Fréttablaðið - 10.04.2010, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 10. apríl 2010 27
og bæ og segir í þess í stað „vertu
margblessuð og sæl,“ og kveður
forsetann fyrrverandi með orðun-
um „vertu blessuð og lifðu lengi.“
„Þú sérð að bréfin sem ég fæ
eru mjög fjölbreytileg. Það er svo
gaman að fá svona sendibréf hand-
ritað. Tölvupóstur er gagnlegt
nútímafyrirbæri til að hafa gott
samband heimavið og til útlanda
og ég nota hann auðvitað mikið.
Því er ekki að neita að handskrift
er á undanhaldi. Að mínu mati ætti
að leggja áherslu á að efla skrift-
arkennslu, skrift er hin uppruna-
lega tjáning hugans með hendinni
og henni er því miður ekki haldið
eins vel til haga og ætti að gera.
Að skrifa vel er mikilvægt.
Allir geta lent í þeim aðstæðum
að þurfa að handskrifa skilaboð
eða undirrita bréf. Ég hef oft sagt
við krakka að þau geti orðið ráð-
herrar og alþingismenn og verði
þá að geta skrifað vel nafnið sitt
og falleg orð í gestabækur eða við
ýmis tækifæri á kort sem fylgja
gjöfum,“ segir Vigdís.
Fjórum sinnum tuttugu ára
Í næstu viku er komið að tíma-
mótum í lífi Vigdísar, hún verður
áttræð eða fjórum sinnum tuttugu
ára eins og hún segir sjálf. Í tilefni
dagsins, 15. apríl, verður hátíðar-
dagskrá í Háskólabíói, þar sem
vinir og velunnarar ætla að troða
upp. „Ég er er djúpt snortin af því
vinarþeli að vinir mínir vilji halda
upp á afmælið með þessum hætti
og setja saman vandaða dagskrá,
sem ég veit reyndar ekki hver er
nema að það er búið að lofa mér
því að hún verði skemmtileg og
það verði engar ræður. Það hafa
alltaf verið óskráð lög hjá mér
að ræður skuli vera örstuttar og
bannað að bera lof á viðstadda,“
segir Vigdís sem hlakkar til
afmælisins og ekki síður áfram-
haldandi verkefna.
„Það er svo gaman þegar maður
lítur yfir farinn veg, hve raunveru-
lega maður hefur lært mikið. Ekki
endilega með því að sitja endalaust
yfir bókum. Lærdómurinn felst í
því að skilja lífið út yfir bókina og
leggja saman alla þá reynslu sem
maður hefur orðið fyrir á lífs-
ins vegi. Og þá er auðvitað næsta
spurning, hvað hefurðu lært kona
góð?,“ segir Vigdís og svarar
spurningunni óumbeðin.
Hægt að stýra gleðinni
„Ég til dæmis hef lært margt um
mannlegar tilfinningar. Ég hef
lært að maður getur stýrt gleð-
inni eilítið sjálfur. Reiðin er til
að mynda fjandsamleg þeim sem
er reiður og bitnar mest á honum
sjálfum. Mig langar svo til þess að
styrkurinn felist í því hjá þessari
þjóð að stíga út fyrir reiðina og
horfa saman á það sem verðmæt-
ast er, að við skulum eiga þetta
land og vera frjáls þjóð í þessu
landi,“ segir Vigdís sem vonast til
þess að þjóðin geti stigið það skref
að viðurkenna að það sé mannleg-
ur þroski að setja sig inn í málefni
og skoðanir annarra, virða þær og
að menn geti orðið sammála um að
vera ósammála.
„Sjáðu Frakka, þeir geta rætt
fram og aftur um sínar skoðan-
ir, enda hafa þeir svo ríka heim-
spekilega hefð. Ég held að það
sé aðkallandi að taka aftur upp
ársnámið í „fílunni“, eitt ár af
heimspekikennslu i háskóla,
eins og var hér áður fyrr, eða þá
í menntaskóla. Það er afar mik-
ils virði að átta sig á skoðunum
og hugmyndum – þá fyrst fer að
verða gaman að ræða, spjalla
og diskútera. Þarna koma líka
tungumálin inn, þekking á þeim
og menningarsögu annarra þjóða.
Við erum ekki ein í heiminum,“
segir Vigdís sem svo sannarlega
talar þar af reynslu.
Vigdís hefur farið víða og nokk-
ur ferðalög eru á dagskránni á
næstunni. „Ég er þakklát fyrir að
hafa haldið svona góðri heilsu og
geta sinnt svona mörgum verkefn-
um,“ segir hún og segir alls ekki á
dagskrá að setjast í helgan stein á
næstunni. „Ég fæ þessa spurningu
öðru hverju en segi þá yfirleitt á
móti, hvar er þessi helgi steinn?
Ef þú sérð hann þá þarftu ekkert
benda mér á hann – ekki strax að
minnsta kosti.“
SKEMMTILEGT SENDIBRÉF Vigdísi berast fjölmörg bréf en sérlega ánægð var hún
með eitt frá Unu, tíu ára stúlku á Hólmavík: „Kæra Vigdís ég met það mikils að þú
ert kona og varst forseti Íslands. Konur eiga að vera sjálfstæðar … Ég ætlaði að segja
þér sérstaklega að ég er hætt að segja hæ og bæ. Nú segi ég vertu margblessuð og
sæl og vertu blessuð. Svo vertu blessuð og lifðu lengi,” segir meðal annars í bréfinu.
15. apríl næstkomandi verður efnt til afmælisveislu í tilefni áttræðisafmælis
Vigdísar Finnbogadóttur. Hátíðin verður í Háskólabíói og eru allir velkomnir
þangað á meðan húsrúm leyfir. Þeim sem ekki eiga heimangengt verður
boðið að fylgjast með því hátíðinni verður bæði útvarpað og sjónvarpað
beint. Skemmtidagskrá til heiðurs Vigdísi hefst klukkan hálffimm en húsið
verður opnað klukkustund fyrr og verður boðið upp á veitingar.
Í tilefni afmælisins stendur stofnun Vigdísar Finnbogasdóttur einnig fyrir
alþjóðlegri ráðstefnu. Yfirskrift hennar er Varðveisla framtíðar: Sjálfbærni
tungumáls, menningar og náttúru. Hún samanstendur af lykilfyrirlesurum
ásamt samhliða málstofum þar sem fjallað verður um bókmenntir, menningu
og tungumál frá ýmsum sjónarhornum.
Meðal fyrirlesara verða: Martthi Athisaari, fyrrverandi forseti
Finnlands og friðarverðlaunahafi Nóbels, Irina Bokova, fram-
kvæmdastjóri UNESCO, og Páll Skúlason prófessor og fyrrver-
andi rektor Háskóla Íslands.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu stofnunar Vigdísar
Finnbogadóttur vigdis.hi.is og á heimasíðu ráðstefnunnar: http://vefir.
hi.is/vigdisconference2010/
AFMÆLISHÁTÍÐ OG RÁÐSTEFNA
PwC á sér rætur í íslensku viðskiptalífi frá 1924
... „Starfi ð hjá PwC er bæði fjölbreytt og krefjandi. Sem viðskiptafræðingur á endurskoð-
unarsviði fæst ég aðallega við endurskoðun og aðra sérfræðiþjónustu fyrir stærri og smærri
fyrirtæki. Í þessu felast mikil samskipti við viðskiptavini og samstarfsmenn. Ábyrgðin er
mikil en hér leggjast allir á eitt við að skila faglegri vinnu og það er sönn ánægja að sinna
viðskiptavinunum í svo öfl ugu teymi”.
Margrét Inga Guðnadóttir, viðskiptafræðingur á endurskoðunarsviði PwC
„Hér leggjast allir á eitt við að
skila faglegri vinnu”...
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n