Fréttablaðið - 13.04.2010, Qupperneq 22
2
DÝR
Sómalí og abyssiníu
Abyssiníu- og sómalíkettir eru
í grunninn af sömu tegund,
nema sómalíkettir eru síðhærð-
ir. Hár þeirra eru röndótt, með
tvær til þrjár litarendur í hverju
hári abyssiníukatta en tíu til ell-
efu í feldi sómalíkatta. Skapgerð
þeirra þykir einstök í kattaheimin-
um, þar sem kettirnir sjálfir virð-
ast oft sjálfir telja sig til mann-
kyns. Þannig eru þeir með nefið
ofan í öllu sem gerist á heimilinu
og fylgja eigendum hvert sem er
eins og skugginn, enda einstak-
lega forvitnir. Ekki er mælt með
því að fólk sem er mikið að heim-
an fái sér sómalíketti þar sem þeir
þurfa mikla athygli og vilja láta
leika við sig. Þannig henta
þeir barnafjöl-
skyldum afar vel.
Kynið þykir einnig
bera af hvað gáfna-
far snertir.
Kyn norskra skógarkatta er stórt
og sterklegt þótt það sé fremur
seinþroska. Fressin verða full-
vaxin um fjögurra ára og læðurn-
ar þriggja ára. Feldur þeirra er
mikill og þykkur en þynnist allur
þegar hlýna fer. Kynið var upp-
haflega villt en kettirnir er samt
ákaflega góðir innikettir og hafa
fjöruga en þó blíða skapgerð og
lyndir vel við börn og önnur dýr.
Leiti fólk að einkavini er þekkt að
norskir skógarkettir bindast jafn-
an einhverri einni manneskju í fjöl-
skyldunni sérstökum böndum sem
kötturinn velur sjálfur.
Bengalkettir
Þrátt fyrir að bengalkettir geti
litið vígalega út, með sína bletti á
feldinum, eru þeir einstaklega ást-
ríkir og blíðlyndir. Ólíkt því sem
oftar á við um ketti, eru þeir síður
vatnshræddir en önnur kattakyn.
Margir njóta þess að sulla með
vatn og sumir vilja jafnvel fara
ofan í baðið með eigendum sínum.
Auðvelt er að venja bengalkött á
ól og kenna þeim ýmis brögð. Eitt
er þó einkennandi fyrir ketti af
bengalkyni, að engir tveir þeirra
eru eins og þannig geta þeir ýmist
verið gefnir fyrir rólegheit og
næði eða viljað mikið fjör.
Alls kyns persónuleikar
Þekkt kattakyn og viðurkennd teljast vera milli 30 og 40 í dag. Persónuleikar og líkamlegt atgervi hverrar
tegundar er mismunandi. Fréttablaðið valdi af handahófi þrjú kattakyn og skoðaði hvað einkennir þau.
Bengalkettir líta vígalega út en eru í
reynd algerir bangsar í viðmóti.
Sómalíkettir hafa
notið mikilla
vinsælda hér-
lendis. Þeir
eru bráðgáf-
aðir og vilja
ekki missa
af neinu
sem
gerist í
kringum
þá.
Norski skógarkötturinn er upprunalega
villtur en er mjög heimaelskur ef hann
kynnist aldrei öðru. NORDICPHOTOS/GETTY
SJÚKRASJÓÐURINN NÓTT var stofnaður árið 2006.
Honum er ætlað að standa straum af kostnaði við læknisaðgerðir á
slösuðum kisum sem finnast á götum borgarinnar. www.kattholt.is
„Stærsta minnsta búð landsins!“
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Norskir
skógarkettir