Fréttablaðið - 13.05.2010, Síða 2
2 13. maí 2010 FIMMTUDAGUR
SPORTVEIÐI „Fuglinn var vel hald-
inn,“ segir Haukur Snorrason,
einn félagsmanna Hins íslenska
byssuvinafélags, sem 1. maí efndi
til hópferðar til að skjóta svartfugl
undir Látrabjargi.
Byssuvinirnir tóku hvalaskoð-
unar- og sjóstangveiðibátinn
Andreu á leigu í Stykkishólmi og
sigldu þaðan út Breiðafjörðinn og
í nágrenni Látrabjargs. Þar segir
Haukur að mikið sé af fugli á þess-
um tíma.
„Um borð voru 26 skyttur sem
skiptu sér í þrjú holl sem skipt-
ust á um að vera í stafni og skjóta
þegar skipstjórinn gaf merki.
Síðan tíndi Zódíak-gúmmíbátur
fuglana upp.“
Að sögn Hauks var afrakstur-
inn á bilinu 600 til 700 fuglar, mest
álka en einnig eittvað af lunda og
langvíu. Það sé ágætt miðað við
að aðeins hafi verið veitt í þrjár til
fjórar klukkustundir. Veiðitímabil-
inu á svartfugli lauk í byrjun vik-
unnar enda varp að hefjast.
Eftir veiðina var Andreu snúið
inn á Breiðafjörðinn aftur þar sem
gist var í Svefneyjum. Úlfar Finn-
björnsson listakokkur var einn
leiðangursmanna og reiddi fram
kræsingar í næturstað. „Það var
borðað úti í mildu veðri undir vor-
himni. Það var ævintýrablær yfir
allri þessari ferð,“ segir Haukur.
Hið íslenska byssuvinafélag
hefur starfað frá árinu 1992. Stór
ferð í líkingu við þessa sem hér er
sagt frá hafi þó aðeins einu sinni
verið farin. Það var fyrir þrettán
árum. Haukur segir félagið stofn-
að utan um áhuga félagsmanna á
byssueign, byssusmíði og -söfnun
og skotveiði. „Þetta er skemmti-
leg blanda manna úr öllum stig-
um þjóðfélagsins,“ segir Haukur
Snorrason. gar@frettabladid.is
Her skotveiðimanna
skaut 700 svartfugla
Þrjátíu manna hópur úr Hinu íslenska byssuvinafélagi skaut sjö hundruð svart-
fugla í nágrenni Látrabjargs. Leigður var hvalaskoðunarbátur til fararinnar sem
lýst er sem ævintýralegri. Listakokkur annaðist villibráðarveislu í Svefneyjum.
VÍGALEGUR MANNSKAPUR Eitt þriggja holla liðsmanna Hins íslenska byssuvinafélags
bíður átekta í stafni hvalaskoðunarskipsins Andreu eftir að skipstjórinn gefi merki um
að hefja svartfuglsveiðarnar. MYND/HAUKUR SNORRASON
VILLIBRÁÐARVEISLA Í SVEFNEYJUM Úlfar
Finnbjörnsson listakokkur var með í för og
reiddi hann fram kræsingar á næturstað
leiðangursmanna. MYND/HAUKUR SNORRASON
Um borð voru 26
skyttur sem skiptu
sér í þrjú holl sem skiptust á
um að vera í stafni og skjóta
þegar skipstjórinn gaf merki.
Síðan tíndi Zódíak-gúmmíbát-
ur fuglana upp.
HAUKUR SNORRASON
FÉLAGI Í HINU ÍSLENSKA
BYSSUVINAFÉLAGI
Árni Páll, á bara að keyra
þetta mál í gegn?
„Já, en Alþingi ræður hraðanum.“
Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra
hefur um nokkurra vikna skeið staðið
í viðræðum við bílalánafyrirtækin um
afskriftir erlendra bílalána og breytingar á
þeim í íslenskar krónur. Hann lagði málið
fyrir á Alþingi í gær.
Sjö ökumenn í fíkniefnum
Sjö voru teknir á höfuðborgarsvæðinu
um helgina fyrir að aka undir áhrifum
fíkniefna, sex karlar og ein kona. Einn
hafði þegar verið sviptur ökuleyfi,
annar hafði aldrei fengið ökuréttindi
og sá þriðji var á stolnum bíl.
LÖGREGLAN
Tveir listar í Strandabyggð
Tveir framboðslistar verða í Stranda-
byggð í komandi sveitarstjórnar-
kosningum, annars vegar J-listi:
Listi félagshyggjufólks og V-listi:
Listi Vinstri hreyfingarinnar - græns
framboðs.
SVEITASTJÓRNARMÁL
DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti
í gær átta ára fangelsisdóm yfir
Bjarka Má Magnússyni fyrir
hrottafengið ofbeldi gegn sambýl-
iskonu sinni um árabil. Málið á sér
enga hliðstæðu í íslenskri réttar-
sögu.
Bjarki er dæmdur fyrir að hafa í
fimm skipti á árunum 2006 til 2007
ráðist á konuna með ofbeldi, sem
olli henni stórfelldu heilsutjóni, að
því er fram kom í ákæru.
Maðurinn neyddi einnig konuna,
„með hótunum og annars konar
ólögmætri nauðung“, til kynmaka
með ókunnug-
um mönnum, oft
mörgum í einu.
Bjarki ýmist
ljósmyndaði
ofbeldið eða tók
það upp á mynd-
band og var iðu-
lega þátttakandi
í því sjálfur.
Alls var um
fimmtán skipti
að ræða með ellefu mönnum utan
hans sjálfs. Þá var hann dæmdur
fyrir að ráðast á föður sinn.
Bætur til konunnar voru hins
vegar lækkaðar úr 3,8 milljónum
í þrjár.
Bjarki hefur aldrei setið í gæslu-
varðhaldi vegna málsins og geng-
ur enn laus. Það er mjög óvenjulegt
þegar menn hafa hlotið svo þunga
dóma fyrir svo alvarleg afbrot.
Páll Winkel fangelsismálastjóri
segir í samtali við Fréttablaðið að
Bjarki Már fari af þeim sökum
fremst í forgangsröðina hjá þeim
nú. Hann fari rakleiðis í afplánun
þegar pláss losnar. Ekki sé þó ljóst
hvenær það verður. - sh
Hæstiréttur lækkar bætur sem Bjarka Má Magnússyni er gert að greiða þolanda:
Átta ára fangelsi yfir níðingi staðfest
BRETLAND, AP Fimm ráðherrar í
nýrri ríkisstjórn Davids Camer-
on, leiðtoga Íhaldsflokksins í Bret-
landi, koma úr röðum Frjálslyndra
demókrata.
Gengið verður frá formlegri
stjórnarmyndun á næstu dögum.
Fyrir liggur að Nick Clegg, leið-
togi Frjálslyndra demókrata, verð-
ur aðstoðarforsætisráðherra.
Þá liggur fyrir að náinn félagi
Davids Cameron, George Osborne,
verður fjármálaráðherra, og Willi-
am Hague, fyrrverandi leiðtogi
Íhaldsflokksins, tekur við embætti
utanríkisráðherra. Samsteypu-
stjórn Íhaldsflokksins og Frjáls-
lyndra demókrata er fyrsta sam-
steypustjórnin í Bretlandi í 65 ár.
Cameron hefur þegar lofað því
að innan 50 daga verði lögð fram
neyðarfjárlög, en nýja stjórnin
vill hraða opinberum niðurskurði.
Spara á sex milljarða punda (1.150
milljarða króna) á fjárlagaárinu
sem lýkur í apríl.
Þá ætlar nýja stjórnin að stokka
upp kosningakerfi landsins, en það
var ein af kröfum Frjálslyndra
demókrata í stjórnarmyndunar-
viðræðunum.
Nýr utanríkisráðherra, William
Hague, hefur líka boðað að tengsl-
in við Bandaríkin verði „traust en
ekki þrælsleg“ og að Evrópusam-
bandinu verði ekki gefin eftir frek-
ari völd án þjóðaratkvæðagreiðslu.
- óká
Fyrsta samsteypustjórnin í 65 ár lítur dagsins ljós:
Ráðist í mikinn niður-
skurð hjá hinu opinbera
NÝ STJÓRN HANDSÖLUÐ David Cameron
tekur í höndina á Nick Clegg fyrir utan
Downingstræti 10 í Lundúnum í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BJARKI MÁR
MAGNÚSSON
SVÍÞJÓÐ, AP Sænski teiknarinn
Lars Vilks vonast til að fá boð
um að endurflytja fyrirlestur um
málfrelsi við Uppsalaháskóla.
Hann varð frá að hverfa á þriðju-
dag vegna mótmæla múslima á
fundarstað.
Vegna friðsamlegra mótmæla
utan dyra voru lögreglumenn
í salnum, en þar kom til átaka.
Vilks var skallaður í andlitið og
gleraugu hans brotnuðu. Hann
sakaði þó lítið.
Vilks hefur fengið hótanir eftir
birtingu myndar hans af spá-
manninum Múhameð í hundslíki.
Í fyrra var flett ofan af samsæri
um að myrða hann. - óká
Teiknari hraktist úr fundarsal:
Skrámaðist í
mótmælum
MÓTMÆLT Í UPPSÖLUM Mótmælendur
í fundarsalnum þar sem Lars Vilks hélt
erindi í Uppsalaháskóla í Svíþjóð á
þriðjudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Tveir menn sem grun-
aðir eru um að hafa ráðist á
64 ára mann, eiginkonu hans
og dóttur við heimili þeirra í
Reykjanesbæ 3. maí síðastliðinn,
hafa verið úrskurðaðir í áfram-
haldandi gæsluvarðhald til 8.
júní.
Dómari við Héraðsdóm Reykja-
ness tók sér sólarhringsfrest til
að taka afstöðu til kröfu lög-
reglustjórans á Suðurnesjum um
áframhaldandi gæsluvarðhald
yfir mönnunum. - jss
Dómari tók sólarhringsfrest:
Meintir hrottar
áfram í gæslu
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært karlmann um sjötugt fyrir
sérstaklega hættulega líkamsárás.
Maðurinn er ákærður fyrir að
hafa, að morgni laugardagsins
11. apríl 2009, stungið konu með
hnífi í brjóstið, með þeim afleið-
ingum að hún hlaut 2,5 senti-
metra stungusár á framanverðu
brjóstholi, loftbrjóst og loft í mið-
mæti.
Konan gerir einkaréttarkröfu
í málinu. Hún krefst skaðabóta
að upphæð ríflega tvær milljónir
króna. - jss
Ákærður fyrir líkamsárás:
Stakk í brjóst
konu með hnífi
FJÖLMIÐLAR Lestur Fréttablaðsins
á landsvísu í apríl jókst um þrjú
prósent miðað við apríl í fyrra
meðan lestur Morgunblaðsins
dróst saman um þrettán prósent.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í nýrri lestrarkönnun
Capacent Gallup. Meðallestur á
tölublað Fréttablaðsins mælist 64
prósent á landsvísu, en 34,8 pró-
sent hjá Morgunblaðinu.
Milli kannana eykst lestur á
bæði blöð, Fréttablaðsins um
tvö prósent og Morgunblaðsins
um átta. Á könnunartímanum
var margt stórfrétta, eldgos og
útgáfa rannóknarskýrslu Alþing-
is og ekki ólíklegt að þær hafi
haft áhrif á notkun fjölmiðla. - óká
Lestur dagblaða eykst:
Meiri lestur í
tíð stórfrétta
Dagblaðalestur
%
60
50
40
30
20
10
0
Maí-júl. 2007 Ág.-okt. 2008 Feb-apr. 2010
Fréttablaðið Morgunblaðið
CAPACENT 12. MAÍ.2001
64,0%
34,8%
SPURNING DAGSINS
HANNAÐ AF FAGFÓLKI - Á VERÐI FYRIR ÞIG
LYFTINGU
Sérhönnuð hárvörulína fyrir aukna
Ýkir lyftingu, mótar og gefur glans