Fréttablaðið - 13.05.2010, Blaðsíða 46
30 13. maí 2010 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
SJÓNVARPSÞÁTTURINN
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 10
1 Fá sex menn samkvæmt
könnuninni.
2 Maxí popp er fjörutíu ára.
3 Arnar Sveinn Geirsson.
LÁRÉTT 2. jurt, 6. í röð, 8. styrkur,
9. fugl, 11. dreifa, 12. lítið glas, 14.
stærðfræðitákn, 16. í röð, 17. ról, 18.
gubb, 20. ung, 21. glufa.
LÓÐRÉTT 1. samtals, 3. guð, 4. umtal,
5. slagbrandur, 7. andóf, 10. mán-
uður, 13. dvelja, 15. greinilegur, 16.
persónufornafn, 19. frá.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gras, 6. lm, 8. afl, 9. lóm,
11. sá, 12. staup, 14. mínus, 16. þæ,
17. ark, 18. æla, 20. ný, 21. rifa.
LÓÐRÉTT: 1. alls, 3. ra, 4. afspurn, 5.
slá, 7. mótmæli, 10. maí, 13. una, 15.
skýr, 16. þær, 19. af.
„Við urðum að loka fyrir að menn gætu lagt undir
á sigur Hauka rúmri einni og hálfri klukkustund
fyrir leik. Það voru ansi margir sem virtust reiðu-
búnir til að leggja sitthvað undir á slík úrslit,“ segir
Hjörvar Hafliðason, stuðlameistari hjá Íslenskum
getraunum. Mikla athygli vakti að stuðullinn á sigur
Hauka gegn KR í Frostaskjólinu á Lengjunni var
sextán, sem þýddi að viðkomandi fengi upphæðina
greidda sextánfalt tilbaka ef svo ólíklega vildi til að
Haukarnir merðu sigur. Algengur stuðull á útilið er
á bilinu 3-5.
Fjölmargir voru spenntir fyrir því að tippa á ein-
hver óvæntustu úrslit íslenskrar knattspyrnusögu
en Hjörvar segir stuðulinn enga tilviljun. Svipað-
ur stuðull hafi verið notaður í leik Chelsea og Wigan
í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar um síðustu
helgi. Chelsea vann leikinn 8-0. Fyrstu sjötíu mínút-
urnar í Frostaskjólinu bentu til þess að stuðull lengj-
unnar hefði átt rétt á sér, Vesturbæjarstórveldið lék
við hvurn sinn fingur, skoraði tvö mörk og skap-
aði urmulinn allan af dauðafærum. Allt kom fyrir
ekki og Haukarnir náðu að jafna leikinn skömmu
fyrir leikslok og voru raunar hársbreidd frá því að
stela sigrinum. Stuðullinn á jafntefli var hins vegar
„bara“ fjórir enda segir Hjörvar stóran mun á sigri
og jafntefli og það hafi í raun aldrei farið um hann
eftir að Haukarnir jöfnuðu.
Hjörvar segir úrslitin frá því á þriðjudagskvöld
ekki breyta því að stuðullinn á Hauka verði sem fyrr
mjög hár, í kringum sextán, enda er næsti leikur
nýliðanna gegn hinum fornu fjandmönnum þeirra úr
Hafnarfirði, sjálfum Íslandsmeisturunum í FH. - fgg
Stór munur á sigri og jafntefli
KOM NOKKUÐ Á ÓVART Hjörvar Hafliðason setti stuðulinn
sextán á sigur Hauka gegn KR í Frostaskjólinu. Haukar náðu
jafntefli og hefðu getað sigrað. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Auðvitað smitast maður af
þessu. Núna er maður á ári eitt
í Eurovision,“ segir Halldór
Eiríksson, rekstarhagfræðingur
í innkaupadeild álversins í Reyð-
arfirði. Hann er unnusti Heru
Bjarkar, fulltrúa Íslands í Eur-
ovision, og stendur að sjálfsögðu
þétt við bakið á sinni konu.
Halldór viðurkennir að hafa
verið laumuaðdáandi Eurovision,
rétt eins og flestir Íslendingar.
„Allir á Íslandi hafa gaman af
Eurovision og það er virkilega
forvitnilegt að kynnast þessari
keppni og undirbúningnum fyrir
hana í svona nálægð,“ segir Hall-
dór en þeir sem hafa farið á Eur-
ovision-keppni segja þetta ein-
staka upplifun og margir eiga
hreinlega ekki afturkvæmt úr
Eurovision-æðinu. „Nei, þetta
virðist vera einstakt karnival,“
segir Halldór.
Eurovision-hópurinn heldur til
Óslóar á laugardaginn en töluverð
óvissa ríkti um hvort treysta ætti
á að flugleiðir væru opnar vegna
eldgossins í Eyjafjallajökli. Í gær
var svo tekin ákvörðun um að
fljúga og Halldór vonar að veður-
guðirnir verði íslenska hópnum
hliðhollir. „Annars fannst mér á
þeim að þau væru bara til í allt,
hvort sem það væri sigling með
Norrænu eða eitthvað annað. En
það er vissulega betra að fara flug-
leiðina og koma óþreytt út,“ segir
Halldór en hann hefur mátt verj-
ast spurningum frá samstarfsfólki
sínu sem vilja vita allt um hvern-
ig undirbúningurinn gangi. „Ég á
voðalega bágt með mig, má ekk-
ert segja en fæ margar spurning-
ar, hvernig kjóllinn líti út og svo
framvegis. Það sýna þessu allir
mikinn áhuga,“ segir Halldór sem
fer sjálfur til Noregs og verður í
Ósló þegar undanúrslitin hefjast
á þriðjudeginum. Og að sjálfsögðu
einnig þegar úrslitakvöldið verð-
ur en Halldór er handviss um að
Hera komist þangað.
Í viðtali við Séð og heyrt fyrir
skömmu viðurkenndi Hera Björk
að Halldór væri einn af fáum sem
hefði þorað að syngja fyrir hana.
„Já, maður er svolítið skúffaður
yfir því að hafa ekki komist í bak-
raddirnar, maður bregður kannski
fæti fyrir einhverjum af bakrödd-
unum,“ segir Halldór og hlær.
freyrgigja@frettabladid.is
HALLDÓR EIRÍKSSON: SMITAÐUR AF EUROVISION-BAKTERÍUNNI
Maður Heru mikið spurð-
ur út í Eurovision-kjólinn
ÚTVISTARPAR Halldór og Hera Björk eru dugleg að ganga á fjöll og sjást hér í einni af sínum göngum. Halldór verður að sjálf-
sögðu í Ósló þegar Hera tekur þátt í undankeppni og úrslitum Eurovision.
Davíð Óskar Ólafsson, einn af
eigendum framleiðslufyrirtæk-
isins Mystery Island, hefur verið
valinn sem fulltrúi Íslands í Prod-
ucers on the Move. Hópurinn er
valin af EFP og fá viðkomandi að
kynna sjálfa sig og verkefni sín á
kvikmyndahátíðinni í Cannes sem
hófst í gærkvöldi. Mikið verð-
ur um dýrðir við hvítar strend-
ur frönsku ríveríunnar en opn-
unarmyndin er Hrói höttur eftir
Ridley Scott með Russell Crowe í
aðalhlutverki.
Davíð segir þetta vera frá-
bært tækifæri fyrir sig, fyrir-
tækið er með nokkur verkefni á
teikniborðinu sem komin séu mis-
langt á leið. „Við ætlum að reyna
að kynna þau fyrir þessu fólk og
vonandi kemur eitthvað gott út
úr þessu,“ segir Davíð en Árni
Filippusson, meðeigandi hans að
Mystery Island, ætlar einnig að
fara út til Frakklands.
Dagskráin er nokkuð stíf hjá
Davíð því fyrst er kvöldmatur
með hópnum og svo nánast stans-
laus fundarhöld með hinum og
þessum aðilum sem tengjast kvik-
myndabransanum. „Við höfum
ekki farið áður til Cannes, vorum
hins vegar saman í Toronto að
kynna Sveitabrúðkaup. En mér
skilst að það sé allt annað and-
rúmsloft þarna enda ein stærsta,
ef ekki stærsta, kvikmyndahátíð í
heimi. Þess vegna er líka svo gott
að hafa þennan Producers on the
Move-hóp upp á að hlaupa því
annars er svo hætt við að maður
týnist hreinlega í mannhafinu,“
segir Davíð. Hann óttast þó ekki
að verða veðurtepptur þótt askan
úr Eyjafjallajökli sé aftur farin
að stríða flugfélögum. „Nei, við
fljúgum til Danmerkur og gist-
um þar eina nótt. Ef allt verður
stopp þá er það bara plan B: að
taka á sig sextán tíma bíltúr frá
Danmörku til Cannes.“ - fgg
Í hópi áhugaverðustu framleiðendanna
FLOTT TÆKIFÆRI Davíð Óskar Ólafsson
fær að kynna sig og sín verkefni á kvik-
myndahátíðinni í Cannes.
„Uppáhaldssjónvarpsþátturinn
minn núna er How I Met Your
Mother vegna þess að aðalpers-
ónurnar í þáttunum eru svo
yndislega breyskar, skemmtileg-
ar og bilaðar.“
Marsibil Sæmundsdóttir, kvikmynda-
skólanemi og varaborgarfulltrúi.
Baltasar Kormákur er í ítarlegu
viðtali við spænsku vefsíðuna
hoycinema þar sem hann ræðir
um Reykjavík-Rotterdam og
önnur verkefni sem hann hefur
í farvatninu. Baltasar nefnir það
meðal annars að tökur á endurgerð
Reykjavík-Rotterdam
með Mark Wahlberg
í aðalhlutverki eigi
að hefjast í haust og
að tökurnar fari fram
við Mississippi-fljótið,
New Orleans og
Panama auk
Chicago.
Og ef marka má bandarísku slúð-
urpressuna þá mega aðdáendur
Bachelorette eiga von á mikilli
dramatík. Eins og Fréttablaðið
hefur greint frá var einn þáttur tek-
inn upp hér á Íslandi. Eftir því sem
fram kemur á erlendum vefsíðum
þá virðist einn piparsveinanna
eiga kærustu fyrir sem ryðst inn í
sjónvarpsútsendinguna og afhjúpar
maka sinn. Ali Fedotowsky
og níu vonbiðlar hennar
drukku í sig rómantísk-
ar stundir á Íslandi og
það verður forvitnilegt
að sjá hvernig landið
kemur út en fyrsti
þátturinn fer í
loftið þann
24. maí.
Gunnar Hansson og félagar hafa
dvalið í London undanfarna daga
þar sem þeir tóku upp efni fyrir
væntanlega sjónvarpsþætti um
Frímann Gunnarsson með breska
grínistanum Matt Berry. Tökur
hafa gengið vel og Berry er að
sögn félaganna yndislegur maður.
Ragnar Hansson, bróðir Gunnars,
leikstýrir þáttunum, en í tökuliðinu
er einnig hinn stimamjúki Birgir
Ísleifur, söngvari og stofn-
félagi Rod Stewart-
klúbbsins In Rod We
Trust ásamt Daníel
Ágústi og Krumma í
Mínus. - fgg, afb
FRÉTTIR AF FÓLKI
Kl
ap
pa
rs
tíg
ur
Laugavegur
Hverfi sgata
29
Rakarastofan
Hárgreiðslustofan
Klapparstíg
Klapparstíg
Klapparstíg 29 • Sími 551 3010
gerir grillmat að hreinu lostæti!
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
38
23
8