Fréttablaðið - 13.04.2010, Side 16
13. apríl 2010 ÞRIÐJUDAGUR16
FRÉTTASKÝRING: Xxxxxxx
Forstjóri Fjármálaeftirlits-
ins óskaði ekki eftir aukn-
um fjárveitingum og nýtti
ekki þær valdheimildir sem
eftirlitið bjó yfir í aðdrag-
anda bankahrunsins, að
mati rannsóknarnefndar
Alþingis. Hann sýndi af sér
vanrækslu að mati nefndar-
innar. Eftirlitið treysti of
mikið á gölluð álagspróf og
lét hjá leggjast að gera lög-
reglu viðvart um lögbrot.
Stjórnendur Fjármálaeftirlitsins
(FME) töldu að engin meiri hátt-
ar vandræði steðjuðu að bönkun-
um fram eftir ári 2008. Þeir mátu
ástandið rangt. Þetta er meðal
þess sem fram kemur í þeim
kafla skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis sem fjallar um eftirlitið.
Mikið vantaði upp á að FME hafi
verið í stakk búið til að sinna eftirliti
með fjármálafyrirtækjum þar sem
eftirlitið skorti fé til rekstrarins. Af
því leiddi að eftirlitið stækkaði ekki
nægilega hratt samanborið við gríð-
arlegan vöxt fjármálakerfisins.
„Ábyrgð á því að Fjármálaeftir-
litið fékk ekki meiri fjármuni en
raun bar vitni liggur að mati rann-
sóknarnefndar Alþingis hjá stjórn-
endum Fjármálaeftirlitsins þar
sem þeir óskuðu sjálfir ekki eftir
nægum fjárveitingum,“ segir í
skýrslu rannsóknarnefndarinnar.
Rannsóknarnefndin telur að
Jónas Fr. Jónsson, þáverandi
forstjóri FME, hafi sýnt af sér
vanrækslu við framkvæmd laga um
fjármálastarfsemi. Eins og banka-
stjórar Seðlabankans er hann átal-
inn fyrir að hafa ekki sinnt hlut-
verki sínu nægilega vel, og að
hafa ekki haft nægt eftirlit með
fjármálakerfinu.
Málin ekki í formlegt ferli
FME naut þeirrar sérstöðu að
fá ekki rekstrarfé af fjárlögum,
heldur var starfsemi stofnunar-
innar kostuð af eftirlitsskyldum
fjármálafyrirtækjum. Í skýrslunni
segir að þar sem stjórnendur FME
hafi ekki óskað eftir auknum fjár-
munum til þess að efla stofnunina
hafi ekki reynt á hvort löggjafinn
hafi verið reiðubúinn til að hækka
eftirlitsgjöldin sem lögð voru á
fjármálafyrirtækin.
Tekið er fram að með þessu
sé ekki verið að halda því fram
að ábyrgð viðskiptaráðherra og
Alþingis hafi engin verið.
Skýrsluhöfundar átelja stjórn-
endur FME fyrir að setja mál ekki
í formlegt ferli heldur treysta á að
hægt væri að leysa úr þeim með
óformlegum samskiptum við fjár-
málafyrirtæki. Eftirlitið hafi lokið
tiltölulega fáum málum með form-
legri beitingu valdheimilda, svo
sem stjórnvaldssekta, dagsekta eða
annarra úrræða.
Í ljósi þeirra alvarlegu brota
sem FME benti á í skýrslum sínum
verður ekki annað séð en tilefni
hafi verið til að grípa í mun fleiri
tilvikum til slíkra úrræða, að mati
rannsóknarnefndarinnar.
Ekki verður skorti á heimildum
kennt um aðgerðaleysi, enda
bjó FME að sömu heimildum og
sambærilegar eftirlitsstofnan-
ir á nágrannalöndunum, segir í
skýrslunni.
Dæmi eru um að mál hafi verið
lengi í óformlegum farvegi hjá eft-
irlitinu lengi, ýmist óhreyfð með
öllu eða bréf hafi gengið á milli.
Þetta hafði í för með sér að
eftirlitsskyldir aðilar komust í
sumum tilvikum upp með að færa
stórar lánveitingar í bókhald sitt
með ólöglegum hætti, í lengri eða
skemmri tíma, segir í niðurstöðum
rannsóknarnefndarinnar.
Mörg þessara brota hafi ekki
verið hægt að líta á sem minni hátt-
ar brot. Það er að mati rannsókn-
arnefndarinnar „ótækir stjórn-
sýsluhættir“, og gengur í bága við
lögboðna málsmeðferð.
Treystu á gölluð álagspróf
Fjármálaeftirlitið beitti álagspróf-
um ársfjórðungslega til að kanna
hvort fjármálafyrirtæki væru í
stakk búin að taka við áföllum án
þess að eiginfjárhlutfallið fari
niður fyrir lögboðið lágmark.
Slík álagspróf voru gerð um mitt
ár 2008. Allir bankarnir stóðust
prófið. Í tilkynningu frá FME, dag-
settri 14. ágúst 2008, segir: „Niður-
stöður álagsprófsins sýna að eig-
infjárstaða bankanna er sterk og
getur þolað töluverð áföll.“ Einum
og hálfum mánuði síðar voru við-
skiptabankarnir þrír allir fallnir.
Álagsprófin voru gagnrýnd fyrir
að mæla ekki nægilega nákvæm-
lega styrkleika fjármálafyrirtækj-
anna. Þannig benti Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn á það bæði árið 2007
og 2008 að bæta þyrfti prófin. Þau
gerðu bara ráð fyrir einföldu áfalli,
ekki bylgju áfalla sem skollið gætu
á bönkunum.
Þrátt fyrir þetta höfðu niður-
stöður úr prófunum mikil áhrif
á starfsemi FME. Í skýrslu rann-
sóknarnefndarinnar segir að Jónas
Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri
eftirlitsins, hafi litið svo á að ekki
væri hægt að grípa inn í starfsemi
bankanna, eða krefja þá um að
draga úr áhættu, þegar hlutlægir
mælikvarðar í prófunum hafi verið
í lagi.
Rannsóknarnefndin tekur undir
gagnrýni Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins. Nefndin gagnrýnir að í álags-
prófunum hafi eingöngu verið horft
til áhrifa á eigin bréfa fjármála-
fyrirtækjanna af lækkun hluta-
bréfaverðs. Ekki hafi verið tekið
tillit til þess hversu viðkvæm fyrir-
tækin hafi verið fyrir gengi hluta-
bréfa vegna lána sem þau veittu
með veði í hlutabréfum, auk fram-
virkra samninga um hlutabréf.
„Áherslan á eiginfjárhlutfall
bankanna við framkvæmd álags-
prófa leiddi til þess að niðurstöð-
ur prófa Fjármálaeftirlitsins urðu
verulega villandi síðustu tólf mán-
uðina fyrir fall bankanna,“ segir í
skýrslu rannsóknarnefndarinnar.
Öll opinber upplýsingagjöf lit-
aðist af niðurstöðum álagspróf-
ana, sem gáfu til kynna að bank-
arnir stæðu traustum fótum stuttu
fyrir hrun. Það veitti að mati
rannsóknarnefndarinnar falskt
öryggi. brjann@frettabladid.is
FME í fjársvelti og óx allt of hægt
Fjármálaeftirlitið er átalið í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis fyrir að grípa
ekki til aðgerða vegna lánveitinga Landsbankans til Björgólfs Thors Björgólfs-
sonar, annars aðaleigenda bankans.
Vitnað er til tilviks sem upp kom árið 2005, þegar
áhættufjárfesting Landsbankans til Björgólfs Thors
Björgólfssonar var komin í um 50 prósent af eiginfé
bankans. Það var um tvöfalt meira en lögbundið
hámark, sem er 25 prósent. Brot bankans var að mati
rannsóknarnefndarinnar sérlega ámælisvert þar sem
Björgólfur var annar af aðaleigendum bankans.
Fjármálaeftirlitið hefði geta veitt Landsbankanum
frest til úrbóta og beitt dagsektum að þeim fresti
loknum. Það var ekki gert. Þá hefði FME átt að kæra
bankann til lögreglu. Viðurlög við þeim brotum sem
þar virðast hafa verið framin geta verið sektir eða allt
að tveggja ára fangelsi. Vakin er á því athygli í skýrslu
rannsóknarnefndarinnar að þó málið hafi verið rætt í stjórn FME hafi það
einungis verið gert með almennum hætti, ekki hafi verið rætt um hvort
tilkynna ætti um málið til lögreglu.
FME kannaði ekki heldur hvort sú staðreynd að Björgólfur Thor átti virkan
eignarhlut í bankanum hafi spilað inn í þá ákvörðun bankans að lána
honum svo háar fjárhæðir. Hefði það reynst raunin hefði það gefið tilefni til
að kanna hvort skilyrði væru til að taka til endurmats hæfi Björgólfs til að
fara með virkan eignarhlut í bankanum.
Vísa hefði átt lánveitingum til lögreglu
BJÖRGÓLFUR THOR
BJÖRGÓLFSSON
Íslenska Fjármálaeftirlitið nýtti tíma
starfsmanna sinna að mörgu leyti
með svipuðum hætti og systur-
stofnun FME í Danmörku. Íslenska
Fjármálaeftirlitið varði þó tímanum
í áberandi minna mæli í vettvangs-
athuganir og reglusetningu, sam-
kvæmt skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis.
Þá er bent á að FME hafi aldrei
farið í eftirfylgniheimsóknir í kjölfar
vettvangsrannsókna. Vitnað er í
skýrslutöku af Jónasi Fr. Jónssyni,
fyrrverandi forstjóra FME, sem sagði
stofnunina hafa venjulega tekið
trúanlegar upplýsingar um úrbætur.
Forsvarsmenn FME báru því
við í skýrslutöku hjá nefndinni að
fjárskortur og mannfæð hafi valdið
því að vettvangsrannsóknir hafi ekki
verið jafn algengar og æskilegt hefði
verið.
Í niðurstöðum nefndarinnar segir
að draga megi í efa að stofnun, sem
ekki geti sinnt frumkvæðisvinnu á
borð við vettvangsathuganir nema
að takmörkuðu leyti, geti sinnt hlut-
verki sínu með fullnægjandi hætti,
þegar til lengri tíma sé litið.
Skýrsluhöfundar segja að ætla
megi að minni áhersla FME á að
vinna að reglusetningu hafi haft
skaðleg áhrif, ekki síst þar sem
þeirri stefnu hafi verið fylgt hér á
landi að innleiða aðeins nauðsyn-
legar reglur frá Evrópska efnahags-
svæðinu.
Frumkvæðisvinnu skorti hjá FME
EFTIRLITSVERKEFNI
55%
Fjárhagslegt
eftirlit
22,1%
Almenn
rekstrarmál
29,5%
Reglusetning-
arvinna
5,8%
Erlent
samstarf
9,7%
Önnur
eftirlitsmál
24,4%
Vettvangsat-
huganir
8,5%
Heimild: Rannsóknarskýrsla Alþingis
Skipting vinnustunda
Fjármálaeftirlitsins
VANRÆKSLA Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, er einn þeirra
sem sakaðir eru um vanrækslu í skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Hér er Jónas á
ársfundi FME árið 2005 þar sem umræðuefnið var FME og útrásin eins og sjá má.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN