Fréttablaðið - 11.06.2010, Blaðsíða 33
11. júní föstudagur 5
BLOGGAR UM MAT
Evu er margt til lista lagt og hefur
hún meðal annars mikinn áhuga
á matargerð og veit fátt skemmti-
legra en að halda matarboð fyrir
vini og vandamenn. Eva heldur
einnig úti vinsælu matarbloggi á
Miðjunni.is þar sem hún kennir
lesendum hvernig má elda holla
og skemmtilega grænmetisrétti.
„Á Gautaborgarárunum ákváðum
við hjónin að hætta að borða kjöt
og fisk og þurftum þá að finna
nýjar hugmyndir um hvað ætti
að hafa í matinn. Í kjölfarið fékk
ég mikinn áhuga á að þefa uppi
ýmsa grænmetisrétti sem væru
bæði hollir og afskaplega bragð-
góðir,“ segir Eva sem hóf fyrst að
blogga stuttu eftir fæðingu dóttur
sinnar. „Ég er þannig manneskja
að mér þykir best að hafa alltaf
nóg fyrir stafni. Ég ákvað því að
byrja með matarblogg á meðan ég
var í fæðingarorlofi. Fólk tók mjög
vel í það og mér þótti sjálfri mjög
skemmtilegt að sjá hvað öðrum
þótti gaman að fá nýjar hugmynd-
ir að grænmetisréttum.“ Hún við-
urkennir þó að í óléttunni og
framboðinu hafi hún haft lítinn
tíma til að sinna matarástinni.
ÝMISLEGT OG ALLS KONAR
Eva segir Heiðu Kristínu Helga-
dóttur, kosningastjóra Besta
flokksins, hafa leitað til sín
þegar verið var að skipa á lista
fyrir kosningarnar og beðið sig
að leggja flokknum lið. Að sögn
Evu þótti henni tilboðið spenn-
andi og tækifærið of gott til að
sleppa því. „Ég hef alltaf haft mik-
inn áhuga á samfélagsmálum og
málefnum Reykjavíkur. Þess utan
finnst mér fólkið sem leiðir list-
ann líka spennandi og skemmti-
legt og hlakka mikið til þess að
vinna með því,“ segir Eva, sem á
von á öðru barni sínu um miðjan
júlí og viðurkennir að henni þyki
erfitt að missa af þessum fyrstu
mánuðum Besta flokksins í borg-
arstjórn. „Þó ég hlakki mikið til
fæðingarorlofsins þá viðurkenni
ég að mér finnst mjög leiðinlegt
að missa af þessum fyrstu mán-
uðum. Þetta verða örugglega mjög
spennandi og mótandi tímar fyrir
starf flokksins, en við erum flott
og samrýnd þannig að ég fæ að
vera með á kantinum eins og
maður segir. Ég vil þó nýta tæki-
færið og taka fram að ég fer ekki
strax á spenann sem óléttur borg-
arfulltrúi eins og sumir virðast
hafa áhyggjur af, því fæðingaror-
lof tekur mið af síðustu tveimur
starfsárum manns.“
Eva vann áður á öðrum vett-
vangi fyrir Reykjavíkurborg, sem
atvinnuráðgjafi fyrir ungt fólk í
Hinu húsinu, og þó hún sé ekki
kvíðin fyrir því að hefja nýtt starf
segist hún kveðja gamla vinnu-
staðinn og fólkið í Hinu húsinu
með söknuði. „Ég hlakka mikið
til að byrja í nýju starfi þó það
sé auðvitað margt sem við eigum
eftir að læra. En svona almennt
er ég bjartsýn á framtíðina og ég
trúi því að jákvætt hugarfar muni
koma ýmsum góðum breytingum
til leiðar.“
Uppáhaldsborgin?
Það fer dálítið eftir því hverju
maður er að sækjast eftir.
Reykjavík fær hjartað til að
slá en ég væri alveg til í róm-
antíska helgi í París með
betri helmingnum.
Besti tími dags?
Ég er mikil kvöldmanneskja,
en fyrsta spjallið við dóttur
mín á morgnana er líka
dásamlegt.
Stjörnumerki?
Ég er og þyki víst týpísk-
ur hrútur.
Uppáhaldsmatur?
Ítalskur matur.
Uppáhaldsbókin?
Engin sérstök, en ég hef gaman
af bókum eftir Milan Kundera og
Nick Hornby … og matreiðslu-
bókum.
Listakonan Patricia Waller er væntanleg hingað til lands um helgina en hún tekur þátt í prjón-
alistahátíðinni Lykkjur: Norræn prjónalist dagana
17. júní til 4. júlí. Um er að ræða alþjóðlega sýn-
ingu á listaverkum þar sem nær eingöngu er not-
ast við hekl- og prjónatækni.
Heklverk Patriciu eru einstök blanda af krútt-
skap og hryllingi sem vekur mismunandi við-
brögð hjá fólki að hennar eigin sögn. „Hekl hefur
þetta sakleysislega yfirbragð og ull kallar fram
hlýjar tilfinningar hjá fólki. Heklað blóð fær fólk
oft til að fara að hlæja,
jafnvel þó það sé að horfa
á einhverja skelfilega
senu,“ segir Patricia.
Hún hefur unnið
listaverk úr ull
frá því hún lauk
námi í höggmynda-
list snemma á tíunda
áratugnum. „Mig lang-
aði þá að vinna með
efnivið sem væri enn
ekki búinn að ná fót-
festu í listum. Svo ég fór
að hekla mín verk úr ull.
Kollegar mínir gerðu mikið
grín að mér fyrir að vinna
með svo gamaldags efnivið.
Og það var í raun erfitt, sem
kona, að vinna með efni sem var
svo rækilega tengt við húsfreyju-
list.“
En Patricia gafst ekki upp
á ullinni og var fljótlega
komin með algjörlega sér-
stöðu. Sýning hennar á Ís-
landi verður unnin í sam-
starfi við átta íslenska
listamenn, þau Melkorku
Huldudóttur, Kristínu Evu
Rögnvaldsdóttur, Charlie
Strand, Juliu Staples, Vig-
dísi Þormóðsdóttur, Hildi
Hermanns, Jóa Kjartans og
Magnús Helgason. Hvert
þeirra hefur fengið stórt
heklað skordýr frá Patr-
iciu til að skapa sögu í
kringum og taka ljós-
myndir af í náttúrulegum
híbýlum þeirra. Dýrun-
um verður svo stillt upp
á sýningu, eins og á nátt-
úrugripasafni, ásamt ljós-
myndum og sögum. - hhs
Prjóna- og hekllistakonan Patricia Waller sýnir með íslenskum listamönnum:
KRÚTTLEGUR
HRYLLINGUR
✽
b
ak
v
ið
tj
öl
di
n
M
Y
N
D
/PATR
IC
IA
W
A
LLE
R
Dýr úr smiðju Patriciu Eitt dýr-
anna sem verða á sýningu Patriciu
og íslenskra listamanna á alþjóðlegu
prjónalistahátíðinni Lykkjur.