Fréttablaðið - 13.04.2010, Síða 14
13. apríl 2010 ÞRIÐJUDAGUR14
FRÉTTASKÝRING: Xxxxxxx
Hafðu samband
sími
Ert þú í Vildarþjónustu
Arion banka?
Arion banka arionbanki.is
ávinning
á
Alls 147 manns voru kvaddir til
skýrslutöku hjá rannsóknarnefnd
Alþingis, 121 karl og 26 konur.
Rúmlega helmingur þeirra
sem kallaðir voru fyrir nefndina
starfaði hjá eða tengdist bönk-
unum. Um tuttugu stjórnmála-
menn og embættismenn í ráðu-
neytum og 25 frá Seðlabankanum
og Fjármálaeftirlitinu voru einn-
ig kallaðir fyrir nefndina. Einnig
gáfu yfirmenn stærstu fjölmiðla
landsins, nokkrir stjórnendur líf-
eyrissjóða, háskólakennarar og
lögmenn skýrslur.
Rannsóknarnefnd Alþingis er
skipuð Páli Hreinssyni hæstarétt-
ardómara, Tryggva Gunnarssyni,
umboðsmanni Alþingis, og Sigríði
Benediktsdóttur, hagfræðingi
við hagfræðideild Yale-háskóla í
Bandaríkjunum. Sérstakur vinnu-
hópur sem lagði mat á hvort skýr-
ingar á hruninu megi finna að
einhverju leyti í starfsháttum og
siðferði skipuðu Vilhjálmur Árna-
son, prófessor í heimspeki við
Háskóla Íslands, Salvör Nordal,
forstöðumaður Siðfræðistofnunar
Háskóla Íslands, og Kristín Ást-
geirsdóttir, framkvæmdastýra
Jafnréttisráðs.
Þrjátíu manns störfuðu við
gerð skýrslunnar og veittu nefnd-
inni ráðgjöf og aðstoð. Sex manns
veittu siðferðisvinnuhópnum
aðstoð og sex erlendir sérfræð-
ingar aðstoðuðu einnig við skýrsl-
una. Rannsóknarskýrslan er 2.381
blaðsíða í níu bindum. - þeb
147 manns voru kallaðir til skýrslutöku:
Flestir frá bönkunum
SKÝRSLAN LESIN Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hófst strax handa við lestur
skýrslunnar á skrifstofu sinni í stjórnarráðinu í gærmorgun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Geir H. Haarde, fyrrver-
andi forsætisráðherra, seg-
ir skýrsluna sýna að vöxtur
bankanna hafi valdið hrun-
inu. Ekki hafi verið hægt að
bjarga þeim árið 2008.
„Það blasir við sem við höfum sagt
að það er fyrst og fremst framferði
bankanna sem verður þess vald-
andi að þeir fara á hausinn. Með
öðrum orðum er það ekki stjórn-
sýslunni að kenna að svo fór. Vafa-
laust mátti margt betur fara en það
er ekki þannig að ágallar á henni
hafi orðið til þess að svo fór sem
fór. Eða þá að ég hafi ekki talað
nægilega mikið við viðskiptaráð-
herrann. Það er ekki ástæðan fyrir
hruninu.
Það sem við í raun og veru
vorum að reyna að gera á árinu
2008 er nú komið í ljós að var
ómöguleiki. Það var ekki hægt að
bjarga bönkunum þegar þarna var
komið sögu. Það vissum við auðvit-
að ekki þá en við gerðum það sem
við gátum þó auðvitað megi segja:
þið hefðuð átt að gera meira og þið
áttuð að gera það fyrr.“
Geir gerði grein fyrir sínum
sjónarmiðum í löngu bréfi til rann-
sóknarnefndarinnar. Hann segir
að tekið hafi verið mark á sumu
en ekki öllu. „Þetta eru vissulega
mikil matsatriði og þegar menn
koma núna og segja: þið gerðuð
ekki réttu hlutina 2008, geta þeir
ekki sagt okkur hvað hefði verið
rétt að gera. Og eru nú liðin eitt
og hálft til tvö ár. Það voru því
miður ekki augljósar ráðstafan-
ir sem hægt var að grípa til en
nefndin leggur mér til vanrækslu
nokkur atriði og ég svaraði þeim
öllum í bréfinu. Ég gat ekki tekið
undir þau þá og geri ekki núna en
með þeim orðum er ég samt ekki
að víkja mér undan þeirri ábyrgð
sem á mér hvílir.“
En bankarnir fengu að vaxa.
Áttuð þið ekki að stöðva þann
vöxt?
„Þeir fengu að vaxa, það er
undirrótin að þessu, en þeir uxu
á grundvelli Evrópusambands-
reglna. Það er mjög hætt við því ef
við hefðum ætlað að grípa inn í og
banna þeim að stækka, til dæmis
með lögum, að þá hefði verið farið
í málaferli við íslenska ríkið. Í
skýrslu Seðlabankans frá því í
maí 2008 er talað um að hvergi á
EES-svæðinu séu hugmyndir um
að setja einhver sérstök stærðar-
mörk á bankana. Auðvitað voru
þeir orðnir alltof stórir en það eru
ákveðnar ástæður fyrir því. Það
eru þessar Evrópureglur og það er
ástandið á alþjóðlegum fjármála-
mörkuðum sem gerði þeim kleift
að fá svona mikið að láni á lágum
vöxtum. Hiklaust má halda því
fram að það hefði verið skynsam-
legt að stoppa þetta af, til dæmis á
árinu 2006 eða fyrr en það sá þetta
enginn fyrir.
Og við vitum líka hvernig and-
rúmsloftið í þjóðfélaginu gagn-
vart bönkunum var á þessum tíma.
Það voru allir yfir sig hrifnir og
ánægðir með þau háu laun sem
bankarnir borguðu, þessa miklu
skatta og hvað þeim virtist vegna
vel, til dæmis í útlöndum.“
Var ríkisstjórnin undir ægi-
valdi Davíðs Oddssonar í Glitnis-
málinu?
„Þegar þarna var komið var
þegar komið í óefni. Glitnir hafði
leitað til Seðlabankans og Seðla-
bankinn kom með tillögu sem rík-
isstjórnin féllst á. Síðan hafa menn
deilt um hvort hún hafi verið rétt
eða röng en það var að mínum
dómi ekki um neitt annað að ræða
þá. Og við höfðum ekki forsendur
til að vefengja þessa tillögu. Ég tel
ennþá að þetta hafi verið það eina
sem við gátum gert“
Stjórnvöld eru gagnrýnd fyrir
margt í efnahagsstjórninni, til
dæmis breytingar á útlánareglum
Íbúðalánasjóðs. Þær eru sagðar
hafa verið til skaða og þú ert sagð-
ur hafa séð þann skaða fyrir en
metið hann ásættanlegan svo rík-
isstjórn Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks héldi völdum.
„Þetta er ekki rétt útlegging.
Það sem ég segi í skýrslunni er að
þessi ákvörðun hafi verið mistök í
ljósi þess sem síðar gerðist og var
ekki partur af þessari ákvörðun,
Það er að segja þegar bankarnir
ruddust inn á íbúðalánamarkaðinn
með miklum hávaða og byrjuðu að
keppa og dæla inn erlendu lánsfé á
þennan markað.
Ég óttaðist, og það er það sem ég
segi í þessari skýrslu, að það gæti
verið varhugavert að auka útlána-
möguleika Íbúðalánasjóðs en það
var samt ákveðið að gera það af
ýmsum ástæðum. Þetta var mikið
áherslumál hjá Framsóknarflokkn-
um en auðvitað vissi Framsókn-
arflokkurinn ekki frekar en við
hvernig bankarnir myndu bregð-
ast við og það var auðvitað mjög
alvarlegt og hafði mjög óheppileg
áhrif.
Við þetta vil ég bæta að margt
sem snertir þjóðarhag er gagn-
rýnivert og hefði betur mátt fara
en þau atriði eru ekki ástæða fyrir
hruninu. “
Hvernig horfir við þér að þurfa
hugsanlega að verja þig fyrir
landsdómi?
„Komi til þess mun ég bara gera
það. Alþingi fer með ákæruvaldið
í þessu máli og verður þá að koma
sér saman um ákæru með einhverj-
um ákæruliðum og ef það verður
niðurstaðan þá tek ég því auðvitað.
Ég reyni ekki að víkja mér undan
því frekar en annarri ábyrgð sem
á mér hvílir í þessu en ég legg
áherslu á að þessi þingnefnd fái
starfsfrið til að meta þetta og svo
kemur einhver niðurstaða úr því.“
bjorn@frettabladid.is
Inngrip hefðu getað kostað málaferli
GEIR H. HAARDE Fyrrverandi forsætis-
ráðherra telur að ekki hafi verið hægt að
bjarga bönkunum árið 2008.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N