
Verk Ólafs á að endurspegla
ákveðið tímabil í þroska mannsins,
eða um það leyti sem ungt fólk er
að komast af unglingsaldri. Verk-
ið samanstendur af þremur stórum
fánum sem Ólafur fékk nemendur
úr Hönnunar- og handverksskól-
anum til að útbúa. Fánana saum-
uðu nemendurnir sjálfir úr eigin
fatnaði, sem þeir voru af einhverj-
um ástæðum hættir að nota. Ólaf-
ur kveðst hafa notað þessa end-
urvinnslu og endurmat sem fötin
bjóða upp á til inngangs að hug-
myndum og viðbrögðum nemend-
anna í atburðarás sköpunarferlis-
ins.
Ólafur lauk námi við Myndlista-
og handíðaskóla Íslands 1983 og
Hochschule für bildende Künste
í Hamborg 1988. Hann starfaði í
Þýskalandi til ársins 2007, þar til
hann tók við stöðu prófessors við
Listaháskóla Íslands. Sýningin í
Listasafni ASÍ stendur til 2. maí.
- rve
Viðsnúningur á
veruleika ungmenna
Nemendur úr Hönnunar- og handverksskólanum fengu það verkefni að útbúa fána
úr eigin fatnaði til að endurspegla umbrotin sem eiga sér stað á unglingsárunum.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Flugfélagið Ernir býður upp á
útsýnisflug um land allt um helg-
ina.
Flugfélagið Ernir, eða Eagle Air,
býður upp á útsýnisflug frá Reykja-
vík og um land allt, svo framarlega
sem veður leyfir. Bæði er hægt
að panta skipulagt flug eða flug-
ferð sem er sérsniðin að þörfum
hvers og eins, en útsýnisflug yfir
eldstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi
hefur notið mikilla vinsælda að
undanförnu. Inn í slíkar ferðir má
svo flétta mat og drykk, göngu-
ferðir, hestaferðir, jeppaferðir eða
hvað sem hugurinn girnist. Þá er
hægt að taka á leigu flugvél til
einkaafnota hjá flugfélaginu.
Skrifstofan er opin á laugardögum
frá klukkan 12 til 16 og á sunnu-
dögum frá klukkan 10 til 20. Allar
nánari upplýsingar má finna á
heimasíðu flugfélagsins ernir.is
eða eagleair.is. - rve
Vinsælt að skoða
eldgosið úr lofti
FLUGFÉLAGIÐ ERNIR BÝÐUR UPP Á
ÚTSÝNISFLUG UM LAND ALLT UM
HELGINA
Útsýnisflug yfir eldgosasvæðið við
Fimmvörðuháls hefur notið mikilla
vinsælda. A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
Allt sem þú þarft…