Fréttablaðið - 13.04.2010, Qupperneq 8
13. apríl 2010 ÞRIÐJUDAGUR8
FRÉTTASKÝRING: Xxxxxxx
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is
A
T
A
R
N
A
Uppþvottavélar
frá Siemens.
Hraðvirkar,
hljóðlátar
og vinnusamar.
Bæjarlind 6, Kópavogi, sími 517 6067. Opið mán. - fös. 10 -18, laug. 11-16.
8.99023.900
GÆÐI
Hvorki stjórnvöld né eftir-
litsstofnanir gerðu nóg
vegna þess vanda sem ljóst
var að Icesave-reikningarn-
ir myndu skapa. Utanríkis-
ráðuneytið er gagnrýnt.
Síðasta árið fór meira út en
inn af reikningum Lands-
bankans í Bretlandi og
Hollandi.
Stjórnvöld og eftirlitsstofnan-
ir eru átaldar fyrir að skilja ekki
það vandamál sem Icesave-reikn-
ingar Landsbankans fólu í sér
fyrir íslenskt samfélag. Fremstir
í flokki fóru reyndar Landsbanka-
menn sjálfir, sem að mati nefnd-
arinnar átta sig ekki á alvarleika
málsins fyrr en á síðustu dögunum
fyrir lokun útibúanna í Bretlandi.
Fjármálaeftirlitið var hins vegar
málpípa bankans ytra.
Landsbankinn tilkynnti Fjármála-
eftirlitinu, með bréfi dagsettu 29.
júní 2005, að hann hygði á útvíkkun
starfsemi sinnar í London með því
að taka á móti innlánum. Það varð
síðan að veruleika í október 2006 og
í janúar 2008 voru fimm milljarðar
punda á reikningunum. Til trygg-
ingar þeirri fjárhæð, ef illa færi,
stóð Tryggingarsjóður innstæðu-
eigenda á Íslandi.
Eðlisbreyting án athugunar
Í skýrslunni er mikið gert úr þeirri
staðreynd að svo virðist sem engin
athugun hafi verið gerð áður en sú
aðstaða var komin upp. Í raun og
veru hafi verið um grundvallar-
breytingu á fjármögnun íslenska
bankakerfisins að ræða. Eftirlits-
aðilum hafi þó ekki þótt ástæða til
athugunar.
Í stað þess að bankinn fjármagn-
aði sig að stærstum hluta með fjár-
munum frá erlendum lánastofnunum
og fagfjárfestum, bættist nú í hóp
lánardrottna mikill fjöldi erlendra
einstaklinga sem fól bankanum
vörslu sparifjár síns. Engin könn-
un var gerð á hve öruggir Icesave-
reikningarnir voru sem fjármögn-
unarleið, eða hvaða áhætta kynni að
fylgja þeim fyrir efnahag Íslands.
Landsbankinn var það sem nefnt
er kerfislega mikilvægur banki. „Ef
áföll yrðu í rekstri hans var ljóst að
það gat haft veruleg áhrif á fjár-
málastöðugleika Íslands sem Seðla-
banka Íslands bar samkvæmt lögum
að varðveita,“ segir í skýrslunni.
Seðlabankinn hafi þannig ekki
gert nægilega athugun og ekki Fjár-
málaeftirlitið heldur. Stjórnvöld hafi
einnig flotið sofandi að feigðarósi.
Utanríkisþjónustan ekki nýtt
Breskar eftirlitsstofnanir höfðu
raunar meiri áhyggjur af Icesave en
þær íslensku, ef marka má skýrsl-
una. Bæði fjármálaeftirlitið breska
og seðlabankinn ræddu ítrekað við
íslenska kollega sína og stjórnvöld
um möguleikann á að færa Icesa-
ve undir breskt dótturfélag. Ekk-
ert varð úr því. „Íslensk stjórnvöld
voru ekkert að keyra okkur áfram í
þessu,“ sagði Sigurjón Þ. Árnason í
yfirheyrslu hjá nefndinni. Það hefðu
hin bresku gert.
Eftir fund tveggja bankastjóra
íslenska bankans með fulltrúum
þess breska í mars 2008, voru skila-
boð Íslendinganna að Bretar hefðu
ekki nægar upplýsingar til að meta
íslensku bankana.
Þá vekur nefndin athygli á því að
fyrir utan aðkomu að fundi í sept-
ember 2008, er sendiherra Íslend-
inga í Bretlandi fyrst virkjaður.
Utanríkisráðherra, Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, hafi átt fundi með
Seðlabanka Íslands og verið upplýst
um stöðuna.
Ekki verður þó séð af gögnum að
„neinar sérstakar ráðstafanir hafi
verið gerðar af hálfu utanríkisþjón-
ustunnar af þessu tilefni til að und-
irbúa viðbrögð eða virkja tengsl við
erlend stjórnvöld“ segir í skýrsl-
unni. Er þá sérstaklega horft til þess
ef áhlaup héldu áfram á reikninga
bankans.
Meira út en inn
Til Icesave-reikninganna var stofn-
að svo flytja mætti fjármuni af þeim
reikningum yfir í aðra hluta sam-
stæðu bankans. Það gekk vel fram-
an af, en þegar leið á árið 2008 kom
að því að Bretar spurðu sig hvað
byggi að baki þessum reikningum.
Umræður voru í breska þinginu og
The Times fjallaði um reikningana
og Tryggingarsjóðinn.
„Honum [Tryggingarsjóðnum] er
lýst sem forfjármögnuðum en í raun
á hann 88 milljónir punda í sjóðum.
Það á að tryggja inneignir fyrir 13,6
milljarða punda, 154 sinnum hærri
upphæð.“ Þá var bent á að heild-
arupphæð inneigna væri tvöföld
þjóðarframleiðsla bankans.
Þar kom að útflæðið varð meira
en innstreymið og þannig var það
síðasta árið fyrir fall bankanna.
Átti það við útibú bankans í Bret-
landi og Hollandi.
Landsbankamenn virðast hins
vegar ekki hafa áttað sig á í hvaða
óefni stefndi, sérstaklega Sigur-
jón, sem var tregari til að færa
reikningana yfir í dótturfélag en
Halldór. Haft er eftir Sigurjóni 14.
júlí 2008 að hann sé „ekki viss um
að flutningurinn borgi sig nema
fyrir Tryggingarsjóð innstæðu-
eigenda“.
Áfellisdómur
Skýrslan er áfellisdómur yfir
íslensk stjórnvöld, Fjármálaeftir-
lit, Seðlabanka og ekki síst Lands-
bankann sjálfan. Þau tæki sem þó
voru fyrir hendi voru ekki nýtt,
raunar þvert á móti í sumum tilfell-
um, eins og sannaðist þegar Seðla-
bankinn lækkaði bindisskyldu á
innlánsreiknum erlendis.
Icesave-reikningarnir voru
mál af þeirri stærðargráðu að gat
komið íslenskum efnahag á kné,
líkt og reyndin varð. Ráðherrar
virðast ekki hafa áttað sig á því,
litlar ráðstafanir voru gerðar og
því fór sem fór. Loks þegar ljóst
var hvert stefndi var það allt of
seint.
Á fundi Björgvins G. Sigurðs-
sonar viðskiptaráðherra og sendi-
nefndar með Alistair Darling, fjár-
málaráðherra Breta 2. september
2008, lýsti sá síðarnefndi því hvað
væri í vændum. Bretar myndu
ábyrgjast innistæður að fullu og
spurning væri hvert ætti að senda
reikninginn.
Enn er ósamið um Icesave.
kolbeinn@frettabladid.is
Ekki nóg gert í Icesave
10.10.2006 06.10.2008
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
0
Heildarinnlán Icesave í Bretlandi
M
ill
jó
ni
r p
un
da
„Bankamálaráðherra, nei, við töluðum við aldrei við hann, Seðlabankinn
bara boycut-aði á hann og talaði aldrei við hann, hann var náttúrulega
aldrei inni í neinu, það talaði aldrei neinn við hann.“
SIGURJÓN Þ. ÁRNASON, FYRRVERANDI BANKASTJÓRI LANDSBANKANS.
„Það er nú eitt sem maður saknar svolítið, mér finnst að við hefðum
getað gert meira, við Íslendingar, á þessu blómaskeiði okkar. Það ætti
að liggja meira eftir okkur, stór verk.“
HREIÐAR MÁR SIGURÐSSON, FYRRVERANDI FORSTJÓRI KAUPÞINGS.
„Og ég sagði við hann: Þorsteinn [M. Jónsson], ég veit að þú átt enga
peninga, geturðu útskýrt fyrir mér hvernig þú getur keypt Vífilfell? Og
hann horfði á mig, brosti, og ég gleymi aldrei orðalaginu: Með þróaðri
fjármálatækni.“
STYRMIR GUNNARSSON, FYRRVERANDI RITSTJÓRI MORGUNBLAÐSINS.
„Sigurjón er nú mikill stærðfræðingur og teiknaði upp fyrir mig einhver
box sem ég skildi nú ekki helminginn af hvernig ætti að með pílum og
örum að sem sagt ná í pening út úr Seðlabanka Evr-
ópu. Þetta snerist allt um það að búa til einhver
instrúment, einhver bréf sem bankinn tæki gild
sem veðandlag fyrir því að ná út evrum.“
GEIR HAARDE, FYRRVERANDI FORSÆTISRÁÐHERRA.
„Þau laun sem ég hef verið með hjá þessum
banka síðan 2003 hafa í öllum samanburði
við þá sem ég ber mig saman við verið óheyri-
lega lág. Það er nefnilega þannig.“
SIGURÐUR EINARSSON, FYRRVERANDI
STJÓRNAR FORMAÐUR KAUPÞINGS.
Úr skýrslu rannsóknarnefndar