Fréttablaðið - 10.04.2010, Blaðsíða 30
30
M
alcolm McLaren lést á fimmtu-
dag í Sviss, þar sem hann hafði
verið í meðferð við krabbameini
sem hann greindist með í október
síðastliðnum. Hann var 64 ára að
aldri.
Enginn vafi leikur á því að McLarens verður helst
minnst sem umboðsmanns ensku pönk-frumkvöðl-
anna í Sex Pistols, þótt deilt sé um hversu stórt
hlutverk McLaren lék í uppgangi og ekki síður falli
þeirrar sveitar, en líftími hennar var ekki langur
(ef frá er talin endurkoma sem flestir sanntrúaðir
pönkarar vilja gleyma sem fyrst) þótt áhrifanna gæti
enn. Sjálfur lét McLaren ávallt í það skína að hann
væri heilinn að baki pönkinu eins og það lagði sig
og kallaði feril Sex Pistols Rokksvindlið mikla, eins
og frægt er orðið. Margir voru honum þó ósammála
í því efni, ekki síst forsöngvarinn Johnny Rotten,
sem deildi harkalega á umboðsmanninn í ævisögu
sinni frá árinu 1993 og kallaði hann meðal annars
illgjarnasta mann í heimi.
Eitthvað hefur Rotten þó mildast í afstöðu sinni til
McLarens ef marka má yfirlýsingu sem söngvarinn
sendi frá sér í tilefni andlátsins. „Í mínum augum
var Malcolm alltaf skemmtilegur og ég vona að allir
muni það,“ ritaði sá rotni og bætti við að hann kæmi
til með að sakna fyrrum umboðs-
manns síns.
Ferilskrá McLarens inniheldur þó
ýmislegt fleira en pönk og Sex Pistols.
Hann starfaði sem umboðsmaður fleiri
hljómsveita, fyrst The New York Dolls og
síðar Adam and the Ants og Bow Wow Wow
og gaf út nokkrar hljómplötur undir eigin
nafni. Þeirra á meðal eru Duck Rock frá 1983,
sem skartaði smáskífunni vinsælu Buffalo Gals
og margir telja að átt hafi stóran þátt í því að
vekja breska áheyrendur til vitundar um rapp
og hipphopp-tónlist (og sjálfur Eminem vísaði
til lagsins í smellinum Without Me), og Waltz
Darling frá 1989 sem naut nokkurra vinsælda.
Þá vakti áralangt samband McLarens við
fatahönnuðinn Vivienne Westwood ávallt mikla
athygli, en saman hönnuðu skötuhjúin mikið af
þeim fatnaði sem fyrstu pönkararnir klæddust
í árdaga. „Malcolm var afar heillandi, hæfi-
leikaríkur og sérstakur maður. Ég varð mjög
sorgmædd þegar ég frétti af andláti hans,“ sagði
Westwood við breska fjölmiðla á fimmtudag.
McLaren verður jarðsettur í Highgate-kirkju-
garðinum í Norður-London þar sem hann fæddist
og ólst upp.
HALLARBYLTING Sex Pistols ásamt McLaren undirrita plötusamning við hljómplötufyrirtækið A&M Records fyrir utan Buckingham-höllina
í London í mars árið 1977. A&M sleit samningnum innan við viku síðar, en áður hafði hljómplöturisinn EMI rekið sveitina eftir stutt
samstarf. Með fyrirframgreiðslur upp á tugi þúsunda punda frá þessum fyrirtækjum í vasanum voru meðlimir og umboðsmaður
Sex Pistols nefndir „ungir kaupsýslumenn ársins“ af virtu fjármálatímariti. NORDICPHOTOS/GETTY
FÖTIN SKAPA PARIÐ
McClaren ásamt
ástkonu sinni
til fjölda ára,
fatahönnuðin-
um Vivienne
Westwood, og
fyrirsætum
árið 1985.
Rokksvindlarinn mikli allur
Malcolm McLaren, athafnamaður og umboðsmaður Sex
Pistols, lést á fimmtudaginn. Kjartan Guðmundsson leit stutt-
lega yfir feril mannsins sem hafði ýmist jákvæð eða neikvæð
áhrif á dægurmenninguna, allt eftir því hver er spurður.