Fréttablaðið - 10.04.2010, Blaðsíða 58
10. apríl 2010 LAUGARDAGUR10
Hársnyrtir
Hársnyrtistofa óskar eftir að ráða hársnyrti til starfa sem fyrst.
Um er að ræða notalega hverfi sstofu og starfshlutfall frá
70% - 100%. Umsækjendur þurfa að vera stundvísir, áreiðanlegir,
hafa gott viðmót og vera sjálfstæðir í vinnubrögðum. Góð laun í
boði fyrir réttan aðila.
Nánari upplýsingar eru veittar í s. 893-0020
Umsóknir sendist í netfangið : mmagnusdottir@hotmail.com
Upplýsingar um störfin og umsóknareyðublöð eru á skrifstofu ÍSTAKS,
Engjateigi 7, 105 Reykjavík og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00.
Einnig er hægt er að senda inn umsókn á heimasíðu okkar www.istak.is.
ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á íslenskum
verktakamarkaði. Hjá fyrirtækinu starfa
um 400 manns, víðsvegar um landið
sem og erlendis.
ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki sem
var stofnað árið 1970 og hefur annast
ýmis verkefni, svo sem virkjanir, stór-
iðjuver, hafnargerð, vega- og brúagerð
auk flugvalla. Ennfremur húsbyggingar
fyrir opinberar stofnanir, sveitarfélög,
fyrirtæki og einstaklinga.
Framkvæmdagleði í fyrirrúmi
FRAMLEIÐSLUSTJÓRI Í
JARÐVINNU OG JARÐGANGAGERÐ
ÍSTAK óskar eftir að ráða framleiðslustjóra til starfa við jarðvinnu og
jarðgangagerð á Grænlandi. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi
verkefni í tengslum við byggingu vatnsaflsvirkjunar 50 km. frá bænum
Ilulissat á vesturströnd Grænlands.
Hæfniskröfur:
• Menntun á sviði byggingarverkfræði eða byggingatæknifræði er skilyrði.
• Víðtæk reynsla af stjórnun jarðvinnu- eða jarðagangaframkvæmda.
• Gott vald á dönsku eða öðru norðurlandamáli.
Meðal verkefna:
• Verkefnastjórnun við jarðvinnu og jarðgangagerð.
• Samningar við innlenda og erlenda birgja.
• Úrlausn tæknilegra verkefna.
VERKSTJÓRI Á VÉLAVERKSTÆÐI
ÍSTAK óskar eftir að ráða verkstjóra á vélaverkstæði vegna framkvæmda
fyrirtækisins á Grænlandi. Viðkomandi þarf að hafa víðtæka reynslu af
viðgerðum tækja og vinnuvéla. Í starfinu felst almenn verkstjórn á véla-
verkstæði auk vinnu við viðgerðir og viðhald tækja.