Fréttablaðið - 11.06.2010, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 11.06.2010, Blaðsíða 62
38 11. júní 2010 FÖSTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT 2. úrgangur, 6. tónlistarmað- ur, 8. slagbrandur, 9. spíra, 11. tveir eins, 12. kryddblanda, 14. hrista, 16. hæð, 17. taug, 18. kvenkyns hundur, 20. vörumerki, 21. engi. LÓÐRÉTT 1. tafl, 3. í röð, 4. sam- bandsríkis, 5. lögg, 7. sígild list, 10. struns, 13. flan, 15. svara, 16. beita, 19. mun. LAUSN LÁRÉTT: 2. hrat, 6. kk, 8. slá, 9. ála, 11. rr, 12. karrí, 14. skaka, 16. ás, 17. sin, 18. tík, 20. ss, 21. akur. LÓÐRÉTT: 1. skák, 3. rs, 4. alríkis, 5. tár, 7. klassík, 10. ark, 13. ras, 15. ansa, 16. áta, 19. ku. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 66 milljarðar króna sem eru 500 milljónir dala eða 3,5 milljarðar kínversk júön. 2 Danir unnu 29-28. 3 Myndina Escape to Donegal. „Jú, hann hefur alveg vit á þessu. Hefur nátt- úrulega reynslu af því að sjá um svona stórmót og svo er hann duglegur að mæta á leiki. Við hittumst líka oft í mat meðan á ensku úrvals- deildinni stendur og ræðum um hvað er að ger- ast,“ segir Tómas J. Þorsteinsson, sonur Þor- steins Joðs Vilhjálmssonar. Hann verður föður sínum innan handar í HM-þáttum RÚV en keppnin hefst í dag. Tómas segir einfaldast að útskýra starf sitt þannig að hann sé aðstoðar- maður Þorsteins. „Ég hringi í fólk til að koma í þáttinn og fylgist síðan með leikjum og kem með einhverja punkta úr þeim.“ Tómas er leikmaður með meistaraflokki Fylkis í Pepsi-deildinni. Hann hefur verið fastamaður það sem af er tímabils og meðal annars leikið í stöðu vinstri bakvarðar en það er einmitt sama staða og Þorsteinn lék í á árum áður með Fram. „Ég er meira fyrir að hlaupa upp og niður kantinn og gefa fyrir, mér skilst að pabba hafi meira verið plantað þarna til að stoppa leikmenn og tuddast aðeins.“ Það vekur óneitanlega athygli að Tómas skuli leika með Fylki þar sem pabbi hans er gall- harður Framari. Tómas segir þetta eiga sér landfræðilega skýringu, hann hafi einfaldlega átt heima í hundrað metra fjarlægð frá Fylkis- vellinum í Árbænum. Tómas kláraði annað árið í umhverfis- og byggingarverkfræði við Háskóla Íslands í sumar en segir að hann sé um þessar mundir í draumastarfinu. „Þetta getur ekki verið betra fyrir knattspyrnumann, að horfa á fótbolta og fjalla um fótbolta, ég gæti hreinlega ekki hugsað mér betri vinnu.“ - fgg Þorsteinn Joð með soninn í vinnu FEÐGARNIR SAMAN Þorsteinn Joð hefur góðan aðstoðarmann í syni sínum, Tómasi. Hann er leikmaður meistaraflokks Fylkis og mun hjálpa til við útsendingar HM-þáttarins í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Þetta var mjög sérstakt,“ segir Sturla Mio Þóris- son, hljóðversstjóri í Gróðurhúsinu. Toomas Hendrik Ilves, forseti Eistlands, heim- sótti hljóðverið á miðvikudagskvöld ásamt eigin- konu sinni Evelin og föruneyti sínu. Það saman- stóð af 25 manna sendinefnd og hópi lífvarða. „Við höfum aldrei tekið á móti svona þjóðhöfðingja í stúdíóinu áður. Það var líka skrýtið að hafa þarna menn sem voru talandi ofan í ermina á sér,“ segir Sturla. Forsetinn, sem er staddur hér á landi í opinberri heimsókn, er mikill áhugamaður um tónlist og er sérlegur aðdáandi þeirra tónlistarmanna sem gefa út hjá Bedroom Community, sem hefur aðstöðu í Gróðurhúsinu. Hann missti af tónleikum sem Val- geir Sigurðsson, Daníel Bjarnason og Nico Muhly úr Bedroom Community héldu í Tallinn í Eistlandi á dögunum og óskaði því eftir að komast á hálfgerða einkatónleika í Gróðurhúsinu. Þar spiluðu fyrir hann þeir Daníel Bjarnason og Ben Frost. „Hann virtist mjög sáttur. Það lofuðu þetta allir í hástert,“ segir Sturla um viðbrögð forsetans og föruneytis- ins. Eftir heimsóknina, sem stóð yfir í um eina og hálfa klukkustund, kíkti hluti sendinefndarinnar á Kaffibarinn en forsetahjónin létu það vera, enda orðin þreytt eftir langan og strangan dag. -fb Forseti Eistlands í Gróðurhúsi ÓVENJULEG HEIMSÓKN Forseti Eistlands í Gróðurhúsinu þar sem Daníel Bjarnason og Ben Frost spiluðu fyrir hann. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Tímaritið OK! í Búlgaríu setti á dögunum saman lista yfir syndsamlega flottustu líkama landsins. Nokkrar innfæddar fyrirsætur raða sér í efstu sæti listans, en flestar eiga þær sameiginlegt að hafa fækkað fötum fyrir tímarit sem skilja ekkert eftir fyrir ímyndunar- aflið. Íslendingar eiga að sjálfsögðu fulltrúa á listanum; athafnakonan og fyrirsætan Ásdís Rán situr í 8. sæti og virðist vel að sætinu komin. Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu eru félagarnir Auddi, Sveppi, Villi naglbítur og Egill Gillzenegger á leið- inni til Bandaríkjanna í sumar. Þar verður sett upp keppni þar sem Sveppi og Villi keppa við Audda og Egil um hver verður á undan að koma sér þvert yfir landið og að sjálfsögðu verður tekinn upp sjón- varpsþáttur í leiðinni. Þátturinn hefur fengið nafnið Ameríski draumurinn og eitt af því fáa sem er vitað um efnistökin er að Egill ætlar að vera ber að ofan allan tímann og freista þess að skyggja þannig á Audda vin sinn. Skemmtistaðurinn Glaumbar er að ganga í gegnum breytingar þessa dagana. Staðurinn hefur fengið nýtt nafn, Risið, og mun leggja áherslu á tónleika og almennt djamm ásamt því að vera með beinar íþróttaútsendingar. Haffi Haff hélt þrenna útgáfutón- leika fyrir plötuna Freak á mið- vikudaginn. Lög Haffa hafa notið talsverðra vinsælda undanfarið, en það skilaði sér því miður ekki í mætingu á tónleikana. Fámennt en góðmennt var á tónleikunum og var mál manna að Haffi hafi náð að skapa ótrúlega stemningu miðað við fjölda áhorfenda. - afb FRÉTTIR AF FÓLKI „Við félagarnir verðum „krús- andi“ um landið alla föstudaga og verðum með innslög sem heita Ómar og Andri á flandri. Við ætlum að kíkja í heimsókn í smábæina og dýfa tánum í sumar- hátíðirnar og ég ætla meðal ann- ars að draga karlinn með mér á Eistnaflug og í heimsókn til pabba. Þetta verður mjög fallegt allt saman,“ segir útvarpsmaður- inn vinsæli, Andri Freyr Viðars- son. Hann mun stýra laufléttum laugardagsþætti á Rás 2 í sumar og hefur útvarpsmaðurinn fengið engan annan en Ómar Ragnars- son til liðs við sig. Þetta er í fyrsta sinn sem Andri og Ómar starfa saman og segir Andri það vera mikinn heiður að fá tækifæri til að vinna með Ómari. „Það var mjög gaman að hitta meistarann. Hann varð líka mjög feginn að hitta mig í eigin persónu því kvöldinu áður hafði hann dreymt að ég væri tveir metrar á hæð og kæmist ekki fyrir í bílnum hans.“ Inntur eftir því hvernig sé að vera kominn heim á ný segir Andri það gott. „Ég er eiginlega nýlentur og er rétt svo að tékka mig inn, en það er alltaf gott að koma heim.“ Andri og Ómar verða í beinni útsendingu í útvarpsþættinum Popplandi á föstudögum ásamt því sem þeir verða með innslög í þætti Andra sjálfs. Þátturinn fer í loftið strax eftir hádegisfréttir á laugardögum og segist Andri Freyr ætla að dusta rykið af gamalkunnum dagskrár- liðum líkt og Flóamarkaðinum, Leynigestinum og Bak við lagið. Áður stýrði Andri hinum vinsæla útvarpsþætti Litlu hafmeyjunni ásamt Dodda litla og sendi Andri þá út beint frá heimili sínu í Kaupmannahöfn. Aðspurður seg- ist hann ekki óvanur því að stýra útvarpsþætti einn en viðurkennir að hann muni sakna félagsskapar Dodda í hljóðverinu. - sm ANDRI FREYR: ALLTAF GOTT AÐ KOMA HEIM Það er heiður að vinna með Ómari Ragnarssyni GÓÐIR FÉLAGAR Andri Freyr Viðarsson og Ómar Ragnarsson verða á ferð og flugi um landið í allt sumar og munu meðal annars koma við á Eistnaflugi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM BESTI BITINN Í BÆNUM „Það er fiskur á spjóti hjá Sæ- greifanum.“ Vera Sölvadóttir, söng- og kvikmynda- gerðarkona. Það er algjör óþarfi að missa af einni einustu mínútu á HM. Með áskrift að Stöð 2 sport 2 tryggir þú þér alla leiki keppninnar, kvölds og morgna, á þremur rásum samtímis. Fjörleg og fróðleg umfjöllun bestu sparkspekinga þjóðarinnar tryggir þér hámarks ánægju af þessari einstöku keppni. leikir í beinni allir 64 leikirnir á hliðar- rásum allan sólarhringinn alvöru u p p lifun VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT 2 INNIHELDUR 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000 allt að fjórum sinnum meiri myndgæðidýpri litir aukin skerpa ALLIR LEIKIR Í HD VEISLAN HEFST Í KVÖLD hm 442 með rögnu lóu og loga bergmann alla leikdaga kl: 21:00 reynslumestu mennirnir lýsa leikjunum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.