Fréttablaðið - 13.04.2010, Qupperneq 12
13. apríl 2010 ÞRIÐJUDAGUR12
FRÉTTASKÝRING: Xxxxxxx
Fjölmiðlar brugðust hlut-
verki sínu í aðdraganda
bankahrunsins, er niður-
staða skýrslu vinnuhóps
um siðferði og starfshætti.
Langtum fleiri jákvæðar
en neikvæðar fréttir birtust
af fjármálafyrirtækjum á
tímabilinu 2006 til 2008 og
flestar byggðar á gögnum
frá fyrirtækjunum. Ekki
fékkst staðfesting á áhrif-
um eigenda á umfjöllun
fjölmiðla.
Fjölmiðlum ber að upplýsa almenn-
ing, vera vettvangur þjóðfélagsum-
ræðu og veita aðhald öflum sem
vinna gegn almannahag, segir í
skýrslu vinnuhópsins sem telur
fjölmiðla þarna hafa brugðist. Þeir
hafi hvorki verið vakandi fyrir
hættumerkjum né sýnt nægilegt
sjálfstæði. Þó að ekki hafi verið sýnt
fram á bein áhrif eigenda á frétta-
flutning hafi sjálfsritskoðun fjöl-
miðlamanna verið útbreidd, meðal
annars vegna fárra atvinnutæki-
færa fjölmiðlafólks.
Í rannsókn sem hópurinn lét
vinna um umfjöllun um íslensk
fjármálafyrirtæki í fjölmiðlum á
árunum 2006 til 2008 kemur fram
að á tímabilinu voru um 18 þús-
und fréttir af fjármálafyrirtækj-
um sagðar í íslenskum fjölmiðl-
um. Þar af töldust um 80 prósent
vera hlutlaus. Af þeim fréttum sem
eftir sitja eru langtum fleiri frétt-
ir jákvæðar en neikvæðar. Hlut-
fall á milli jákvæðra og neikvæðra
frétta af stærstu fjármálastofnun-
um var misjafnt. Flestar jákvæðar
fréttir á móti þeim neikvæðu birtust
um Landsbankann en fram kemur
að tólf til þrettán jákvæðar fréttir
birtust á móti hverri neikvæðri um
bankann. Hlutfallið var til dæmis
ein neikvæð á móti hverjum fimm
jákvæðum um Kaupþing.
Fjórar af hverjum fimm fréttum
úr fjármálaheiminum voru byggðar
á gögnum frá fyrirtækjunum sjálf-
um að mati rannsóknarhópsins og
greinandi eða sjálfstæð umfjöllun
var lítil sem engin. Umfjöllun um
fyrirtækin var almennt neikvæð-
ari eftir því sem fréttirnar byggðu
á fleiri heimildum.
Áhrif eigenda ekki staðfest
Engin staðfesting fékkst á beinum
áhrifum eigenda á umfjöllun fjöl-
miðla og ekki þóttu fjölmiðlar hafa
fjallað með jákvæðari hætti um fjár-
málafyrirtæki í eigu eigenda sinna
en annarra. Í skýrslunni segir hins
vegar að vinnuhópurinn hafi undir
höndum gögn sem sýni ýmiss konar
afskipti eigenda fjölmiðla af frétt-
um og annarri dagskrá. Rannsókn
á þeim sé þörf en hafi ekki fallið
innan ramma skýrslunnar.
Rætt var við ritstjóra og yfirmenn
á fjölmiðlum við gerð skýrslunn-
ar. Í þeim samtölum kemur meðal
annars fram að fjölmiðlamenn hafi
ekki haft sömu kunnáttu til að fást
við fjármálamenn og til dæmis
stjórnmálamenn. Ein skýring á lin-
kind fjölmiðlamanna var „óþarflega
mikið vináttusamband við umfjöll-
unarefnið“, er haft eftir Jóni Kaldal,
fyrrverandi ritstjóra Fréttablaðs-
ins. Þegar fjallað var um neikvæð-
ar skýrslur erlendra greinenda um
íslenskt viðskiptalíf hafi forsvars-
menn banka brugðist hart við.
Þöggun samfélagsins
Einn meginvandi íslenskra fjöl-
miðlamanna var lítill aðgangur að
upplýsingum um fjármálafyrir-
tæki. Gagnrýnt er hlutverk upplýs-
ingafulltrúa stóru fyrirtækjanna
sem virðist hafa verið að hagræða
sannleikanum. Fram kemur að fjöl-
miðlamönnum sem vinnuhópur um
siðferði tók viðtöl við þótti íslenskt
samfélag hafa verið mjög lokað,
bæði hafi skort á upplýsingar og
menn sammælst um að rugga ekki
bátnum. „Ástæðan er sú að það voru
svo margir sem áttu hagsmuni af
því að þegja,“ er haft eftir Ólafi
Stephensen, þáverandi ritstjóra
Morgunblaðsins, núverandi ritstjóra
Fréttablaðsins.
Smæð og einsleitni íslensks sam-
félags eru skýringar sem fjölmiðla-
fólkið nefnir um þöggunina í sam-
félaginu. Fólk hafi verið hrætt við að
missa vinnuna ef það myndi gagn-
rýna valdamikla menn og sömuleið-
is hafi menn ekki viljað fá á sig þann
kverúlantastimpil sem fylgdi þeim
sem gagnrýndu íslenskt samfélag á
þessum tíma. sigridur@frettabladid.is
Voru ekki vakandi fyrir hættumerkjum
Laugavegi 172-174 · 590 5000 · hekla.is · hekla@hekla.isÞjónustuver og þjónustumóttökur: Opið frá 8-17 alla virka daga · Pantanasími 590 5030 · thjonusta@hekla.is. Netspjall á www.hekla.is.
Þú getur treyst því að við gerum betur við VolkswagenHöfum þjónað Volkswagen
eigendum í 101 ár
Þótt Volkswagen bili sjaldan er mikilvægt að eftirlit og þjónusta sé í höndum fagfólks.
Birgir og félagar hafa samtals 101 árs reynslu af Volkswagen þjónustu og tryggja að þú
þurfir aldrei að bíða lengi eftir bílnum þínum. Láttu okkur gera betur við bílinn þinn.
100% þjónustulán án vaxta Val um upprunalega eða ódýrari varahluti Sérstök hraðþjónusta í boði Ókeypis forgreining
Jákvæðnistuðull frétta um fimm stærstu bankana
Lands- Straumur- Meðal-
Miðill Glitnir Kaupþing banki Burðarás SPRON tal
Morgunblaðið 0,82 0,67 0,86 0,71 0,7 0,78
Fréttablaðið 0,84 0,71 0,79 0,76 0,63 0,77
Viðskiptablaðið 0,88 0,9 0,96 0,87 0,76 0,9
Blaðið/24 stundir 0,67 0,3 0,85 0,76 0,45 0,62
DV1 0,03 0,2 0,7 -0,14 0,26 0,28
Fréttastofa Útvarps 0,59 0,47 0,9 0,29 0 0,55
Fréttastofa Sjónvarps2 0,73 0,54 0,87 0,33 0,2 0,65
Stöð 2 0,61 0,49 0,84 0,46 0,44 0,61
Meðaltal 0,77 0,65 0,85 0,69 0,59 0,74
Búinn var til mælikvarði sem virkar þannig að ef allar fréttirnar hefðu verið jákvæðar
hefði niðurstaðan verið 1 en ef allar hefðu verið neikvæðar hefði stuðullinn verið -1.
Talan núll hefði sýnt jafnvægi í jákvæðum og neikvæðum fréttum.
STAÐAN Í DAG Vandi fjölmiðla í dag að mati vinnuhópsins er að þeir glíma við
fjárhagslegar þrengingar auk þess sem sumir „stórleikaranna á sviðinu“ í aðdraganda
hrunsins eru þar áhrifamenn. Þá er átt við Jón Ásgeir Jóhannesson, en Ingibjörg
Pálmadóttir, kona hans, er aðaleigandi 365 miðla, og Davíð Oddsson, fyrrum forsæt-
isráðherra og seðlabankastjóra, sem er ritstjóri Morgunblaðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR