Fréttablaðið - 13.04.2010, Qupperneq 10
10 13. apríl 2010 ÞRIÐJUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Xxxxxxx
ÚTFLUTNINGSVERÐLAUN Ólafur Ragnar Grímsson afhendir Sigurði Einarssyni, stjórn-
arformanni Kaupþings, og Hreiðari Má Sigurðssyni, forstjóra Kaupþings, útflutnings-
verðlaun forseta Íslands árið 2005. Sigurður fékk einnig fálkaorðu.
!
"
# # # $%
! "#$%& '()*+,"-.+/#
#01""2+3
!
! ) !/,%" '"
,/4
01+
"-.+
,"
#/"#
#01"""/"5#(6"*
!789&#"+
4 ,"-.+
'#,& + :
'" /66;
&"/'"
,/4 .&
-"%# &"'
(%!!#/"/'
$
*+/
01+
<
&
'("
!;"
#01""
"
" ! &/"=.&#"%&& ,"9+ &#$/&/',0'"$
#"%&& &"
01+
?
!;"
4/"
!.+/" 7 @% &',0'",
# &"
# *,%"
01+
A B C&/"/-"%# &"'
(%!!#/ D @.
&
#01""
E @.
&4/"
!.+4+
4/"
!.+/",F&
G !)C"+///
#01""
= H/" Þáttur Ólafs Ragnars
Grímssonar vekur sérstaka
athygli í þeirri atburðarás
sem leiddi til hrunsins, seg-
ir vinnuhópur um siðferði.
Forsetinn gekk langt í að
nota embættið útrásarvík-
ingum til framdráttar, eins
og segir í harðorðum kafla
um þátt forsetans.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, er einn þeirra sem bera
siðferðislega ábyrgð á aðdrag-
anda og falli íslensku bankanna,
með því að taka þátt í „því leikriti
sem leikið var í kringum foringja
útrásarinnar og fyrirtæki þeirra“.
Þetta er óháð þeirri staðreynd að
hann kom ekki beint að stjórn-
valdsákvörðunum.
Þetta er niðurstaða vinnuhóps
um siðferði og starfshætti. Þar
segir jafnframt: „svo hart gekk
forsetinn fram í þjónustu sinni við
útrásina og þá einstaklinga sem
þar voru fremstir í flokki,“ að ekki
varð hjá því komist að skoða þátt
forsetans sérstaklega.
Vinnuhópurinn fjallar í smáat-
riðum um hvernig forsetinn þró-
aði „kenningu sína“ um yfirburði
íslenskra fyrirtækja og stjórn-
enda þeirra. „Forsetinn beitti sér
af krafti við að draga upp fegraða,
drambsama og þjóðerniskennda
mynd af yfirburðum Íslendinga
sem byggðust á fornum arfi.“
Þetta gerði forsetinn einnig eftir
að gagnrýnar raddir tóku að heyr-
ast hér og erlendis og er niðurstaða
vinnuhópsins að Ólafur hafi verið í
hópi þeirra ráðamanna sem mark-
visst nýttu stöðu sína og „héldu í
víking útrásinni til varnar“.
Vinnuhópurinn fjallar sérstak-
lega um ferðalög forsetans í þágu
útrásarinnar og segir að upphaf-
lega hafi sú vegferð hafist með
nánu samstarfi við Sigurð Einars-
son, stjórnarformann Kaupþings.
„Má telja Sigurð meðal helstu
samstarfsmanna forsetans á síð-
ari árum.“ Vinnuhópurinn segir að
fjárfestingar íslenskra fyrirtækja í
mörgum löndum árin 2002 til 2008
endurspeglist vel í ferðum forset-
ans og nefnir ferðir til Rússlands,
Búlgaríu og víðar sem tengdust
umsvifum Björgólfsfeðga.
Vinnuhópurinn rifjar upp skrif
Guðjóns Friðrikssonar sagnfræð-
ings um ferðir forsetans til Kína
árið 2005 ásamt hundrað manna
föruneyti. Í þeim hópi voru „allir
helstu aðalleikararnir í útrásinni,
frá fjárfestunum Björgólfi Thor
Björgólfssyni, Jóni Ásgeiri
Jóhannessyni og Hannesi Smára-
syni til bankastjóranna Hreiðars
Más Sigurðssonar og Sigurjóns Þ.
Árnasonar,“ segir í skrifum vinnu-
hópsins.
Í umfjölluninni er rakið að Ólaf-
ur þáði oft að ferðast í einkaþotum
þeirra fyrirtækja sem helst hafa
verið til umfjöllunar vegna hruns-
ins. Má þar nefna leiguvélar eða
flugvélar í eigu Kaupþings, Acta-
vis, Glitnis, Novators, FL Group og
Eimskipafélags Íslands.
Eins er fjallað sérstaklega um
bréfaskrif forsetans. Fjallað er um
átta bréf sem teljast varpa ljósi á
hlut forsetans í þjónustu við stóru
útrásarfyrirtækin. Fréttablað-
ið hefur fjallað ítarlega um þessi
skrif forsetans en var neitað um
aðgang að fjölda bréfa á þeim tíma.
svavar@frettabladid.is
Var áberandi
sem boðberi
útrásarinnar
Þrátt fyrir að kenn-
ingar forsetans væru
harðlega gagnrýndar hélt
hann áfram að lofa útrásina.
Hann tók þátt í að gera lítið
úr þeim röddum sem vöruðu
við hættulega miklum um-
svifum íslenskra fyrirtækja.
NIÐURSTAÐA VINNUHÓPS
UM SIÐFERÐI OG STARFSHÆTTI
Lærdómar að mati vinnuhópsins
■ Skýra þarf hlutverk forseta Íslands mun betur í stjórnarskránni.
■ Setja þarf reglur um hlutverk og verkefni forseta Íslands og samskipti
hans við önnur ríki.
■ Æskilegt væri að forsetaembættið setti sér siðareglur þar sem meðal
annars yrðu ákvæði um það með hvaða hætti er eðlilegt að hann veiti
viðskiptalífinu stuðning.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
E.Ó
L.